Var á þessum fundi

Flestir vildu stjórnmálamennirnir jöfnuð en Bjarni Benediktsson vildi jöfn tækifæri. Bjarni hefur sjálfur haft sérlega jöfn tækifæri í lífinu. Jafnari en flestir aðrir.

Olíufélag Bjarna N1 hefur líka haft sérlega jöfn tækifæri. Jafnari tækifæri en mörg önnur fyrirtæki sem ekki hafa haft beintengingu inn í stjórnarráð.

Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að rústa velferðarkerfinu. Það þarf sérstakan karkter til þess að koma fyrir hönd þessa flokks, framsóknar og samfylkingar, horfa framan í öryrkjanna og lofa þeim lágmarksvelferð þegar búið er að skuldbinda ríkissjóð til að setja alla velferðarpeningana í sjóði útrásarvíkingana sem nú spóka sig í vellystingum í London.

Af svona fundi gengur maður með særða réttlætiskennd.


mbl.is Vilja verja velferðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Þakka þér pistilinn, Jakobína!

Satt segirðu um drenginn sem ekki fæddist með silfurkeið í munni - því í skeiðinni var gull. 

Hlédís, 15.4.2009 kl. 23:52

2 identicon

Ég held þvert á móti að þessi þjóð sé úrkynjuð Þrymur. Hún er sjúk og rotin í gegn.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 00:17

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þrymur vertu ekki svona barnalegur. Það var alveg sérlega ósmekklegt af Bjarna að tala um jöfn tækifæri fyrir fullum sal af fólki sem er fætt með alvarlegar fatlanir.

Sýnir svo ekki verður um villst að menn eins og hann sem hafa enga reynslu af því að takst á við raunverulegar hindranir eiga ekki að vera í stjórnmálum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2009 kl. 00:18

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Skil þig! Jakobínu sko! (botna ekkert í þessum sem er næstur á undan mér hér í athugasemdunum

Rakel Sigurgeirsdóttir, 16.4.2009 kl. 00:18

5 identicon

Ég kem bara auga á mjög sterka réttlætiskennd í þessum skrifum Jakobínu.

Það eru flestir búnir að fá nóg að því að horfa á suma misnota frelsið sem þeir boðuðu til að svína og traðka á rétti annarra.

Torfi Hjartarson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 00:19

6 identicon

Svona skrif dæma sig sjálf, segja ekkert um Bjarna, en alt um maneskjuna sem ritaði bloggið.

Jakobína, þér til upplýsingar þá jukust lámarksgreiðslur til öryrkja á síðustu 2 árum frá fúmum 110.000 á mánuði í á milli 160.000 - 170.000, fer eftir aldri, heimilisaðstöðu og aldri við greiningu örorku.  Mér er málið mjög skylt þar sem dóttir mín lenti í alvarlegu slysi fyrir 18 ára aldur og nú getur hún fyrst séð um sig sjálf án fjárhagsaðstoðar frá fjölskyldunni. Hún hefur fengið húsnæði frá félagsþjónustunni og nú fyrst getur hún borið höfuðið hátt.  Hún er 26 ára í dag.

Mér finst með ólíkindum að dæma fólk, eins og þú gerir, vegna þess að það er sonur eða dóttir einhvers.  Þú verður að kynna þér einstaklinginn áður en þú fellir dóm yfir honum og greinilega þekkir þú ekkert til Bjarna. 

Guðrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 00:31

7 identicon

Þessi Stynur Steinsson minnir óneitanlega á þá bræður á þingi Knoll og Tott (Ármann og Sigurð Kára). Stynjandi hér og þar á vefnum eins og að málþóf sé inn í dag!

Þórður Runólfsson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 02:03

8 identicon

Það er svo sorglegt að sjá svar eins og Þórður gefur.  Svona svar sýnir ekkert nema skort á málflutningi.  Þekkir þú eithvað til Ármanns og Sigurðar Kára?  Væntanlega værir þú ekki sérlega hrifinn ef vegið væri að mannorði þínu á þennan máta?

Guðrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 02:34

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Svei mér þá ef bláa mafían er ekki mætt

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2009 kl. 03:18

10 identicon

Hvaða bláu mafíu er þú að vitna í?  Finst þér skrif þín og Þórðar bera vitni um kurteisi og sangirni í garð viðeigandi aðila?  Þú ert greinilega stuðningsmaður framboðs og ég er ekki viss um að með skrifum þínum sért þú að afla framboðinu fylgis.  Ég er viss um að þú vilt vel, en ég ætla að ráða þér heill, sýndu andstæðingum þínum í pólutík kurteisi, kurteisi kostar ekki neitt.

Guðrún Jónsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 03:31

11 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fyrirgefðu Guðrún það er málfrelsi á Íslandi og stjórnmálaflokkur sem hefur Þegið mútur frá kjölfestufjárfestum, skattpínt almenning, rústað efnahag þjóðarinnar, skapað ójöfnuð á heimsmælikvarða, hlífir glæpamönnum en brýtur mannréttindi á þjóðinni á ekki skilið kurteisi.

Hinsvegar segi ég ekkert í garð Bjarna sem talist getur ókurteysi. Hann sagði að hann væri hlynntur jöfnum tækifærum.

Hvernig getur maður sem hefur rekið fyrirtæki sem hefur gerst sekt um verðsamráð og svik við neytendur talað um jöfn tækifæri?

Hvernig getur forsvarsmaður flokks sem hefur staðið fyrir því setja höft á atvinnuvegi kynnt sig sem talsmann jafnra tækifæra?

Hvernig getur forsvarsmaður flokks sem hefur gefið fámennum hóp manna fiskinn í sjónum talað um jöfn tækifæri?

Hvernig getur forsvarsmaður flokks sem hefur stundað vinaráðningar inn í dómsvaldið talað um jöfn tækifæri?

Ef hugmyndir hans um merkingu orðsins "jöfn tækifæri" tengjast einhverju af því sem ég nefni hér að ofan þá er skilningur hans á orðinu annar en minn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2009 kl. 04:00

12 identicon

Það er svo merkilegt með nýfrjálshyggjudrengina að þeir hafa lengi haft uppi varnir á þessum nótum, þegar þeir réttlættu klíku-ráðningar:

á hann að gjalda þess að vera af fínum ættum?

Erla (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 06:04

13 identicon

Bott blogg hérna og góðar athugasemdir.

Takk fyrir.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 08:58

14 identicon

Sumir tala um "jöfn tækifæri" og "frelsi til athafna" á tyllidögum.  Við höfum fengið strangt námskeið í því í boði Flokksins undanfarin ár. 

Eftir stendur að það sem Bjarni Ben. og áhangendur boða miðast við að viðhalda hér frumskógarlögmálinu þar sem Flokkurinn er eini aðilinn með byssurnar.

Stefnan og fólkið hefur brugðist hjá þessari afsökun fyrir stjórnmálaflokk.

Torfi Hjartarson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 09:07

15 identicon

Þarf yfirnáttúrulegan kraft til að opna bókhald Flokksins aftur í tímann - af ærinni ástæðu.  Ég sem hélt að þetta væri tiltölulega einföld aðgerð.

Torfi Hjartarson (IP-tala skráð) 16.4.2009 kl. 12:36

16 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Svo hjartanlega sammála þér Bíbí.

Alltaf skal það heita öfund og minnimáttarkennd hjá Sjálfgræðgismönnum að vilja jöfnuð í samfélaginu! Ótrúlegt að enn sé sunginn sami söngurinn eftir allt sem á undan er gengið

Rut Sumarliðadóttir, 16.4.2009 kl. 13:38

17 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Engeyjarættin hefur hunsað landslög á Íslandi í 90 ár. 

Bláa mafían lætur ekki að sér hæða

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2009 kl. 19:29

18 Smámynd: Hlédís

Sumt fólk af Engeyjarætt hefur misbeitt aðstöðu sinni í áratugi, en ekki allt. Nær er að tala um Kolkrabbann, samtök valdaðfjölskyldna sem náðu undirtökum í fjármálalífi höfuðborgar og landsins alls á síðustu 60 - 80 árum. Ekki tel ég hægt að álasa BjBen unga fyrir ætterni sitt - en fylgst verður með hvað hann gerir sjálfur. Maðurinn getur tæplega gert að því að Flokks-rakkar skríði meir fyrir honum vegna fjölskyldu hans og Flokks-andstæðingar gagnrýna hann harðar af því hverra manna hann er.

Um JÖFN TÆKIFÆRI hefur Bjarni auda bara lesið sér til

Hlédís, 16.4.2009 kl. 20:10

19 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Tek undir með þér Hlédís Bjarni er bara það sem hann er en lítill reynsla og skilningur hans á kjörum almennings og merkingu orða eins og "jöfn tækifæri" þýðir að ég treysti honum ekki fyrir stjórnmálum. Finnst að hann ætti að finna sér annan vettvang.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2009 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband