Austurvöllur klukkan sex í dag!

Samfylkingin vill keyra áfram með gróðabraskið og stefnir að því að viðhalda bóluhagkerfi nýfrjálshyggjunnar.

Auðlindirnar eru ekki seldar heldur gefnar úr landi.

Bankarnir og framtíð skuldara hafa verið gefin erlendum kröfuhöfum.

Kosningaloforð Samfylkingarinnar ætti ekki heima sem texti á klósettpappír ef vilji er til þess að halda afturendanum óspilltum.

Stóriðjan mun skila því sem hún hefur skilað hingað til: ENGU!

Bólan mun vara í nokkur ár meðan forréttindastéttin veltir sér upp úr mútugreiðslunum en svo sitja afkomendur okkar uppi með hvað: ekkert nema nokkur hundruð skítastörf í stóriðju.

Þetta er stjórnviska valdhafanna sem hugsa um það eitt að tryggja eigin hag. Látum þá ekki ræna börn þessarar þjóðar framtíðinni.


mbl.is „Fullt tilefni til að vera bjartsýn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Einhvern vegin verður Jógríma að ljúgja sig frá því að hún ætlaði að láta almenningi blæða út með Icesave plottinu. Svo var þetta ALLT Sjálfstæðisflokknum að kenna. Samt vita allir að Samspillingin var á spena hjá Baugsveldinu og fleiri útrásasrvíkingum. EN- af hverju var Dagur þá að biðjast afsökunar? Þetta stemmir engan vegin hjá þeim.

Almenningur (IP-tala skráð) 29.5.2011 kl. 15:22

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Samfylkingar nornin kann ekkert annað en beita blekkingarvefnum

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 29.5.2011 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband