Ruglaðir stjórnmálamenn - óskabörn þjóðarinnar

Stjórnmálamenn í sjálfstæðisflokki, samfylkingu og framsókn hafa þegið mútur hver um annan þveran. Rei málið byggir á þverpólitískri spillingu og svo virðist sem þjóðin ætli að kalla þessi öfl yfir sig eina ferðina enn.

Það er kannski ekki að furða þegar þetta lið á alla fjölmiðla í landinu en þeir hunsa jú stjórnmálaflokka að mestu sem ekki hafa verið flæktir inn þessa vafasömu atburði. Ég er að velta fyrir mér hvort ég þurfi ekki að fara að gera eitthvað af mér til þess að vera tekin gild í fjölmiðlum. T.d. stela hálfum milljarði frá kaupþingi með því að taka lán og setja skuldina í einkahlutafélag með engum veðum. Setja svo bara einkahlutafélagið í gjaldþrot. Þá væri ég jú að stela frá almenningi en ég kann nú ekki almennilega við að gera það. Ég þarf heldur ekkert að vera að gambla með hálfan milljarð eins og sumum stjórnmálamönnum hefur þótt viðeigandi.

Ótrúleg bíræfni og spilafíkn stjórnmálamanna hefur leitt þjóðina í meiri vandræði en margir geta séð fyrir sér. Þeir sem tóku þúsundir heimskulegra ákvarðana í þessu voðaferli undirbúa sig nú til þess að ná aftur völdum.

Aðilar sem hafa tekið margar heimskulegar ákvarðanir eru líklegir til þess að halda því áfram.

Ég segi bara Guð blessi þjóðina 


mbl.is Aldrei heyrt alvarlegri ásakanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Amen.

Kveðja, Ómar

Ómar Geirsson, 15.4.2009 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband