Öll börn okkar börn

Ég var á Austurvelli í dag og hlýddi á ræðumenn. Hörður Torfa sagði að hann ætti engin börn en að n1073006581_30228477_9225öll börn væru hans börn. Ég tek undir með Herði.

Öll börn eru okkar börn. Þau eru framtíðin. Fréttir berast nú af innrás Ísraelshers í Gasa. Ísraelar hafa nú þegar myrt og sært hundruð barna og ætla að halda uppteknum hætti. Þetta verður að stöðva.

Íslensk yfirvöld verða að taka afgerandi afstöðu gegn þessum morðum.


mbl.is Landher Ísraels inn á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Guð inn góður , litlu börnin sem gjalda fyrir syndir feðranna. Hvílíkur heimur.

Rut Sumarliðadóttir, 3.1.2009 kl. 21:57

2 identicon

Kominn tími til að tukta þessa hamas hryðjuverkamenn duglega til.  Sennilega fela þeir sig núna bak við pilsfalda kerlinganna sinna, skríða niður í kjallara spítala eða barnaskóla  eða steina eins og venjulega.l

Aumingjar!

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 22:05

3 Smámynd: Rauða Ljónið

Það er mikil munnur þegar börn í Afríku eru myrt þá segir enginn neitt jú þau eru svört enginn bloggar neitt engar myndir allt þögult. Öllum  er sama.

Uppreisnarmenn frá Úganda eru sagðir hafa drepið fjögur hundruð óbreytta borgara í Austur-Kongó í árásum frá því á jóladag. Þá hafa um 20.000 manna flúið til fjalla samkvæmt upplýsingum hjáparstarfsmanna á svæðinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

Bruno Mitewo, yfirmaður kaþólskra hjálparsamtaka á svæðinu, segir látna eftir árásir uppreisnarmanna nú verða orðna 400. Segir hann 140 óbreytta borgara hafa látið lífið í Faradje, nærri 75 í Duru og 215 í Doruma. Þá sefir hann alla hafa verið drepna með sveðjum eða neydda til að ganga á eld. 

„Þorpin voru öll brennd til grunna af uppreinarmönnum,” segir hann. Við vitum ekki enn hversu margir komust af þar sem þorpin eru öll tóm.” Þó segist hann hafa upplýsingar um að um 20.000 manns hafi flúið til fjalla. Forsvarsmenn uppreisnarmanna neita því að þeir hafi staðið á bak við árásirnar.

Vitni segja uppreisnarmenn hins vegar hafa verið að verki og að þeir hafi skorið varir af hópi fólks sem viðvöruna til annarra um að segja ekki til þeirra.   

Talið er áð árásirnar séu hefndarárásir eftir að stjórnarherir Úganda, Suður-Súdan og Austur-Kongó efndu til sameiginlegra hernaðaraðgerða gegn uppreisnarmönnum um miðjan desember.  Joseph Kony, leiðtogi uppreisnarmanna, hafði þá neitað að skrifa undir friðarsamkomulag fyrir hönd samtaka uppreisnarmanna nema honum væru persónulega gefnar upp sakir.

Hann hefur farið huldu höfði í frumskógunum í  norðausturhluta Austur-Kongó undanfarin ár og er eftirlýstur af stríðsglæpadómstól sameinuðu þjóðanna vegna ásakana um stríðsglæp og glæpi gegn mankyninu.

 

Rauða Ljónið, 3.1.2009 kl. 22:10

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þakka þér fyrir að vekja athygli á þessu Rauða Ljón.

Skúli þú átt langa þroskabraut fyrir höndum ef þú vilt komast í fullorðinna manna tölu.

Já Rut þetta er skelfileg.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.1.2009 kl. 22:21

5 identicon

Trúarbragðastríð... eina sem dugar er að taka allar trúarbækur af öllu liðinu, fyrr verður ekki hægt að tala saman.
Vonlaust case sem sagt, sorglegt.

DoctorE (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 22:36

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég held að þetta sé fyrst og fremst græðgi Ísraela sem vilja meiri lönd.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.1.2009 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband