Samfylkingin, ESB og misnotkun hugtaka

Í stað þess að leggjast yfir vandamálið sem skapaðist í kjölfar bankshrunsins og reyna að leysa það á grundvelli jafnræðis og réttlætis ákvað Brusselvaldið í samvinnu við samfylkingu að nota vandamálið til þess að þvinga Íslendinga inn í Evrópusambandið.

Þannig sé ég þetta mál.

Ferli þessa máls hefur verið óeðlilegt á öllum stigum þess og þakka ég Elvíru fyrir hennar innlegg í umræðuna um það hvað varðar lög og stefnu Evrópusambandsins.

Það er ein setning sem höfð er eftir henni sem ég vil leggja sérstaka athygli á:

Mendez lítur málið alvarlegum augum og telur að ef samningurinn nái fram að ganga muni það setja löggjöfina um innri markaðinn í uppnám, enda muni það ala á tortryggni ríkja í millum ef málalyktir fjármálahruns geti orðið þær að almenningur þurfi að borga brúsann.

Áróðurinn í fjölmiðlum og af hálfu stjórnvalda hefur verið slíkur að það er búið að slíta úr samhengi ýmsa mikilvæga þætti sem almennt er viðurkennt innan fræðaheimsins að hangi saman.

T.d.

Svik--> vantraust

Áhrif--> ábyrgð

Völd--> ábyrgð

Leynd--> trúnaðarbrestur

Sök--> refsing

Sakleysi--> engin refsing

Glannaskapur--> meira tap

Varúð--> minna tap

Samfylkingin, Hollendingar og Bretar ásamt Brusselvaldinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hefur tekist að telja íslenskum almenningi trú um að það sé eðlilegt að SAKLAUSIR taki á sig tap, ábyrgð og refsingu meðan SEKIR, þ.e. stjórnmálamenn, embættismenn og glæpamenn lifi áfram við sömu kjör og þeir hafa haft og sleppi við ábyrgð, tap og refsingu.

það er algjörlega úr tengslum við allt sem ég þekki (en ég er með meistaragráðu í viðskiptafræði M.sc) að þeir sem taka áhættu með því að eiga í viðskiptum (viðskiptavinir Icesave) tapi engu en aðilar sem vissu ekki einu sinni um þessi viðskipti (Íslendskur almenningur) og tóku enga áhættu (þeim vitanlega) skuli eiga að taka á sig tapið.

Auðvitað er hættulegt að vera með illa menntað fólk í ríkissjórn.

Þetta kallast siðrof og leiðir til hnignunar samfélagsins


mbl.is Misbýður umgjörðin um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Vá, hvað þetta er geðhreinsandi lesning! Ég verð bara að segja þér það einu sinni enn hvað þú ert frábær! Miðað við hvernig þú skrifar þá sé ég það fyrir mér að þegar þú rekur nagla á kaf þá gerir þú það aðeins í einu fumlausu hamarshöggi! Vona að þú skiljir hólið þó það kunni að virðast langsótt við fyrstu sýn

Rakel Sigurgeirsdóttir, 16.7.2009 kl. 02:09

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þvinga okkur inn í ESB? Af hverju? Hver er tilgangurinn?

Af hverju gátum við ekki sótt um á eðlilegum forsendum?

Eins og þú veist Jakobína þá hef ég sömu menntun og þú en get engan vegin skilið þessa atburðarás og eftirleik hennar. Allt sem ég hef lært og numið í stjórnunar- og stefnumótunarfræðunum er samkvæmt atburðarásinni handónýtt og einskis virði.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 16.7.2009 kl. 02:25

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Með þankarna hjá Émile Durkheim, verð ég að játa að með umsókn um ESB hefur orðið "siðrof" milli Ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og stórs hluta þjóðarinnar, þess hluta sem elskar Ísland og það sem Ísland stendur fyrir. "Anomie" sem þetta fyrirbæri eða framhvarf frá fylgni megingilda, er það sem gerðist í dag. Þjóðinni var sagt: Gildi ykkar og forfeðra ykkar, þjóðartáknin, sameiningartáknin eru ekki gild lengur. Við tökum okkur ný tánkn og gildi. Hið gamla er ekki lengur.

Ríkisstjórnin með ESB samþykkt sinni hefur gengið á skjön við þjóðríkið Ísland, tákn, menningu og vill samsteuypa þessu öllu undir einn fjölþjóðlegan stimpil þar sem ekki stendur steinn yfir steini.

Baldur Gautur Baldursson, 16.7.2009 kl. 15:54

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Jakobína.

Siðrof, já það er orðið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.7.2009 kl. 19:57

5 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Takk Jakobína fyrir þessa góðu færslu. Þetta verður eitthvað svo einfalt og skiljanlegt hjá þér Auðvitað á almenningur ekki að borga fyrir allt sukkið. Það kallast einfaldlega óréttlæti og við viljum réttlátt þjóðfélag.

Helga Þórðardóttir, 16.7.2009 kl. 23:58

6 identicon

Takk fyrir góðan pistil - önnur sýn á pilsfaldakapítalistann, hagnaðurinn er okkar, tapið er ykkar; þetta láta stjórnvöld ganga yfir almenning í hinum vestræna heimi sem aldrei fyrr nú um daga.

sr (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband