Samfylkingin ætlar að splæsa 600 milljörðum fyrir ESB

Draumórar samfylkingardrengjanna um gullstóla í Brussel ætla að verða þjóðinni dýrkeyptir.

Fórnfýsi samfylkingarinnar fyrir þessa drengi ber vott um slælegt fjármálalæsi.

ESB tafði aðkomu AGS í haust til þess að þvinga ríkisjóð til þess að taka á sig innistæðuskuldir sem einkaaðilar höfðu stofnað til.

Samfylkingin lét ESB kengbeigja sig í málinu enda mega strákarnir ekki sjá á eftir draumórum sínum.

Hvað hefur svo samfylkingin sett að veði fyrir Icesave skuldir Björgólfs Thors

Baugsmiðlarnir halda uppteknum hætti við að hvítþvo þá sem settu þjóðina á hausinn

Nú má samfylkingin alveg fara að gera grein fyrir þeim gjöfum sem hún hefur þegið af útrásarvíkingum og gera okkur grein fyrir því á hvern hátt ofsafenginn árátta hennar um inngöngu í ESB þjónar viðskiptahagsmunum útrásarvíkinganna.


mbl.is Íslendingar falla í fjármálalæsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hún setti væntanlega eignir IceSave á móti þessu skuldum og hefur ekki samið um annað. Gæti verið að lokum 70 milljaðrar sem lenda á okkur. Mér finnst þú fara frjálslega með tölur. Þú ert alltaf að nefna 600 milljarða í þetta og hitt. Þú veist að það eru til eignir á móti flestum af þessum skuldum. Annars hefið AGS aldrei tekið í mál að lána okkur frekar en aðrar þjóðir því við gætum aldrei borgað nema bort af því sem þú nefnir.

Minni þig svo á að það var Sjálfstæðisflokkurinn sem fór með Forsætisráðuneytið, Ingibjörg var veik á þessum tíma þannig að ég held að verði að hryggja þig með því að líkur eru á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi átt síðasta orðið varðandi samninga við ESB. ESB var að í raun aðeins að bregðast við óskum frá Hollandi og Bretlandi um að aðstoða við að ná sáttum við okkur. Því ef okkar skilningur á reglum um innlánstryggingar innan EES hefði orðið ofan á þá hefði orðið áhlaup á allan banka í löndum á EES svæðinu. Norðimenn voru sammála skilningi ESB á þessu reglum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.5.2009 kl. 23:37

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

En í okkar tilfelli Magnús Helgi þá vitum við að innlánstryggingakerfið var hannað til þess að grípa inní ef einn banki lenti í vandræðum - ekki til að glíma við hrunið fjármálakerfi heillrar þjóðar. Auk þess erum við bara rúm 300 þúsund hræður sem búum á eyju lengst norður í ballarhafi, á mörkum hins byggilega heims og ráðum ekki við skuldir af þessu tagi.

Arinbjörn Kúld, 7.5.2009 kl. 23:42

3 Smámynd: Nýja Lýðveldið Ísland

Magnús Helgi ef þú ert tilbúin í hreðjatak ESB og útrásarvíkinganna þá er það bara gott og vel.

Þú mátt alveg sjá um að greiða þessa hundruð milljarða en mig langar ekki til þess.

Þess vegna segi ég nei takk.

Nýja Lýðveldið Ísland, 7.5.2009 kl. 23:53

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fyrir þá sem vilja losna úr hreðjataki ESB bendi ég á þetta

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 8.5.2009 kl. 00:03

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Því miður er staðan sú, að AGS er bara innheimtustofnun fyrir Gordon Bulldog Brown og Bretsku Samfylkinguna. Hvort Íslendskir Sossar fá eitthvað af þeim fjármunum í umboðslaun skal ósagt látið.

Sossarnir eru svo sem ekki á eyði-eyju staddir, því að ESB-sjóðirnir standa þeim opnir. Styrkja-hirð ESB er að verða stærsta starfstétt landsins.

Hvað ætli Lady Jóhanna hafi um framgöngu Gordon Bulldog Brown að segja ?

Loftur Altice Þorsteinsson, 8.5.2009 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband