Leggst sífellt í dróma

Umræðan beinist sífellt að aðgerðum sem fjötra samfélagið í aðgerðaleysi og stöðnun. Áhyggjur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins beinast að aðgerðum sem tryggja yfirráð fjarmálakerfisins sem lúrir á fjármagninu eins og ormur á gulli.

Hugmyndafræði AGS byggir á því að fjármálakerfið lifi sjálfstæðu lífi. Að fjármálakerfið skuli bólgna út og vera feitt. Náttúruauðlindir eru í hugmyndafræði réttmætt skotmark alþjóðafyrirtækja sem vilja ná verðmætasköpuninni úr landinu og færa hana í hendur aðalsins.

Fjármálakerfi er ekki í sjálfu sér verðmætaaukandi. Verðmætin verða til við umbreytingu auðlinda. Með því að nýta þekkingu og mannauð verður óbeisluð náttúra og kraftur mannsins að söluvöru sem aflar tekna og bætir mannlífið. Með því að selja auðlindir og gera fjármálakerfið að blóðsugu á landsmönnum er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að dæma komandi kynslóðum döpur örlög. 

Núverandi ráðamenn á Íslandi eru sjóðnum auðveldur leiksoppur. Flugfreyjan og jarðfræðingurinn trúa í sakleysi sínu á kenningar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Líta á sig sem bjargvætti þjóðarinnar og að björgunaraðgerðirnar felist í því að gera Íslendinga að skattgreiðendum í Bretlandi og Hollandi. Að færa auðlindirnar í hendur erlendra fjárglæframanna. Að innheimta ólöglegar álögur á skuldara. Að hækka skattaálögur. Að brjóta niður velferðakerfið. 

Kenningarnar eru fullar þversagna. Gjaldeyrisvaraforði Íslands hefur aldrei verið eins sterkur og hann er nú en samt sem áður telja ráðamenn nauðsynlegt að afsala valdi til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með gengdarlausum lántökum og skuldsetningu ríkissjóðs.

imf090529_1008590.jpg

 Hér er ágæt grein um vandann og ég vek einnig athyglii á ágætum pistlum hér og hér


mbl.is Útilokar ekki skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ég ætla að ráða sjálfanmig sem ráðgefanda fyrir heimili mitt og krefst þess að fá 750þ. á mánuði.

Ef heimilið getur ekki greitt fer ég bara í ríkisvasann.... er það ekki lenskan???

Óskar Guðmundsson, 13.7.2010 kl. 13:46

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ég held þau vilji bara endurreisa gamla kerfið, sem þau eru hluti af. Þau vilja ekki reisa hér nýtt þjóðfélag. Hagsmunir stjórnmálaelítunnar eru tryggðir með margföldum eftirlaunum og innganga í ESB tryggir þeirra hagsmuni áfram. VG hafa verið á fleygiferð í hagsmunapoti og að tryggja pólitísk ítök í kerfinu því þau vita að endalokin nálgast fyrir þeirra ríkisstjórnarþáttöku og það verður langt þar til þau fá annað tækifæri. Svo rækilega hefur Steingrímur brugðist

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.7.2010 kl. 13:49

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Vissulega hefur Steingrímur brugðist. Össur Skarphéðinsson og hans nánasta fylgdarlið hefur líka "hidden agenda". Það er eiginlega skelfilegt að horfa upp á það hvernig maðurinn hangir eins og slím á þjóðarbúinu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.7.2010 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband