Vangeta afhjúpast í kreppu

Ég ber mikla virðingu fyrir menntun, þekkingu og hæfni. Ég treysti til dæmis fáum betur til þess að leiðbeina mér og þjóna í flugvél en Jóhönnu Sigurðardóttur. Steingrímur J. Sigfússon gæti trúlega undir góðri handleiðslu reyndra manna rannsakað setlög eða annað það sem heyrir undir jarðvísindin. Össuri Skarphéðinssyni myndi trúlega farnast ágætlega í rækjueldi eða rannsóknum á kynlífi fiska.

Margir hafa viljað halda því fram að almenningur væri hatursfullur eða reiður þegar hann gagnrýnir stjórnmála-, embættis- eða bankamenn. Ég tel að þetta sé megn misskilningur. Almenningur er öðru fremur ráðvilltur yfir rænuleysi embættis- og stjórnmálamanna og jafnvel ennfremur skeytingaleysi og glæpahneigð bankamanna.

Atburðirnir haustið 2008 afhjúpuðu vangetu og rænuleysi stjórnmálamanna. Dýralæknirinn sem átti að þjóna fjármálaráðuneytinu virðist hvorki hafa skilið tölur né haft skynbragð á einföldustu hagfræði.

Lögfræðingar í ráðuneytum og bönkum höfðu annað hvort ekki rænu, vilja eða vitsmuni til þess að bregðast við gengdarlausum ólöglegum útlánum.

Í utanríkisráðuneytinu virðist annað hvort hafa skort þekkingu, vilja eða dug til þess að hanna fjármálakerfi sem sér við fjárdrætti. Hvorki sagnfræðingurinn né fiskeldisfræðingurinn sáu við því. Tugir milljóna lentu því í vasa starfsmanns sem ekki virðist hafa búið yfir betra siðferði en bankastjórarnir. Stjórnendur ráðuneytisins virðast þó ekki vera farnir að velta því fyrir sér hvort þeir eigi ekki að fara að leita sér að starfið sem þeir ráða við.

Vangetan afhjúpast í kreppu 

Áður en maskínurnar hrundu mallaði vangetan undir yfirborðinu og almenningur stóð í þeirri trú að stjórnmálamennirnir hefðu skynbragð á því sem þeir voru að gera. Dómgreindarleysi og skortur á siðferði réði eigi að síður ferð. Þessir ágallar manna eru afsprengi þess að þeir taka að sér verkefni sem þeir hafa ekki þekkingu og þjálfum til þess að takast á við.

Sjálfstæðismenn hafa átt erfitt með að átta sig á því að þeir sköpuðu þá ringulreið sem ríkir í samfálaginu í dag. Í ábyrgðarleysi sínu og örvinglan benda þeir sífellt á jarðfræðinginn, flugfreyjuna og fiskeldisfræðinginn sem sökudólga óreiðunnar. Örvinglan sjálfstæðisforystunnar stafar ekki af iðrun heldur þörf þeirra til þess að halda uppi áframhaldandi niðurrifi samfélagsins og fróa græðgihneigðum sínum. Jarðfræðingurinn, flugfreyjan og fiskeldisfræðingurinn vita ekki sitt rjúkandi ráð í ringulreiðinni. Þau hafa tekið að sér verkefni sem þau hafa hvorki getu, siðferðisþrek né þekkingu til þess að takast á við. Almenningur,  hann er nánast ráðþrota.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Thú undanskilur Framsóknarflokkinn.  Halldór Ásgrímsson flokksmadur Framsóknarflokksins ásamd studningi Sjálfstaedisflokksins kom á kvótakerfinu.  Thad var gert í annarlegum tilgangi.  Thetta var upphafid ad sidferdilegu hruni thjódarinnar.  Íslenskur almenningur í heimsku sinni kaus aftur og aftur D og B thrátt fyrir sidlaust kvótakerfid sem er öllum landsmönnum óhagstaett.  NAUTHEIMSKUR almenningurinn (kjósendur D og B) eiga sök á thví hvernig ástandid er, ásamt D og B.

Hvada virdingu heldurdu ad stjórnmálamenn geti borid fyrir nautheimskri thjód sem aftur og aftur kýs gegn hagsmunum sínum?  Thjódin hvatti gerspillta stjórnmálamenn til thess ad raena sig og spilltir stjórnmálamenn Sjálfstaedisflokks og Framsóknarflokks létu ekki segja sér thad tvisvar...heldur hrifsudu audlindirnar og bankana og skiptum theim á milli sín.  Menntud thjód....já kannski ....en svo #¤%&"# heimsk.

Ekki bara (IP-tala skráð) 17.7.2010 kl. 08:19

2 identicon

Það er ein leið út úr ógöngunum og hún er að fella fjórflokkinn. Fella Þursinn.  Í næstu kosningum.

Þegar á reynir stendur hann þétt saman. Þess á milli er settur upp farsi til að afvegaleiða og blekkja almenna borgara. Dæmi er skotgrafarhernaðurinn þar sem bitrir einstaklingar beggja vegna munnhöggvast um mál sem engu skipta.

Kjósendur verða að sjá í gegnum þetta áður en gengið er framan af bjargbrúninni aftur.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 17.7.2010 kl. 13:33

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Góð grein hjá þér Jakobína. Lokaorðin eru mjög sterk svo eru þessi orð stingandi: „almenningur stóð í þeirri trú að stjórnmálamennirnir hefðu skynbragð á því sem þeir voru að gera.“Myndin er náttúrulega snilld!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 18.7.2010 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband