Ríkisstjórninni ekki treystandi?

Blaðamaðurinn Ola Storeng veltir því fyrir sér hvort Norðmenn eigi að styðja Breta og Hollendinga í áhlaupi þeirra á Ísland.

En Storeng segir einnig:

Tillitssvikten til landets politikere er fundamental

....eða vantraust til íslenskra stjórnmálamanna er grundvallarvandamál.

Já traust landsmanna til stjórnmálamanna er grundvallaratriði.

Skilningur Ríkisstjórnarinnar á þessu grundvallaratriði hefur algjörlega brugðist.

Gömlu stjórnmálabrellurnar voru dregnar upp úr skúffunum.

 Leynimakk, blekkingar og gamli klíkuskapurinn.

Hún hefur verið svo upptekin af því að þóknast "alþjóðasamfélaginu" að þjóðin hefur verið gróflega vanrækt.

Virðingarleysið sem ríkisstjórnin hefur sýnt þjóðinni hefur verið átakanlegt. Orð Ingibjargar Sólrúnar eftir hrunið "þið eru ekki þjóðin" virðist hafa gefið tóninn hvað samfylkinguna varðar og fjármálaráðherrann hefur verið samstíga samfylkingunni.

Skilningur ríkisstjórnarinnar á því að þjóðin er í sárum, eftir meðferð samfylkingar og sjálfstæðisflokks sem þjónuðu kvótaspillingaröflunum og útrásarliðinu af trúmennsku, virðist vera af skornum skammti.

Mikill órói er í samfélaginu þrátt fyrir að aðgerðirnar gegn þjóðinni eru á byrjunarstigi.

Hvernig ætla þessir stjórnmálamenn að komast í gegn um þetta kjörtímabil með þjóðina á móti sér?

Ekki varð eingöngu siðrof heldur einnig trúnaðarrof á milli stjórnvalda og þjóðarinnar

Ríkisstjórninni væri vorkunn að vaða í þeim skít sem sjálfstæðisflokkur hefur skilið eftir sig ef hún héldi ekki áfram að maka honum yfir þjóðina.


mbl.is Íslendingar hætta í NASCO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fórstu línuvilt hvað kemur þetta laxastofnum í hafinu við ?????????

OG ANNAÐ,,,,,þið hérna á blogginu sláið því upp eins og blaðamenn séu einhverjir gvuðir, hvað skiftir máli hvað skoðun þeir hafa :)

frétta menn og konur ganga um ljúgandi til þess eins að æsa líðinn upp, eins og sjónvarp allra landsmanna sem hefur komið með fjórar fréttir um atvinnuleisið og allar lígi tóm, dv í gær um GVUÐjón og nú einhver Ola.

Farið nú að hætta þessu röfli á blogginu og farið að gera einhvað af viti

SH (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 04:04

2 identicon

Sammála - það er ekkert að marka blaðamenn, ekki nú né áður. Ég tek öllu sem þeir segja með miklu fyrirvara - þeir reyna ALLTAF að búa til úlfalda úr mýflugu - ALLTAF.

 Gott dæmi um hversu lélega fréttamenn geta staðið sig er t.d. hægt að sjá hér, í "heimildarmynd" um Ísland frá Bandaríkjunum: http://www.youtube.com/watch?v=h8-ygmQviE8 

ÞH (IP-tala skráð) 19.8.2009 kl. 05:04

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

SH mistök höfundar vona að þú takir þetta ekki nærri þér.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.8.2009 kl. 18:00

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Mér finnst fréttin afar döpur fyrir okkur. Einangrunin virðist vera hafin. En ég er algjörlega sammála Jakobínu, traust almennings gagnvart stjórnmálamönnum er algerlega hrunið og fólki býður við þeim.

Kveðja, ari

Arinbjörn Kúld, 19.8.2009 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband