Gas og ofbeldi yfirvalda

Vinkona mín hringdi í mig og tjáði mér að lögreglan hefði farið fram úr sér í miðbænum í dag. Börn 482144Bvoru handtekin og foreldrum meinaður aðgangur að þeim að hennar sögn. Hún sagði mér einnig að átta ára gamalt barn hefði verið gasað!

Barnaverndarnefnd komin í málið.488106A

Ég held að yfirvöld séu að verða geðveik!

Er þeim ekkert heilagt?488105A


mbl.is Piparúði og handtökur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Til hamingju Ísland vonandi heyrir stjórnin núna í mótmælum og fari frá.

Offari, 20.1.2009 kl. 15:11

2 Smámynd: Arnar Steinn

Júlíus... af hverju í ósköpunum vonar þú að lögreglan verði enn harðari í aðgerðum sínum? Hvaða mögulega tilgangi myndi það þjóna? Það væri fyrst hálfvitaháttur.

Finnst þér rangt að mótmæla? Ertu ef til vill fasisti?

Arnar Steinn , 20.1.2009 kl. 15:19

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hvenær losnar tappinn úr eyrunum á stjórninni?

Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2009 kl. 15:19

4 identicon

Hey ég er með hugmynd, ekki hafa 8 ára gamalt barn í framlínu fjöldamótmæla sem vitað var að gætu endað með beytingu varnarúða af hálfu lögreglu.
Vona að barnaverndaryfirvöldu séu að skoða það.

Hugmynd (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 15:19

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hvar þarf maður að vara sig á því að vera með átta ára barn næst?

 Þurfum við kannski að læsa þau inni til þess að tryggja öryggi þeirra?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 15:43

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Júlíus hverjir eiga að hafa einkaleyfi á tjáningarfrelsi?

Sjálfstæðismenn?

Löggan?

Seðlabankastjórar?

Ég held ég myndi hugsa mig tvisvar um áður en ég færi að gasa börn þeirra eða barnabörn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 15:46

7 identicon

Læsa þau inni? Segðu ekki svona vitleysu.. Það þarf enginn að segja mér að lögreglan hafi viljandi miðað á krakkann.. hann hefur bara þvælst fyrir og verið á kolröngum stað á röngum tíma.. í meira en 1000 manna mótmælum, afhverju er barnið þar sem löggan er ? nóg er plássið...

Hugmynd (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 15:51

8 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Er löggan orðin hættuleg börnum?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 15:53

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þurfum við nú að fara að varast að fara með börnin í bæinn ef löggan skyldi vera á sveimi með úðabrúsa?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 15:55

10 identicon

pfft...

Nei hún er ekki hættuleg börnum.. Hver kemur annars til aðstoðar ef þú lendir í slysi? Er það ekki löggan ?
Hvernig nennir fólk að ræða við þig hér þegar þú kemur bara með útúrsnúninga og vitleysu.
vertu blessuð..

Hugmynd (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 16:00

11 identicon

Júlíus! Kallar þú það að kasta fáeinum eggjum og skyri og eitthvern svoleiðis tittlingaskít, skemmdarverk??? Og HVER var að tala um vinstristjórn? Ég er nú bara einn af þessum mótmælendum og mér finnst ekkert eðlilegt við það að henda gömlum manni niður í jörðina fyrir að mótmæla. Og ég held að þú hafir alvarlega skotið þig í fótinn með athugasemd með greindarskort. Fólk með EIGIN hugsanir flokkast yfirleitt ekki undir það. Heldur fíbblin sem fylgja í humátt eftir og spyrja engra spurninga.

En þú sem undan

ævistraumi

flýtur sofandi

að feigðarósi

lastaðu ei laxinn

sem leitar móti

straum sterklega

og stiklar fossa.

höf Bjarni Thorarensen

höf:

tania (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 16:12

12 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta eru ekki útúrsnúningar. Þegar lögreglan notar ofbeldistæki á borð bið piparúða þurfum við að spyrja okkur hvert næsta skref er.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 16:15

13 Smámynd: Anna Sigga

Þér er greinilega mikið niðri fyrir... og ekki ertu sérstaklega málefnalegur.

-Er maður haldin greindarskorti ef maður hefur ekki sömu skoðanir og þú?

-Mér finnst allt í lagi að mæta með börn á friðsamleg mótmæli þar sem þau komast ekki hjá umfjöllunum um ástandið. -þau hafa skoðanir og vilja vita hvernig hlutirnir virka.

 -Svo finnst mér frekar þeir aðilar sem fela sig bak við "ALÞINGI", vanvirða það -ráðherrar sem virða ekki þá sem þá kusu viðlits!

Reyndu nú að bera virðingu fyrir örðu fólki og skoðnum þeirra... þú ert ekki barn er það? 

Anna Sigga, 20.1.2009 kl. 17:29

14 Smámynd: Anna Sigga

Afsakið en athugasemd mín beindist að ofanskrifuðum Júlíusi Valdimari.

Anna Sigga, 20.1.2009 kl. 17:30

15 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég áttaði mig á því. Kannski vill Júlíus að það þurfi sérstakt lögregluleyfi til þess að fara um með börnin sín þannig að þau verði ekki fyrir lögregluofbeldi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 17:41

16 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Framkoma þingmanna sem lítilsvirða vilja fólksins er sjúkleg og frogangsröðun verkefnanna einnig. Hvað var rætt í dag? Hvað kom út úr þeim umræðum? Hverju skilaði það framtíðinni og almenningi? Svörin eru: Ekkert og engu!

Hverju var um að kenna? Hroka, blindu og siðleysi fulltrúa ríkisstjórnarinnar! Ég finn til með þeim sem reyndu að koma eðlilegri vandtrausttillögu til heyrnarlausrar ríkisstjórnar sem er ekki fær um neitt nema að margítreka vanhæfni sína bæði í orðum og gjörðum! Ég finn þó sérstaklega til með þeim sem urðu fyrir lögregluofbeldi!

Ég finn til með þjóðinni allri sem horfir upp á „lýðræði“ eins og það var og hét í Austur-Evrópu fyrir fall Berlínarmúrsins. Ég finn til með þeim sem skilja ekki hvað þessar staðreyndir og reyna að eyðileggja fyrir þeim sem vilja endurreisa virkt lýðræðissamfélag. Það gerist ekki nema steingervingarnir í íslenskri valdablokk opni augun og hreinsi hlustirnar!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.1.2009 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband