Kosningar glapræði fyrir sjálfstæðisflokkinn

Nú ganga sjálfstæðismenn fram hver á fætur öðrum og lýsa áhyggjum sínum yfir kosningum í náinni framtíð.

Þeir sem staðið hafa að því að koma þjóðinni í skuldarhít eru ekki tilbúnir til þess að horfast í augu við þjóðina.

Embættismenn eru í felum. Ráðherra ræður til sín erlendan sérfræðing sem aðstoðar við að villa um fyrir þjóðinni. Hver borgar erlenda sérfræðinga sem sjálfstæðismenn hafa fengið sér til fulltingis? Er það hin fátæka íslenska þjóð?

Styrktaraðilar hinna digru kosningasjóða eru nú að sleppa ofan í holur sínar í skjóli valdhafanna. Á meðan verður íslenska þjóðin bara fátækari og fátækari.


mbl.is Kosningar væru glapræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Sjálfstæðismenn þora ekki í kostningu, þeir mundu hverfa af yfirborðinu.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 21.11.2008 kl. 21:07

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já þeir sýna heigulshátt um þessar mundir. Kannski eru allir þeir sem styrkja sjóðina þeirra fyrir kosningar flúnir úr landi!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.11.2008 kl. 21:27

3 identicon

Ég er orðalus.

Erlendur hernaðarsérfræðingur er ráðgjafi Geirs H. Horde núna.

Manni verður meira og meira óglatt með hverjum deginum sem líður.

Ég vill byðja ykkur öll um að íhuga algera breytingu á stjórnarháttum í þessu landi.

Annaðhvort verður að kjósa menn en ekki flokka eða hafa þjóðstjórn skipuðum Erlendum og Íslensku sérfræðingum. (það fyrikomulag þekkist hjá litlum þjóðum og gengur mjög vel)

Einnig er ein ísköld staðreind sem blasir við okkur. Það mun aldrei gróa um heilt í þjóðfélaginu nema að ERLENDIR RANNSÓKNARAÐILAR VERÐI FENGNIR TIL AÐ RANNSAKA ALLT HEILA FERLIÐ.

Það má alls ekki láta spillingarflokkana sem eiga landið rannsaka sjálfa sig. Það yrði dauðadómur sannleikans sem við öll þráum og þurfum.

Ótrúleg framkoma við þjóðina (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 01:03

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það er ekki lengur heil brú í þessu

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 22.11.2008 kl. 01:40

5 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ef eitthvert réttlæti er til ætti Sjálfstæðisflokkurinn að þurrkast út af nýliðnum tilefnum. Finnst reyndar með ólíkindum að hann skuli hafa fengið að þrífast upp í þá ófreskju sem við sitjum uppi með á þeim stað sem hann hefur hreiðrað um sig. Ég er hins vegar hrædd um að stuðningsmenn flokksins séu enn nógu margir til að halda í honum lífinu eitthvað áfram... en vonandi verða þeir útilokaðir frá völdum við næstu kosningar. Geri ráð fyrir að of stutt sé í næstu kosningar til að stokka íslenska kerfið svo rækilega upp að næstu kosningar geti snúist um annað en flokka í meginatriðum a.m.k.

Rakel Sigurgeirsdóttir, 22.11.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband