Kraumar reiðin undir fargi ölmusukapítalismans?

Það er útlit fyrir að fólk nenni ekki, vilji ekki, þori ekki eða finnist hallærislegt að taka þátt í mótmælum jafnvel þótt ástandið sé grafalvarlegt.

Helmingur þjóðarinnar stefnir í þrot. Hvar er þetta fólk? Er það við sjónvarpsskjáinn að að taka við áróðri ríkisvaldsins sem lofar ölmusu á meðan það er að stefna sjálfstæði þjóðarinnar í hættu?

Ríkisstjórnin er tilbúin að skrifa undir samning sem mikill vafi leikur á að hún skilji sjálf vegna flókins lagalegs texta á ensku.

Bretar tefldu fram sínum grimmustu lagasnillingum til þess að flækja háttvísa sendimenn íslensku Ríkisstjórnarinnar í, í sakleysi þeirra. Ríkisstjórnin sendi mann með stúdentspróf í farteskinu til þess að takast á við það sem menn hafa kallað járnkjafta Bresku og Hollensku útsendaranna.

Hvernig getur reynsla af diplómatísku starfi verið góður undirbúningur fyrir harðsnúna og grafalvarlega milliríkjasamninga.

Kunna þeir sem stóðu að þessari samningagerð ekkert fyrir sér í lágmarkstaktík í samningagerð?

Það voru Bretar og Hollendingar sem voru að gera kröfur.

Hvers vegna komu þeir ekki til Íslands með túlk og hvers vegna fóru samningarnir ekki fram á íslensku?

Hvers vegna var samningurinn ekki skrifaður á íslensku?

Ég verð öskureið þegar ég hugsa til vanmáttar Ríkisstjórnarinnar í svo grafalvarlegu máli.

Ríkisstjórnin hefur gefið Hollendingum heimild til þess að taka veð í ríkiseignum. Hvaða ríkiseignum, Landsvirkjun, Háskólasjúkrahúsinu? Varla færu Hollendingar að sækjast eftir Vinnumálastofnun.

Ég útskýrði samninginn fyrir amerískri konu í kvöld og hún svaraði.....

....but this is extortion....

...já þetta er fjárkúgun.....og ætla íslenskir stjórnmálamenn að vera þátttakendur í þessari óhæfu.....

og ætlar almenningur ekki að mótmæla fyrr en sýslumaður er mættur til þess að bera það út af heimilum sínum?


mbl.is Eyðilagði íbúðarhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Jakobína, er samfélagssáttmálin að rofna? Er þetta upphafið að endinum?

Arinbjörn Kúld, 18.6.2009 kl. 02:54

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég veit það ekki Ari en ég held að hluti af vandanum sé að valdhafar eru búnir að gera svo mikið af mistökum og verja sinn hlut fram í rauðann dauðann frekar en að horfast í augu við mistökin og skipta um kúrs svona ein og við gömlu skipstjórnarnir höfum þurft að læra að gera.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.6.2009 kl. 03:01

3 Smámynd: Júlíus Björnsson

Afleiðingarnar fyrir atvinnulífið og heimilin í landinu þekkja allir... Ágirnd villti okkur sýn um stund og olli blindri trú á meinta snilli okkar í að kaupa og selja verðbréf og eignir víða um heim. Við gengum of hratt fram og við gengum fram af mörgum okkar mestu og bestu vinaþjóðum. Við verðum að endurvinna traust þeirra og virðingu og ég hef þá trú að okkur sé að takast það," sagði Jóhanna.

Segir Jóhanna sannarlega með réttu fyrir hönd Samfo og styrktaraðila.

Við 65% sem nauðug viljug horfðum upp á og vildum fram á síðasta dag ekki trúa þessu: Landráðsstarfsemi [glannaskap, óráðsíu].  Getum tekið undir sérhvert orð Jóhönnu.  Sennilega stórhluti Samfo líka sem vissi ekki betur að telur fals lánin vera góðæri. Góðæri sem mælist ekki á skattaskýrslum  90% Íslendinga.  TV sýndar góðæri?

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 03:26

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég hef hins vegar enga trú að virðingu við nágranna þjóðirnar.

Júlíus Björnsson, 18.6.2009 kl. 03:28

5 identicon

Það er nú meira en helmingur af þjóðinni, sem horfir upp á að verða rúin öllu, heiðrinum þar með. Þeir einu sem sleppa eru útrásarvíkingarnir, sem sitja núna með kampavínsglas í hendi í sínum glæsivillum erlendis og hlæja að þessum helvítis fíflum, sem þeir féflettu hér á skerinu. En, btw, það er ekkert til sem heitir vinaþjóð. Engin þjóð er annars vinur. Það eina, sem getur orðið til þess að ein þjóð vinni með annarri eru sameiginlegir, fjárhagslegir hagsmunir. Allra síst ber að tala um skandinava sem vini okkar. Þeir eru fyrstir til að leggja okkur með hælkrók og það á eftir að koma í ljós, að ein orsök þess að íslenska fjármálakerfið lenti á skeri var að Bretum, Dönum, Hollendingum og Norðmönnum þótti íslendingum ganga of vel á þessu sviði og tóku sig saman um að stöðva það.

Fernandez (IP-tala skráð) 18.6.2009 kl. 06:58

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

"og ætlar almenningur ekki að mótmæla fyrr en sýslumaður er mættur til þess að bera það út af heimilum sínum?"

Hafnaboltakylfan er á sínum stað, tilbúin að taka á móti handbendum auðvaldsins.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.6.2009 kl. 09:35

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Mikið sammála þér en ég hef eina skýringu á klaufaskapnum og sveitamennskunni við þessa samningagerð.

Sá sem í hjarta sínu er sammála þeim sem krefur hann um eitthvað, en þorir ekki að segja það, hann stendur svona að málum.

Ríkisstjórnin fékk þann samning sem hún taldi eðlilegan.  Ríkisstjórn Íslands er skipuð fólki sem telur kröfugerð bretana sanngjarna og hún tekur undir þau rök "hvað hefðum við gert í þeirra sporum".    

Og þá er ekki von á sanngjarni og réttlátri niðurstöðu.  

Því miður.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.6.2009 kl. 10:47

8 Smámynd: Alfreð Símonarson

Heyr Heyr!! Ég hef verið helvíti mikil "sófakartafla" einmitt núna en ætla að gera bragabót á því í dag og mæta niður fyrir framann alþingi.  Það er einnig gott að rifja upp orð hans John Perkins en ég tók upp fyrirlestur hans í HÍ ef einhver hefur áhuga: http://malacai.blog.is/blog/malacai/entry/847929/

Alfreð Símonarson, 18.6.2009 kl. 11:14

9 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Nú fáum við að sjá samninginn. Það verður fróðlegt að lesa hverslags nauðungasamninga Alþingi á að skrifa upp á. Miðað við fréttir af þessu eru þeir óásættanlegir með öllu enda ekki okkar skuldir.

Ævar Rafn Kjartansson, 18.6.2009 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband