Steingrímur vísar enn í leyndarmál

Ekki gerur fjármálaráðherran fært rök fyrir sínu máli heldur vísar hann til skýrslu sem frestað er í hvert skipti sem stendur til að birta hana og gefur þar með færi á áframhaldandi dylgjum í stað raka.

Ekkert í þessari skýrslu mun sannfæra mig um að börnin mín hafi kallað Icesave yfir þjóðina.

Sú staðreynd liggur einfaldlega fyrir að enginn embættismaður og enginn stjórnmálamaður hafði umboð til þess að skuldbinda þjóðina. 


mbl.is Dómstólaleiðin varhugaverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Víkingsson

Það er málið. Ef einhver stjórnmálamaður hefur tekið að sér að skuldbinda þjóðina án fyrirvara um samþykkt laga þar um, þá er sá maður í vondum málum myndi maður halda. Það hefur enginn rétt til að gera samninga fyrir hönd ríkisins nema fjárútlát rúmist innan heimilda í fjárlögum, eða með fyrirvara um að slíkrar heimldar verði aflað með lagasetningu.

Skúli Víkingsson, 2.2.2010 kl. 14:25

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ég treysti því enn að Steingrímur sé ærlegur maður og hafi ríkar ástæður fyrir orðum sínum og athöfnum. Það merkir samt ekki að ég sé alltaf sammála. Bara að ég tel hann strangheiðarlegan og fölskvalausan stjórnmálamann.  Þetta vantraust er óverðskuldað.  Við hljótum að skilja að opin stjórnsýsla þýðir ekki að allar ákvarðanir og viðræður eða vitneskja ráðamanna eigi að vera opin og aðgengileg fyrir almenning. Sumt er bara þess eðlis.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.2.2010 kl. 14:47

3 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Þurfum við óvini þegar okkar eigin Fjármálaráðherra talar niður réttindi okkar? Mér er slétt sama hver sagði hvað eða hvernig . Staðreyndin er sú að það var í umdæmi Hollendinga og Breta að yfirsjá útibúin í þeirra löndum. Hvort sem afglöp eða glæpir áttu sér stað af okkar embættismönnum eða ekki.

Glæpir annarra gera skuldina ekki okkar! Lágmark er að við fáum dómsniðurstöðu í stað þess að takast þessar byrgðar á herðar eins og ótýndir glæpamenn.

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 2.2.2010 kl. 15:15

4 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Steingrímur er búin að tappa bæði vitinu og ærunni í þessu máli.

Ef það var logið að Holendingunum þá ætti ekki að vera flókið að benda á gögn sem styðja það. Ef þau gögn eru ekki til sem ég tel líklegt þá var aldrei logið að Hollendinginum heldur eru þeir einfaldlega að kasta skít til að breiða yfir eigin vanhæfi. Steingrímur J lætur sig dreyma um einhverja uppreisn æru og að einhverstaðar sé til upptaka eða undirritaður bleðill frá Jónasi eða DO þar sem þeir ljúga, en á meðan svo er ekki þá er kaldur raunveruleikin bara sá að hann er með drulluna svo langt upp á bak að það ætti engin heilvita maður að koma nálægt honum.

Guðmundur Jónsson, 2.2.2010 kl. 15:26

5 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Þessi endalausu leyndarmál, sem koma í veg fyrir að við "almúginn" getum tekið myndað okkur upplýsta og íhugaða skoðun  er óþolandi staða.

Flokkast undir "fullkomið virðingaleysi" að ekki sé minnst á sífelldan drátt á grátskýrslunni.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 2.2.2010 kl. 15:45

6 identicon

2.2. kl2010 15;15

Jóhannes Laxdal Baldvinsson. Citat: "Við hljótum að skilja að opin stjórnskýrsla þýðir ekki að allar ákvarðanir og viðræður eða vitneskja eigi að vera opin og að gengileg fyrir "almenning". SUMT ER ÞANNIG EÐLIS.  Ein lítil spurning til þín: Hvar færð þú þá openberun að Steingrímur J. Sigfússon sé fölskvalaus og strangheiðarlegur stjórnmálamaður. Gefðu mér bara eitt lítið dæmi, t.d. Hans heimilisföng hvað eru þau mörg? o.s.frv.

Jóhanna (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 16:30

7 identicon

... og Jóhannes. "sumt er þannig eðlis" -- sumt hvað? Hver skilgreinir það í lýðræðisþjóðfélagi og lýðurinn veit ekki af því?

Rósa (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 16:40

8 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála Rósa það á ekkert að vera þess eðlis að það megi ekki koma fram sérstaklega þegar ástandið er svo alvarlegt hjá okkar þjóð sem stefnir rakleitt í gjaldþrot!

Sigurður Haraldsson, 2.2.2010 kl. 16:58

9 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Jóhanna, ég er búinn að fylgjast með Steingrími allan hans pólitíska feril og veit ekki annað en hann sé sé heiðarlegur. Ef þú veist betur þá er sjálfsagt að það komi fram.

Rósa, ég gæti nefnt allt sem viðkemur öryggi og vörnum landsins ásamt með persónulegum samtölum ráðherra við erlenda ráðamenn.  Jakobína getur ábyggilega  gefið tæmandi yfirlit yfir það sem undanskilið er frá opinni stjórnsýslu

Það sem ég þoli ekki eru ósanngjarnar árásir á ráðherra eins og Steingrím sem leggja sig 100% í að starfa af heilindum fyrir land og þjóð. Okkur getur greint á um leiðir en mér finnast lítilmótlegar þessar persónulegu árásir og dylgjur. Viljið þið kannski kalla yfir ykkur glæpahyski sjálfstæðisflokks og framsóknar?  Þá fyrst væri ástæða til að flýja land eða skjóta sig

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.2.2010 kl. 19:46

10 identicon

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 2.2.kl.19;46

Ég ætla ekki að fara að rökræða við þig 100% vinnunna hans Steingríms eða hans pótintáta.  En ég get sagt þer það ef ég væri með þetta fólk í vinnu hjá mínu fyrirtæki, þá væri ég búin að reka það í burtu með skít og skömm. Og engin meðmæli fengi það frá mér, ónei.  Ásakanir sem koma nú fram á þetta fólk, eiga fullan rétt á sér.  það lýgur einn daginn úr, og annan í.  Enginn, ég segi engin trúir þessu fólki lengur .  Hvorki þeirra orðum, hvað þá gerðum.  Veistu um einhvern bankastjóra sem er trúað af almenning með fimmeyring á milli húsa?  ekki ég...

Jóhanna (IP-tala skráð) 2.2.2010 kl. 22:09

11 identicon

Bið fólk að hugsa málið úr hinni áttinni.  Ef bretar hefðu opnað banka á Íslandi og tekið ómætl saparifé okkar og flutt til Bretlands og lánað í snekkjur og önnur fínheit. 

Svo hefði bankinn farið á hausinn.  Hvað hefðu Íslendingar gert þá?

Ögmundur Jónasson og hinn Framsóknarmaðurinn, Sigmundur Davíð, og svo Bjarni Ben og Indefence liðið gengju núna erinda Breta um að þeir þyrftu ekki að borga okkur neitt nema lágamarkið ef nokku.  Þeir væru þá fullkomlega samkvæmir sjálfum sér og notuðu sömu rök og í Icsave málinu.

Hverjir væru þá landráðamenn?

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 3.2.2010 kl. 00:25

12 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Jón Óskarson ef breskir og hollenskir glæpamenn koma til Íslands og opna banka verða þeir sem eru nógu vitlausir til þess að treysta þeim að sitja uppi með skaðann. Ekki ætlast ég til þess að bresk og hollensk börn þurfi að ganga í skuldaánauð til þess að gjalda fyrir glópsku mína ef ég á viðskipti við breska eða hollenks glæpamenn.

Ég get nefnt sem dæmi að erlendir vogunarsjóðir kipptu fótunum undan krónunni en ég hef ekki heyrt nefnt að landar viðkomandi eigi að sitja uppi með þann skaða. 

Hvað þá skaðann sem Gordon Brown olli með setningu hriðjuverkalaganna.

Stóra spurningin er auðvitað hvers vegna setti Gordon Brown hriðjuverkalögin og af hverju brást Geir Harde við því eins og hann hefði gert í ..., þ.e. faldi sig úti í horni og fékk sér lífverði í stað þess að bregðast við því af hörku.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.2.2010 kl. 01:34

13 Smámynd: Sigurður Haraldsson

HVAR ERU ICESAVE PENINGARNIR GETUR EINHVER SVARAÐ ÞVÍ?

Sigurður Haraldsson, 3.2.2010 kl. 01:53

14 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ekki hjá mér

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.2.2010 kl. 02:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband