Flott hjá Ögmundi: Bretar og Hollendingar þurfa að fá skýr skilaboð

Í heilt ár hef ég öskrað á þessu bloggi og spurt hvers vegna Íslendingar fari ekki í erlenda fjölmiðla og tali mannamál.

Íslendingar eru ekki í diplómatískum viðræðum við Breta og Hollendinga heldur hafa Bresk og Hollensk yfirvöld sagt þjóðinni stríð á hendur.

Þessu þarf að svara með mótþróa og þá meina ég alvöru mótþróa sem felur í sér að þora að taka áhættu en ekki þrælslund. Við komumst ekkert áfram ef við látum hræðsluna buga okkur. Við erum að berjast fyrir Íslenskri þjóðmenningu. Sjá hér


mbl.is Segir Breta og Hollendinga fjárkúga Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Álit mitt á ögmundi hefur hækkað alveg rosalega eftir að hann sagði sig úr ríkisstjórn.

Geir (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 22:19

2 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    lega sammála Ingunn !

    Við eigum að rétta "blessuðum" bretunum fingurinn , og vera stoltir af því , þeir eru marg marg sinnis búnir að vinna sér inn fyrir slíkri kurteisi .

Hörður B Hjartarson, 2.10.2009 kl. 22:21

3 identicon

Sammála, Ögmundur er maður að meiri.  Vonandi að þingmenn  gefi sitt atkvæði eftir eigin innsæi!! Þeirra er skyldan að fara eftir því hvað þeir telja best fyrir þjóðina. Ekki spyrja ,,hve hátt" þegar formenn segja hoppaðu!!

inga (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 22:25

4 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Ég er sammála að það þarf að tala við Breta og Hollendinga umbúðalaust en það hefur nú lítil áhrif á þá.  Þeir segja bara "so what" og snúa sér að sínum aðalmálum sem er alls ekki Icesave.

Andri Geir Arinbjarnarson, 2.10.2009 kl. 22:44

5 identicon

það var komin tími til aðeinhver sem skiptir máli segði eitthvað. Það væri gott að Fjármálaráðherrann væri ekki gunga og drusla(Tekið úr ræðu á Alþingi)Samfó vill selja alla þjóðina í  þrældóm til að geta komið sér í feit embætti í Brussel .Þeim er nokk sama um restina af þjóðinni

Sigurbjörn Kjartansson (IP-tala skráð) 2.10.2009 kl. 23:35

6 Smámynd: Benedikt Gunnar Ófeigsson

Ögmundur hefur iðað eins og ofvirkur krakki allan tíman síðan hann settist í ráðherrastól. Stundum hefur hann misst sig og hreyt einhverju út úr sér um AGS. Nú er hann frjáls og er fljótur að nota tækifærið og úttala sig um málið við BBC.

Er ekki eitthvað athugavert við þá möntru að ráðherrar sýni ábyrgð ef þeir þegja og hlýða? Þessi hugmyndafræði hentar að minnsta kosti óþægilega vel því einræði flokksformanna sem hefur verið við líði í ríkistjórnum Íslands undanfarana áratugi.

Benedikt Gunnar Ófeigsson, 3.10.2009 kl. 00:38

7 identicon

 

Kaus hann 

En nú er hann búinn að missa niður um sig. 

Segir þjóðinni að hún sé svo vesöl að hún ráði ekki við þetta.

Orðinn sami lýðskrumarinn og ÞórSaari og hinir Framsóknarmennirnir. 

En vel á minnst.  Af hverju skyldi Ögmundur hafa boðað Sigmund og Höskuld niður í Stjórnarráð á sama tíma og hann var að tala við Jóhönnu. 

Þeir komu til að hitta Ögmund en ekki Jóhönnu - með tveggja mánaða gamla frétt

Spyrjið að því.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 01:08

8 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jón átt þú ekki að vera sofnaður

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.10.2009 kl. 02:17

9 identicon

Sumir eru bara næturbloggarar rétt eins og Össur og Ömmi. 

Þeir geta ekki viðurkennt að til sé önnur hlið á málum en fréttamenn og fleiri halda fram.

Spyrjið spurninga.   Þið eruð ekki þess umkomin að hafa svör við öllu.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 09:11

10 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Þeir hafa ólíkt að Svika-Móri og Ögmundur flotti.

Sigurður Þórðarson, 3.10.2009 kl. 10:55

11 Smámynd: Gerður Pálma

Það er ENGINN, eða allavega ekki sjáanlegur, þrýstingur eða almennur áhugi á ICESAVE lausnum. Ef almenningur vissi um þessa ósanngjörnu samninga þá myndi hann standa með Íslendingum, þetta er allt pólitík eingöngu. Ef Íslendingar myndu bjóða Bretum og Hollendingum að jafna skuldinni á íbúa allra 3ja landanna væri lausnin viðráðanleg. Breska og Hollennska  ríkisstjórnin  er siðferðislega ekki síður ábyrgir en Íslenska ríkisstjórnin.  Íslenska ríkisstjórnin hefur þá afsökun að hún er viðvaningur í málum sem þessum, Bretar og Hollendingar hafa hundruða ára reynslu í að verða sér úti um peninga og verðmæti, margar vafasamar aðferðir til þeirra aðfanga hafa fyrnst, en veldi þeirra í dag byggist á því, og er kallað royalty.   Bretar og Hollendingar hafa öll tæki til þess að finna ´týnda´ICESAVE fjármagnið, við ekki.   Gerum nýjan samninga byggðan á höfðatölum þar sem ´fundið fé ´ verður  dregið frá höfuðstólnum þegar/ef það kemur fram.

Gerður Pálma, 3.10.2009 kl. 11:17

12 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæl Gerður.

Það er í raun undarlegt að menn skuli láta sér detta í hug að semja um Icesave áður en búið er að rannsaka Landsbankann og skoða hvert þessir fjármunir streymdu.

Það hvernig reynt er að hraða málinu er í raun mjög tortryggilegt.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.10.2009 kl. 14:24

13 identicon

Sæl - það er ekki bara Landsbankavíkinga sem þarf að skoða - heldur líka Kaupþingsvíkingana. Af hverju skyldi einn sem var í Kaupþing og svo í Skilanefndinni og fékk 416 millur í kúlulán sem var svo fellt niður - afhverju er nýja húsið hans komið á nafnið hans tengdapabba???  Ekki er það afþví að hann sé hræddur um að hafa gert eitthvað sem ekki átti að gera - eða er það?

Afhverju er ekki hægt að láta þá að minnsta kosti greiða til baka arðinn af hlutabréfunum sem þeir fengu - var það ekki um 25 milljónir? Sem er ca 13 ára brúttó árslaun verkamanns.

Afhverju er ekki hægt að frysta eignir þessara - sem sumir myndu kalla skúrka?´Ég bara spyr - en nei ónei - við sem erum vinnuhjú við eigum að fara að borga fyrir þessa útrásarvíkinga.  Sveiattann sk.....

Ella (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband