Stjórnvöld samdauna lágkúrunni

Hallærið á Íslandi er afsprengi lákúru í stjórnmálum og embættismannakerfi. Eva Joly hefur engöngu fengið innsýn í lítinn kima stjórnsýslunnar og henni er svo ofboðið að hún treystir sér ekki til þess að leggja nafn sitt við vinnubrögðin.

Valtýr Sigurðson hunsar fagmennsku og landslög með því að víkja ekki þegar augljóst er að hann er vanhæfur í embætti saksóknara. Hroki hans samsvarar hroka víða í stjórnmálum og stjórnsýslu þar sem menn glotta nú framan í almenning og halda uppteknum hætti.

Ef Eva Joly neitar samvinnu vegna veru Valtýs í embætti saksóknara mun það eina úrræði okkar að mæta niður á Austurvöll og bjóða honum sömu trakteringar og Davíð Oddsyni.


mbl.is Ein mikilvægasta rannsóknin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Jakobína

Mál Valtýs segir ansi margt um ástandið. Það er eins og maður sé að upplifa 1984.

þetta vanhæfi Valtýs kom í fréttir fjlótlega eftir hrunið. þar sem hann og Bogi Nílsson áttu að leita að rökstuddum grun um að brot hefður verið framinn í aðdraganda hrunsins. T.d. þessi frétt vakti gríðarlega sterk viðbrögð almennings (sjá allar bloggfærslurnar).

Fréttin endar á 

 Aðspurður vísaði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra á þá Valtý og Boga. Engum væru reglur um vanhæfi betur kunnar en þeim. „...þeir eiga sjálfir síðasta orðið um hæfi sitt eða vanhæfi og treysti ég dómgreind þeirra óskorað í því efni,“ sagði Björn.

í Siðuðu land hefði Dómsmálaráðherra sem lætur svona vitleysu út sér þurft að víkja.  Ég held að hann hafi aldrey verið látinn svara fyrir þessi ummæli.

Þessi máttlausa frétt  með fyrirsögninni "Á gráu svæði: Skiptar skoðanir um hæfi saksóknara sem skoða hrunið". Það blasti við öllum að sem er ekki voru búnir á hlýðninámskeiði blaðamanna að það var ekkert grátt þarna, bara kolsvart.

Allt þetta vakti að sjálfsögðu enga undrun eða hneykslan hjá stjórnmála- og menntaelítunni í landinu (ég Held að Atli Gísla sé eini þingmaðurinn sem fjallaði um þetta gagnrýnið).  Reyndar urðu nokkrir mjög hneykslaðir yfir persónulegum árásum á þessa sómamenn.

þetta vakti aftur á móti hneykslan og reiði hjá okkur skrílnum sem skiljum ekki æðri rök valdhafana. Björn þurfti að bakka með það að þeir skoðuðu hrunið vegna reiði almennings og embætti sérstaks saksóknara var stofnað í kjölfarið (minnir mig). En það fylgdi engin umræða um hæfi Valtýs sem ríkissaksóknara. Ég finn hana ekki í fljótu bragði með því að googla og ég man heldur ekki eftir að slík umræða hafi átt sér stað. Enda eru fréttamenn þessa lands svo vel þjálfaðir í undirgefni að þeim dettur aldrey í hug að gagnrýna neitt fyrr enn en einhver bendir þeim á það. Það gæti þó verið að Atli Gísla hafi talað um þetta. ég á eftir að kanna það.

þetta segir ansi margt um ástandið sérstaklega meðal stjórnmálaelítunnar og blaðamanna. það var engin gagríni menn sögðu bara já og amen ef ráðherra  eða einhver svokallaður sérfræðingur opnaði munnin.

Þetta hefur ekkert breyst. 

Benedikt G. Ófeigsson (IP-tala skráð) 11.6.2009 kl. 01:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband