Hvaðan koma þessar hörmungar?

Hver hörmungin af fætur annarri dynur á þessari þjóð?

Gordon Brown fullyrðir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé verkfæri Breta á Íslandi.

Samningi Íslendinga við AGS er haldið vandlega leyndum þrátt fyrir fullyrðingar um annað.

Sá sem hefur vald yfir skuldunum hefur vald yfir öllu segir í þessu myndbandi.

Jón Baldur Lorange bendir á að eins skuld sé annars eign.

Skuldugur einstaklingur er ekki frjáls einstaklingur. Skuldarar eru í ánauð lánadrottna.

Ætlar ríkisstjórnin að innleiða nútíma þrælahald á Íslandi

og ætlar þjóðin að sofa á meðan?

Bretar eiga sér langa hefð stéttaskiptingar og nýlenduhernaðar og hafa undarlegar skoðanir á því hvað skipti máli í lífinu.

Nú er ríkisstjórn Íslands genginn í lið með Gordon Brown við að fjármagna breskar nauðsynjar eins og til dæmis loðhúfur varðliða drottningarinnar.queens guards

Icesave gjöf ríkisstjórnarinnar kemur sér vel fyrir Breta því húfurnar hafa kostað um 70 milljónir síðastliðin 5 árum fyrir þessa tryggu þjóna drottningar.489509B

Bjarndýr eru glæsilegar skepnur en það kostar miklar blóðsúthellingar að afla skinna fyrir þetta þjóðþrifamál Breta.

Vaxtagreiðslur Íslendinga koma því að góðum notum. Það mun að vísu kosta nokkurn niðurskurð í íslensku velferðakerfi. Kannski nokkur mannslíf á ári og skert lífsgæði.

En hvað um það það er ólíkt sem mennirnir hafast að.

Gríðarleg fátækt og félagsleg vandamál eru á Bretlandi enda hefur tíðkast þar lengi að þeir sem hafa fjármuni geti keypt sig framhjá öðrum í kerfinu.

Hlutir eins og loðhúfur varðanna ganga fyrir almennri velferð en á hverjum vetri fréttist af gamalmennum sem deyja úr vosbúð í Bretlandi.


mbl.is Óvíst um sjálfstæðisatkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þetta myndband er ógnvekjandi. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.8.2009 kl. 01:34

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

já það er það

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.8.2009 kl. 01:38

3 Smámynd: Þór Ludwig Stiefel TORA

Bið alla að taka frá smátíma og horfa á myndina the Money Masters sem er frí á netinu, http://video.google.com/videoplay?docid=6076118677860424204

Höldum vöku okkar því: "Freedom is not free - it comes with the highest of costs, blood."

Þór Ludwig Stiefel TORA, 26.8.2009 kl. 01:53

4 identicon

Eftir dvöl erlendis í nærri 2 áratugi.  Er maður á svolítið á annari bylgjulengd.  Manneskjan lítur í ólíkar áttir.  Mörgum finnst það þægilegt að hafa nóg fyrirsig að leggja. ekki að berjast við grannann um lóðina eða bílinn.Börnin urðu að vera í besta skólanum.  Hér´fyrr var hægt að kaupa prófskírteini með láði. Ég gæti trúað því að það sé lika hægt í dag.......Lögtæknarnir maður.....  Þessir afdönkuðu lögfræðingar  segja ekki bobs........... Ekki vit ég hvort að þeir eru hræddir við yngri kynslóðina. þessarra sem vita allt, og kunna allt.

J.þ.A (IP-tala skráð) 26.8.2009 kl. 02:08

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hér´fyrr var hægt að kaupa prófskírteini með láði. Ég gæti trúað því að það sé lika hægt í dag.......segir þú J.Þ.A .....hlustaðu á málflutning sumra fræðimanna......Maður verður að spyrja hvaða kröfur hafa verið gerðar til þeirra ef þeim finnst það sem þeir hafa fram að færa boðlegt.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.8.2009 kl. 03:50

6 Smámynd:

Úff - óhugnanlegt

, 26.8.2009 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband