Skíturinn sem samfylking og sjálfstæðisflokkur komu þjóðinni í

Samfylkingin vill ekki að Evrópa sé fúl út í samfylkingunna og er tilbúin til þess að selja þjóðina í ánauð til þess að greiða skuldir glæpamanna.

Hvað þýðir það ef ríkissjóður greiðir ekki skuldir glæpamanna. Jú, það hefur komið fram, þá verður gert áhlaup á eignir glæpamannanna erlendis.

Hverjum er samfylkingin að reyna að bjarga?


mbl.is Umsátur um Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Mér sýnist þú nú heldur betur reyna að snúa hlutunum á haus.

Hvernig viltu svara því sem ég segi hér?  Það eru nefnilega tvö mál - annars vegar hvort við samþykkjum skuldbindinguna um að borga Icesave og hins vegar hvort við samþykkjum þessa tilteknu útfærslu....og 5.5% vextina.  Menn geta verið ósammála útfærslunni með ýmsum rökum, en miðað við það sem á undan er gengið sé ég ekki hvernig eigi að hafna skuldbindingunni.

Púkinn, 26.6.2009 kl. 16:13

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Mér sýnist að það sé bara í lagi að hald sé lagt á eignir glæpamannana.

Sé enga ástæðu til þess að fórna velferð samfélagsins um langa framtíð til þess að þetta lið geti lifað í vellystingum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.6.2009 kl. 16:23

3 identicon

Því miður hafa stjórnmála- og embættismenn fallið í þá gryfju að blanda saman þessum tveimur gjörólíku málefnum  - fjárskuldbindingum óreiðumanna og ESB aðildarumsókn - en þessi málefni eiga akkúrat ekkert sameiginlegt.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 16:27

4 identicon

Heldur þú ekki að málstaður þinn yrði svolítið marktækari, ef þú gættir aðeins hófs í orðavali?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 16:31

5 identicon

Heil og sæl; Jakobína - sem aðrir, hér á síðu !

Svavar Bjarnason ! 

Ef eitthvað er; mætti Jakobína vera miklu harðorðari, í þessarri umræðu. Krata ræflar; eins og þú, Svavar eruð á nippinu núna, hvar drasalara klíka Jóhönnu Sigurðardóttur riðar; sem betur fer, til falls - eða; vonandi, sem fyrst.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 16:56

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Jakobína er ekki að verja málstað sinn að mínu mati. Nú er einfaldlega að reyna að vekja þá sem ágirntust um hvernig komið er fyrir heimilunum í landinu. 

Þegar USA sleppti þá byrjaði Ísland smátt og smátt að einangrast með 8% heimsins eða gömlu Nýlenduveldunum. Það er komin heil kynslóð sem hefur engan samanburð.  Suður Evrópa og Írland, og Finnland voru nú ekki lönd sem Íslenskur almenningur bar sig saman við efnahagslega 1974, svo langum betri voru þau á Íslandi í pundum talið.

Þetta klúður er allt saman sprottið af ágirndarþörf til að hylma yfir freistaranna eða alþjóðglæpagengis gjörningum. Stjórnendur Bankanna átta að færa strax í járn en ekki ganga erinda þeirra er frömdu og láta Breta kúga sig.

Það er skylda í Hlutafélagalögum að fyrirbyggja skaða sem hlýst af því fresta að upplýsa um óumflýjanlegt gjaldþroti: ljóst að rekstragrundvöllur er úr myndinni næst árinn.

Skaða efnahag og orðspor þjóðarinnar með hegðan og framferði sínu er landráð. Spurning  er ekki  hvort slíkt sé ekki löngu komið fram.

Júlíus Björnsson, 26.6.2009 kl. 17:06

7 identicon

Blessaður Óskar.

Ég þakka hlýlegar kveðjur. Það er greinilegt, samkvæmt orðavali ykkar Jakobínu, að þið hafið mjög góðan málstað að verja!!!

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 17:10

8 identicon

Komið þið sæl; enn á ný !

Svavar !

Já; rétt mælir þú, ágæti drengur. Við Jakobína; höfum mjög góðan málstað að verja, sem er - örlog  framtíðar lands og lýðs og fénaðar, hér á Fróni, einfaldlega.

Megir þú; bera gæfu til, að nálgast okkur þjóðernissinna, Svavar minn, og kasta fyrir róða, því slekti, hverju þú hefir fylgt, að nokkru.

Hinsvegar; geri ég ráð fyrir, að Jakobína, sé mun hófsamari kona, í sínum meiningum, og hófstilltari, heldur en, nokkurn tíma ég, gæti talist vera, hvar ég er mjög utarlega, á hægri brúninni, hugmyndafræðilega, Svavar.

Með; hinum beztu kveðjum, sem öðrum fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 17:19

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Svavar Bjarnason það er ekki hægt að segja neitt pent heigulshátt, mútuþægni og spillingu

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.6.2009 kl. 18:01

10 Smámynd: Elle_

Hvað, hugnast ekki öllum að kalla glæpagengi skipulagðra glæpa glæpamenn? Nú, hvað ætti fólk að kalla skrímslin? Þjófar passar líka. Núna þarf að ná af þeim milljörðunum.  

Elle_, 26.6.2009 kl. 19:29

11 identicon

Sæl Jakobína.

Þetta er mergurinn málsins.

Það á að rannsaka IceSave og hrunið eins og sakamál. Suma tekur bara lengri tíma að skilja náið samráð stjórnmála og auðhringja en aðra og eru enn að rífast um áferð og lit á skuldafjötrunum.

P.s.: Þitt orðaval er fínt og þú talar kjarngóða íslensku.

TH (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 20:10

12 identicon

Er ekki best að koma sér bara burt úr landi, manni er farið að sýna það.

DoctorE (IP-tala skráð) 26.6.2009 kl. 21:07

13 Smámynd: Elle_

Kannski.  Landið er eitt óstjórnlegt okur- og spillingar-bæli.

Elle_, 26.6.2009 kl. 21:41

14 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svavar Bjarnason. Af því ég er nú svona dálítið tregur til vitsmuna vil ég biðja þig að skýra fyrir mér hvaða málstað þau Jakobína og Óskar þurfa að verja?

Ég fæ nefnilega ekki séð að þau séu sökuð um eitthvað og þurfi að verja sig.

Aftur á móti þurfa stjórnvöld okkar og þeir einstaklingar sem leggjast á sveif með þeim alveg heilmargt að verja og skýra betur fyrir þjóðinni. Þar á ég fyrst og fremst við ríkisstjórn Geirs og Ingibjargar en fæ ekki séð að ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms séu bara neinu að bjarga. 

Árni Gunnarsson, 27.6.2009 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband