Ríkisstjórnin velur hnignun siðmenningar

Já-maðurinn Guðmundur Ólafsson segir á Facebook um rök NEI-sinna:

"Ég vil ekki slökkva eld í húsi mínu sem einhver óreiðumaður út í bæ hefur kveikt og þess vegna kýs ég málstað brennuvargsins - Þetta eru rök vesalinganna"

Ég sá mig knúna til þess að svara þessu:

Guðmundur þetta sem þú segir er algjör rökleysa. það var ekki kveikt í mínu húsi heldur húsi nágranna míns sem bauð brennuvörgunum í partý. Í stað þess að refsa brennuvörgunum fyrir að kveikja í húsinu vilt þú að mér verði refsað ekki af því að ég kveikti í húsinu heldur vegna þess að ég bý í sömu götu og nágranni minn. Það sorglegasta við þessa vesældarlegu rökfærslu er að það á að halda áfram að bjóða brennuvörgunum í partý og þá verður mér væntanlega refsað áfram þegar þeir kveikja í. Þetta er kallað hnignun siðmenningar.

 


mbl.is Icesave gæti horfið með sölu á Iceland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú ert að vísa í Guðmund Ólafsson kennara í HÍ þá finn ég verulega til með þeim sem hafa þurft að sitja fyrirlestra hjá honum.

Óbeint sagði hann á Sprengisandi, hjá Sigurjóni Egilssyni, um daginn að erlendir bankar væru búnir að tapa hundruðum eða þúsundum milljarða í uppbyggingu vegakerfisins á Íslandi!

Björn (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 18:42

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Er þessi ágæti maður ekki búin að fyrirgera trausti almennings á honum sem fræðimanni?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2011 kl. 18:43

3 identicon

Allavega ég Ásthildur, ég þekki manninn ekki neitt en varð furðu lostinn þegar ég heyrði þetta.

Björn (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 19:00

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jamm um hann gildir í upphafi skal endinn skoða. Það  mættu reyndar fleiri gera.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.4.2011 kl. 19:08

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Maður verður oft forviða þegar maður les það sem kemur frá háskólasamfélaginu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.4.2011 kl. 20:27

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það fer ekki alltaf saman menntun og greind. Menntun krefst raunar hvorki greindar né gáfna heldur hermigetu. Gagnrýnin og sjálfstæð hugsun með hóflegri skeptík er illa séð og oft brottrekstrarsök.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.4.2011 kl. 20:28

7 identicon

Þetta er stórkostleg umræða. Ef óreiðumaður kveikir í mínu húsi þá hringi ég strax í slökkvilið og reyni eftir bestu getu að slökkva án þess að stofna mér í hættu. Ég tilkynni um íkveikju til lögreglu. það er hins vegar hnignun siðmenningar þegar konan í sömu götu býður þekktum brennuvörgum í partý!

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 21:52

8 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hrafn þú ert sérlega skarpur. Gott að hafa húmorinn í lagi þegar menn setja fram vondar myndlíkingar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.4.2011 kl. 22:17

9 identicon

"Þetta er kallað hnignun siðmenningar."

 Þetta er kallað ÓÞARFA DRAMA. Haltu þig við viðfangsefnið.

Danni (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 15:36

10 identicon

 þökk sé verslunarkeðjunni Icesave og útrásarvíkingunum sem sleppa með skrekkinn í boði sögueyjunnar og barna hennar, þá tengist orðið "Iceland" í huga hins venjulega Breta, allra nema eins og eins bókmenntaáhugamanns, söguspekúlants eða ljósmyndar helst innkaupum á klósettpappír. Þetta veit ég afþví ég bjó þarna í mörg ár. Ég veit líka að sú ímynd mun styrkjast ef við höldum áfram að "take the shit" og segjum já.

Ísland (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband