Kallar stefnuna langdregið líknarmorð....

Hólmsteinn A Brekkan kalla stefnu Ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna langdregið líknarmorð í pistli sínum í sunnudagsmogganum.

Það er undarlegt ef að almenningur styður stefnu Ríkisstjórnarinnar og verður vart skýrt með öðru en að almenningur skilur ekki að þessi ríkisstjórn vinnur eftir sömu uppskrift og fyrri ríkisstjórnir. Uppskrift sem gengur út á að arðræna almenning.

Ég velti því fyrir mér hvort að almenningur sé í afneitun eða sér fyrir sér verri valkost sem væri ríkisstjórn framsóknar og sjálfstæðisflokks. Ég held að það þurfi einfaldlega að skapa þriðja valkostin sem væri aflið frá fólkinu. Hinum stóra meirihluta þjóðarinnar sem er fórnarlambið í þessu 08nov01mí þessu stríði.

Hólmsteinn segir og ég tek undir það með honum:

Það er í gangi gríðarleg svikamylla sem felst í snarbeyglaðri samsetgningu vísitölu, vísitölu þar sem blandað er saman verðbólgu (e. price index inflation) og krónubólgu (e. monetary inflation) og síðast en ekki síst reikniaðferðum bankanna. Reikniaðferðum sem tryggja bönkunum ofurokurvexti og algert frelsi frá ábyrgri útlánastefnu. Þetta er pólitískt vernduð glæpastarfsemi eins og best sést á framgöngu ríkisstjórnarinnar, bæði sitjandi og fyrirvera hennar.

Ef marka má niðurstöður könnunar sem fjallað er um á MBL þá má ætla að almenningur skilji ekki að það er gengið að honum með skipulagðri glæpastarfsemi sem vernduð er að yfirvöldum.


mbl.is Stuðningur við stjórnina eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heyr, heyr! Það verður að gera eitthvað, hætta að tala og lofa, heldur framkvæma!

Guðríður Haraldsdóttir, 1.6.2009 kl. 21:33

2 Smámynd: Sævar Helgason

Já illa er komið fyrir þjóðinni. Enginn vill lána okkur fjármuni til eins eða neins fyrr en við erum búin að taka ærlega til í okkar efnahafsmálum. Norðurlöndin, Pólland og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eru þau einu sem vilja veita okkur fyrirgreiðslu- en undir handleiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins- Hann hefur auga með okkur fyrir öll hin.

Sjálf kunnum við ekkert með fjármál að fara og enginn treystir okkur til þess. Við erum nú ekki á hærra plani en þetta.... aumust allra

Sævar Helgason, 1.6.2009 kl. 21:49

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já stjórnmálaflokkarnir hafa séð til þess með klíkuráðningum og ranghugmyndum um eigið ágæti að hér er allt að fara til fjandans. Það fer þó ennþá meira til fjandans meðan AGS er með puttana í málunum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.6.2009 kl. 21:52

4 identicon

AGS er innheimtu-stofnun fyrir auðhringi, fá fjármagn hjá skattgreiðendum aðildarlanda til að lána nauðstöddum löndum svo þau geti borgað upp skuldir við auðhringi. Þetta er ekkert annað en skipulögð glæpastarfsemi. Auðvaldsmafíur vesturlanda eru búnar að yfirtaka AGS eins og Alþjóðabankann og aðrar fjármálastofnanir. Við losnum ekki við auðvaldið og forréttindastéttina nema með því að gera alvöru byltingu. Fólk upp til hópa áttar sig ekki á þessu fyrr en seint í haust. Ég ætla að hvíla mig og safna kröftum fyrir veturinn.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 1.6.2009 kl. 23:00

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég tek þátt í henni með þér Viðar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.6.2009 kl. 23:06

6 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Ekki veit ég Bína, hvaða stjórnmálamenn þú getur hugsað þér í ríkisstjórn aðra en þá sem nú eru þar .Nema að þú viljir gamla mynstrið Sjálfstæðisflokk og Framsókn

* Við eigum einfaldlega enga aðra.

* Það er stóra vandamálið.

* Sagt hefur verið, að þjóðin fái þá stjórnmálamenn sem hún á skilið.

Kristbjörn Árnason, 1.6.2009 kl. 23:36

7 Smámynd: Ísleifur Gíslason

Fullveldissinnar stefna á að verða nýtt afl í stjórnmálum.

Viltu lesandi góður gerast félagi í Samtökum Fullveldissinna og vinna gegn þessu rugli?

http://l-listinn.blog.is/blog/l-listinn/entry/887395/

Þeir sem vilja gerast félagar strax geta sent eftirfarandi upplýsingar á:

l.listinn@gmail.com

Nafn:
Kennitala:
Heimilisfang:
Póstnúmer og staður:
Tölvupóstfang og/eða sími:

Nánari Upplýsingar á : http://l-listinn.blog.is/

Ísleifur Gíslason, 2.6.2009 kl. 00:06

8 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ísleifur ætla fullveldissinnar að vera óspilltir. Vinna líka gegn lénsherraveldinu?

Íslenska þjóðin þarf að komast upp úr þessari endalausu þrælkun. Það skiptir ekki máli hvort það eru Íslendingar eða útlendingar sem ræna þjóðina.

Aðalatriðið er að hún sé ekki rænd:

Með því að gefa stóriðjunni orku sem skattgreiðendur fjármagna

Með því að fámennum hóp sé fengið eignarhald á fisknum sem syndir í sjónum

Með því að greiða skatt til ESB sem m.a. fer í að greiða styrki til aðalsmanna og stórfyrirtækja.

Með því að greiða skuldir glæpamanna sem stjórnvöld vernda

Með eignaupptöku vegna verðtryggingar og vaxtaútreikninga

Þeir sem andmæla ofangreindu standa með þjóðinni

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 2.6.2009 kl. 00:54

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Kristbjörn ég er ekki sammála því að þjóðin fái þá stjórnmálamenn sem hún á skilið.

Þegar búið er að yfirtaka fjölmiðla og áróðurinn er óvæginn og gengdarlaus eins og hann er hér auk þess sem stjórnmálamenn hanga eins og hundur á roði á stjórnarskrá sem er ekki samboðin nokkru lýðræðisríki fær þjóðin ekki þá stjórnmálamenn sem hún á skilið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 2.6.2009 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband