Leiðréttið neyðarlögin

Mikil þöggun hefur verið í gangi um að aðeins um tuttugu fjölskyldur áttu þorra þess fjármagns sem tryggt var upp í topp með  neyðarlögunum.

Mér finnst það sjálfsögð krafa Íslendinga að ef niðurstaðan verður sú að innstæðueigendum hafi verið mismunað að þá verði neyðarlögin leiðrétt og jöfnuður tryggður með þeim hætti.

Þ.e.a.s. að þessar tuttugu fjölskyldur verði einfaldlegar settar við sama borð og Bretar og Hollendingar og þá er deilan leyst.

Þjóðin á heimtingu á að fá að vita hverjar þessar tuttugu fjölskyldur eru sem hafa kostað þjóðina þessar deilur


mbl.is Sterk rök okkar í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr.  Ég vil sjá líka hverjar þessar 20 fjölskyldur eru...

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.4.2011 kl. 23:13

2 identicon

Hvað með lista yfir alla 2% elítuna? Framtíð eins og "eitt stykki þjóðar" er stefnt í voða vegna hennar, lífskjörum samfélagsins er hent út um gluggann, hvernig getur hún verið ósýnileg?

sr (IP-tala skráð) 10.4.2011 kl. 23:45

3 identicon

Allar greiðslur umfram innistæðutrygginguna átti að endurgreiða með skattaafslætti. Þar með hefði elítan, bretar og hollendingar þurft að láta peningana sína vinna á Íslandi til þess að fá eitthvað umfram eðlilegt lifibrauð.
Ónýttur skattaafsláttur hefði svo fallið niður að 10 árum liðnum eða svo.
Með þessu hefðu hjól atvinnulífsins náð nýjum hámarkshraða ... en Jóhanna vill það ekki því ekki má hinn vinnandi maður hafa það gott.

Bóbó hagfræðingur (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 00:00

4 identicon

Takk fyrir að standa þína vakt með glæsibrag og hafðu ríkuleg laun fyrir kæra Jakbobína. Almenningur í heiminum hefur samúð með málstað Íslands. Það hjálpar þó ekki að forsætisráðherra vor hefur tekið að sér hlutverk kennarasleikjunnar sem hleypur og klagar í "hærra setta" í alþjóðlega fjármálakerfinu. Meiri en svo er hollusta hennar við eigin þjóð ekki. Bretar eiga hrós skilið fyrir fágun og stillingu almennings þar í landi, að láta jafnvel ekki hysterísk orð forsætisráðherran, sem réðst á eigin þjóð í viðtali við BBC, hafa mikil áhrif á sig, ef undanskilinn er hávær minnihluti öfgamanna sem enginn ber virðingu fyrir. Forsætisráðherra verður þó að hafa gát á munni sínum, vilji hún ekki fá sómakært fólk upp á móti okkur líka. Það er erfitt fyrir stórar þjóðir að skilja að velmenntuð menningarþjóð hafi valið sér elliært dómgreindarsnautt gamalmenni í þetta embætti. Við eigum þó alltaf forsetan, sem talar afburðargóða ensku og er stórkostlega vel máli farinn, rökfastur, réttsýnn og afburðargreindur maður, en fyrst og fremst hugrakkur og sannur. Heill forseta vorum og fósturjörð!

Jón Einarsson (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 00:10

5 identicon

Rétt hjá þér Jakóbína,

ég hef verið að segja þetta frá upphafi, en fólk er alveg að tína sér í því hvað útlönd eru vond við okkur.  Aðal-vandamálið hafa alltaf verið þessi neiðarlög sem björguðu milljarðainnistæðum fámenninga hér á landi.  Hvað gekk á í hausnum á þessu liði sem setti út neiðarlögin í þessu formi sem þau eru í ?

Jonsi (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 00:49

6 identicon

Millarnir sem eiga sök að máli geta borgað brúsan. Það væri réttlátt. Þetta fólk er flest orðið um helmingi ríkara en það var síðan ríkisstjórnin tók við völdum, og Björgólfur er orðinn í tuttugasta og eitthvað sæti yfir ríkustu menn heims. Tökum þessi 50% bara aftur af þeim, sem þeir græddu afþví þeir voru látnir óáreittir en almenningur borga brúsan, og málið er leyst fyrir alla aðila!

Siggi (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 01:17

7 identicon

Góð, létt læsileg grein sem útskýrir flesta þætti hrunsins.

http://www.paecon.net/PAEReview/issue56/WadeSigurgeirsdottir56.pdf

Annars er mín persónulega skoðun að Ísland er bananalýðveldi með mikla spillingu. Hún er bara vel falin vegna þess að þjóðin er lítil og allir "þekkja" alla.

Enginn talar lengur um skýrsluna? Nú á svo bara að gleyma henni og leggja allt þetta að baki en það er ekki buið að laga neitt?

Hvað er annars málið með Sjálfstæðisflokkinn, hafa þeir í alvöru möguleika á að fá stjórnartauma á íslandi aftur?

smark74 (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 03:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband