Þæga hjörð sem lætur teymast í ógöngur

Þegar ég sat á flokkráðsfundi Vinstri grænna í fyrra mátti sjá klapp dírigenta úti í sal sem stýrðu lófaklappi við ræðu formanns flokksins. Lilja

Hjörð

 Mósesdóttir segir nú:

"Stjórnarflokkar líkjast meir og meir gömlu kommunistaflokkunum eftir því sem gagnrýnin á forystuna eykst bæði innan og utan þeirra. Fundir verða að hátíðarsamkomum til að hylla leiðtogana og hjörðin er rekin á bás til að klappa og greiða atkvæði í samræmi við vilja leiðtoganna. Kjósendur horfa agndofa á leiksýninguna og öskra á uppstokkun en ekkert mun gerast fyrr en boðað verður til kosninga.“

 Ég hef velt því fyrir mér hvers vegna hlutirnir eru svona inni í flokkunum. Foringjarnir velja í kring um sig viðhlæjendur. Ungt fólk og óharðnað á mestan möguleika á frama. Hvers vegna? Jú foringinn velur sér hirð fólks sem hann getur mótað og haft í strengjum. Hann vill ekki andóf. Hann vill þæga hjörð sem hann getur teymt með sér út í ógöngurnar.

Mynd-1_crop-minni lítil númer

 

Flokksræðið er því eitur fyrir samfélagið.

Persónukjör er ágæt lausn á þessum vanda.  


mbl.is Líkjast kommúnistaflokkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér Jakobína, hvenær ætlar fólk að opna augun fyrir því að mesta gæfan er fólgin í því að hafa hag almennings að leiðarljósi, ekki bara sínum eigin rassi.  það dæmi gengur aldrei upp. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2010 kl. 18:31

2 Smámynd: hilmar  jónsson

(Þegar ég sat á flokkráðsfundi Vinstri grænna í fyrra mátti sjá klapp dírigenta úti í sal sem stýrðu lófaklappi við ræðu formanns flokksin)

Rosaleg reisn er yfir þessari færslu hjá þér Jakobpína..eða þannig...

hilmar jónsson, 21.11.2010 kl. 18:47

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Hilmar

Ekki ætla ég að reyna að átta mig á því hver þinn skilningur á REISN er. Minn skilningur er alla vega ekki sá að taka með sér klapplið á fundi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.11.2010 kl. 18:57

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir innlitið Ásthildur

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.11.2010 kl. 18:57

5 identicon

Vonir mínar rætast enn. Fyrst sigur Besta Flokksins í borginni til að sýna liðinu í tvo heimana, og nú loksins er uppáhaldsstjórnmálamaðurinn minn að fara að byrja sinn eigin stjórnmálaflokk!!! Halelúja!!!!!!! :) Líður eins og ég hafi unnið í Lottó!!!!!!!! Áfram sæta Lilja!

Jóhannes (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 23:44

6 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ég er ekki viss um, að Hreyfingin sé heppilegur flokkur fyrir Lilju Mósesdóttur, því að sú flokksómynd hefur ekki staðið undir væntingum. Hún ætti að safna saman fólki og stofna eigin flokk. Tækifærin eru núna, því að ringulreiðin er mikil.

Þetta var ágætt blogg hjá þér, Jakobína !

Með góðri kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 21.11.2010 kl. 23:57

7 identicon

Lilja Mósesdóttir, eins og allir fæddir leiðtogar, er alls ekkert hjarðdýr, hvorki í hugsun  né hegðun. Hún ætti að stofna sinn eiginn flokk.

G. S (IP-tala skráð) 22.11.2010 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband