Gefa þau skít í Ísland?

Það hefur verið athyglisvert að horfa upp á hvernig fólk sem komið er yfir sextugt, fékk fasteignir sínar nánast gefins og er almennt búið að koma sér fyrir í lífinu við kjöraðstæður vill fórna ungviði þessarar þjóðar til þess að leysa úr klúðri sem það hefur komið þjóðarbúinu í með gengdarlausri sjálfhverfni sinni.

Stjórnarfar á Íslandi hefur þróast út í það sem kallað er kleptokrati og jaðrar við fasisma. Valdhafarnir hafa gert sjálfa sig af forréttindastétt sem ekki þurfa að fara að lögum eða virða stjórnarskrá. Mannréttindabrot eru viðurkennd sem hið viðtekna ef það þjónar valdhafanum.

Nú er komið að því að samfylkingin berji það í gegn að komandi kynslóðir taki á sig syndir feðranna.

Samfylkingin hafði umsjá með bankamálunum í aðdraganda bankahrunsins og ber við heimsku þegar hún er rukkuð um skýringar á vanburðum sínum við að takmarka skaðann af þeirri samtvinnun embættisfærslna og glæpastarfsemi sem átti sér stað í umsjá samfylkingar.

Nú á að koma glæpnum yfir á börnin

Fjármálaráðherrann fullyrðir að hann beri ábyrgð á samningum við Breta og Hollendinga.

Fjármálaráðherrann lofar glæsilegri niðurstöðu í Icesave-samningnum

Nú þegar ljóst er orðið þvílíka hörmung Svavar Gestsson snéri með heim í farteskinu ætlar þá fjármálaráðherrann að axla ábyrgð?


mbl.is Icesave afgreitt úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkisstjórnin eru í afargóðum málum og Jóhanna líka. Okkur er hótað daglega. Nefninlega því að ef þegnar þessa lands beygja sig ekki og bukta; ef þeir hylla ekki daglega hina frábæru og einlægu -  og opinskáu - jafnaðarmenn sem SamFylkingarmenn eru og kjósa þá áfram - þá fáum við yfir okkur hægri menn aftur sem taka þá við þar sem frá var horfið.

Þetta er nú mín sýn á þetta klóka samstarf innan fjórflokksins sem miðar að því að "besta" afkomu og lifi-standard sinna þingmanna, einkavina, stuðningsaðila hvers flokks innan lands og utan, fjölskyldumeðlima og fl. og fl. og fl. á hinum ýmsu sviðum mannlífsins. Brauðmolarnir detta af gnæktarborði hinnar nýju elítu Íslands.

Hvernig í ósköpunum Jakóbína dettur þér í hug að gera þær óraunhæfu kröfur sem þú gerir, margítrekað,  meðan þetta heljartak - hreðjatak - er á þjóðinni ? Take a brake ! þjóðinni til heilla.

Þú mátt til með að sýna þessum gerspilltu einstaklingum þó ekki væri nema örlítinn skilning og biðlund, í stað alls þessa æsings sem þú opinberar hér.

Ábekkingurinn (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 16:59

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Humm æsingur. Já fjórflokkurinn er samur við sig.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 25.8.2009 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband