Valdablokkir berjast..

Baugsveldið og Davíðsklíkan berjast hatrammlega. Báðir aðilar beita gengdarlausum áróðri. Jón Ásgeir ætlar að kaupa Ísland en Davíðsklíkan berst við að halda völdum.

Flest af því sem Davíð sagði var frekar ótrúverðug en ég trúi honum þó í einu atriði og það er að Baugsveldið hefur stungið sér inn í andófið og er með leppa sína þar sem nú sumir hverjir hyggja á framboð.

Jón Ásgeir á von á góðum stuðningi úr þeirri átt við að kaupa upp landið

Valdaklíkurnar berjast um auðlindir Íslands á meðan almenningi blæðir.


mbl.is Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

ég held þú getir alveg trúað Davíð - þó svo að þú sér honum ekki fylgjandi í henni pólitík

Jón Snæbjörnsson, 24.2.2009 kl. 20:35

2 Smámynd: Haraldur Pálsson

hvaða rugl, hvernig dettur þér í hug að það eina sem knýr Davíð áfram séu völd og að hann sé bara valda gráðugur. Hann hefur hag þjóðarinnar fyrir brjósti og gerir það sem henni er fyrir bestu. Hvaða vit er í því að skipta um hest í miðri á? Finnst þér það líklegt til árangurs. IMF að koma á fimmtudaginn og þá verður kominn inn nýr seðlabankastjóri sem verður búinn að vinna sem seðlabankastjóri í einn klukkutíma. Er það eitthvað líklegt til árangurs? Já alveg svakalega.

Haraldur Pálsson, 24.2.2009 kl. 20:37

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Humm Haraldur heldur þú að Davíð sé ekki umhugað um völd? Sjálfsagt ekki það eina sem knýr hann en þó alla vega stærsti drifkrafturinn í gjörðum hans.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.2.2009 kl. 20:41

4 identicon

Haraldur Pálsson

Davíð Oddson er ekki maður fólksins því miður

Hann er Bara Veikur af valdagræðgi

Kveðja

Æsir (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 20:45

5 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

þetta er sorglegra en að tárum taki!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 24.2.2009 kl. 20:46

6 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ég tek eftir að seðlabankastjóri vill ekkert muna forsætisráðherratíð sína...sem var löng?...stoltur?...hann setti þessar “reglur ” seðlabankans sjálfur (og lagði niður þjóðhagsstofnun).

Er allavega að hugsa um “Sauruman” í Hringadróttinssögu núna og bara veit (18 ára reynsla ) að mjög margir Íslendingar halda að “þetta sé” hálmstráið?

...so help me God!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 24.2.2009 kl. 20:47

7 identicon

Davíð kom, sá og sigraði. 

Þeir sem fóru heim til hans og sprengdu sprengjur og hentu eggjum í húsið hans ætti að fara til hans strax í kvöld og biðjast afsökunar.

Margrét (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 20:47

8 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ég held að Jakobína sé að lesa rétt í stöðuna.

Arinbjörn Kúld, 24.2.2009 kl. 20:54

9 Smámynd: Haraldur Pálsson

Ég stórlega efast um það, hvaða hag hefur Davíð haft út úr þessu. Fullt af bjánum hatrast fyrir ævistarf sitt sem var allt í þágu fólksins. Ekki er hann stór hluthafi í nokkru eða að hann hafi haft fjármuni út úr þessu starfi sína.

Haraldur Pálsson, 25.2.2009 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband