Lang flestir Íslendingar vilja að Geir sæti ábyrgð

Geir heldur því statt og stöðugt fram að hann sé saklaus. Vælið í karlinum er að ganga fram að mörgum en það minnir á þunglyndisraus áfengissjúklings sem skýrir allt í sinni hegðun með breyskleika annarra.

Geir hefur frá hruni bankanna sýnt eindreginn hroka og hafnað allri ábyrgð. Menn sem ekki skilja að valdi fylgir ábyrgð eiga ekki að veljast til stjórnunarstarfa. Geir hefur ásamt öðrum valdhöfum og forréttindastétt í landinu skapað norm ábyrgðarleysis. Hið viðtekna er vangeta og skortur á atgervi og skeytingarleysi um velferð almennings. Vissulega er Geir sekur.


mbl.is „Ekkert annað en hneisa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Alveg rétt - það er kominn tími til að ráðamenn geri sér grein fyrir því að það er ekki alveg sama hvernig þeir haga sér - hingað til hafa þeir setið sem fastast, hvað sem þeir hafa gert af sér...........

Í öðrum löndum hafa ráðherrar sagt af sér fyrir nokkuð sem hér hefur ekki verið talið ómaksins vert að minnast á..............

Það er löngu kominn tími á að þeir fari að koma sér upp einhverjum snefil af ábyrgðartilfinningu.........

Eyþór Örn Óskarsson, 7.6.2011 kl. 17:57

2 identicon

RANGT!

All margi hlusta á Göring áróður Helferðarstjórnarinnar fyrir því hvernig það egi að sitja, standa og hugsa.

Þar er ekki þar með sagt að allir séu þannig.

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 7.6.2011 kl. 18:21

3 identicon

Ég er handviss um það að flestir íslendingar telja þetta vera sýndarréttarhöld af Stalíniskum toga.

Algjört rugl !

Þeir sem eru sammála þessum gjörning eru einnig á sama máli og svínið í Animal Farm " Allir eru jafnir en sumir eru jafnari en aðrir " eða " All are created equal but some are more equal than others "

Björn Indriðason (IP-tala skráð) 7.6.2011 kl. 18:34

4 identicon

Ég er algjörlega sammála síðasta ræðumanni.Þessi réttarhöld eru pólitísk eðlis og tengjast ekki ábyrgð .Ef svo væri sætu allir ráðherrar vinstri grænna í gæsluvarðhaldi nú þegar.En kannski snýst dæmið við eftir tvö ár.Hef sjálfur verið fylgjandi því að r´ðnir séu fagmenn í ráðherrastöður en ekki  pólitíkusa eins og nú er.

josef asmundsson (IP-tala skráð) 7.6.2011 kl. 18:50

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þessi réttarhöld eiga fullan rétt á sér og skömmin liggur í því að fleiri skuli ekki dregnir fyrir dóm.

Flottræfilsháttur Geirs sem heldur nú samkundu í Hörpunni talar sínu máli. Þetta lið hefur ekkert lært og telur sig hafið yfir almenning. Ég vona að karlinn fái fangelsisvist og fleiri ættu líka heima innan rimla.

Þetta er ekki sagt af hatri heldur trú minni á því að Geir og fleiri hafa gott af því að bragða á sömu meðölum og almenningi er boðið upp á.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.6.2011 kl. 19:36

6 identicon

Mér finnst að það ætti alls ekki að fara svona með stjórnendur, hvorki fyrirtækja né þjóða.  Þetta er agaleg vanvirðing við alla þá ábyrgð sem þetta fólk ber þungum herðum.

Suddan vanvriðing.

Jonsi (IP-tala skráð) 7.6.2011 kl. 21:10

7 Smámynd: Eyþór Örn Óskarsson

Rétta hugarfarið eða hitt þó heldur - "Þetta er agaleg vanvirðing við alla þá ábyrgð sem þetta fólk ber þungum herðum."

Þetta fólk ber nefnilega enga ábyrgð þó það segist gera það og þá er ég ekki bara að tala um Geir Haarde - það á jafnt yfir alla að ganga - að mínu mati hefðu fleiri en hann átt að fara fyrir landsdóm

og mér finnst rétt að þetta mál verði klárað, þó hann verði sýknaður............

- þá þarf að virkja landsdóm til að ráðamenn, hvar sem þeir standa í pólitík geri sér grein fyrir að það er ekki sama hvernig þeir stjóna þessu landi..... 

Eyþór Örn Óskarsson, 7.6.2011 kl. 22:13

8 identicon

Afhverju þurfa þeir sem eru í ábyrgðarstöður ekki að bera ábyrgð? Sé bara vanvirðingu gagnvart allmenningi að ekki fóru fleirri fyrir landsdóm. Síðan efast ég dálítið um þessi réttarhöld því hverjir eru síðan dómarar? Er einhver hlutlaus í þessu landi?

Elisabet Agustsdottir (IP-tala skráð) 8.6.2011 kl. 13:29

9 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

.. ef Geir ber enga ábyrgð þá ber enginn ábyrgð.  Þá hljótum við að geta tekið allt sem gerðist eftir hrun til baka.  Alla verðbólguna, atvinnuleysið, efnahagssamdráttinn, niðurskurðinn og gjaldþrotin.  Hvers vegna ætti almenningur að bera ábyrgð en ekki stjórnmálamenn sem vissu þó hvað var að gerast?

Ég er sammála Jakobína.  Það á að dæma í máli Geirs.  Hvort hann er sekur eða saklaus munu dómararnir skera úr um.

Lúðvík Júlíusson, 11.6.2011 kl. 22:20

10 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Það átti að draga alla Hrunstjórnina fyrir dóm og gleyma síst af öllum Jóhönnu og Össurri. Að taka Geir einann og sjúkann fyrir sýnir, að þetta var hallærisleg sýndargerð.

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 16.6.2011 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband