Segir AGS rukkara erlendra kröfuhafa

Upplýsingar sem einstaklingar hafa eru gríðarlega mikilvægur þáttur í að ákveða hegðun viðkomandi. Aðstöðumunur hvað varðar aðgang að upplýsingum og áhrif hefur á undanförnum áratugum haft mikil áhrif á lífsgæði einstaklinga og leitt til mismununar.

Fjármálakerfið hefur þróað með sér þá aðferðafræði að gefa almenningi rangar upplýsingar til þess að hafa áhrif á hegðun hans.

Handrukkari fjármálakerfisins hefur beitt fyrir sig ráðherrum og fræðimönnum undanfarna mánuði til þess að hræða almenning og þvinga hann til þess að taka á sig skuldir annarra.

Hver kannast ekki við frasa eins og :

Við glötum trausti alþjóðasamfélagsins

Við okkur mun blasa upplausn

Þá kemur upp hryllings sviðsmynd

Menn skulu bara gera sér grein fyrir því hvað við þá blasir

Býð ekki í afleiðingarnar af því að ef því yrði hafnað

Steingrímur hefur verið framvörður hræðsluáróðurs ásamt útsendurum samfylkingarinnar.  "Dómsdagspredikun prófessorsins" og "Hræðsluáróður andskotans" og Steingrímur hræðir öreiganna og Steingrímur hræðir hér

Hér er líka smá sýnishorn af skrumi valdhafanna:

Kúpa Norðursins

Einangrun frá alþjóðasamfélaginu

Alþjóðasamfélagið (=erlendir lánadrottnar, áhættufjárfestar, alþjóðafyrirtæki, stóriðja, ESB-Brusselvaldið og AGS)

Trú alþjóðasamfélgsins eykst við umsókn að ESB (mælingar hafa sýnt annað)

Erlend fjárfesting (sala auðlinda og arðrán)

AGS og ESB er nauðsynlegt til að laða að erlenda fjárfestingu

Endurreisn efnahagskerfisins (=nauðung þjóðar)

Ónafngreindir sérfræðingar hafa tjáð okkur (=slúður)

Ég trúi því að .....(og svo kemur þvælan=

.....á grundvelli þess ég tel vera líklegt (og þvæla=

Ónafngreindir sérfræðingar hafa tjáð okkur (=slúður)

"vinaþjóðir okkar"


mbl.is Segir AGS standa sig betur hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ef þú átt við icesave sérstaklega og skuldbindingar landsins þar að lútandi - þá hafa ummæli því viðvíkjandi að mestu verið einfaldlega raunsæi.  Að mestu.

Annar með Stiglitz í Silfrinu (af því það var hér til umræðu um daginn)  Þá fannst mér hann ekki segja neitt merkilegt.  Bara svona snakk um daginn og veginn.  Skilur ekki mikið eftir.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.9.2009 kl. 15:15

2 identicon

Ég sé að þú ert að sækja í þig veðrið Jakóbína.

Fara "þeir" ekki að sækja þig ?

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 15:21

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Stiglitz staðfestir í viðtalinu flest það sem komið hefur fram í andófi gegn aðgerðum ríkisstjórnarinnar.

Spurning hvort þú skiljir nægilega vel það sem hann segir ef þetta er niðurstaða þín.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.9.2009 kl. 15:22

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Hákon

Ekki veit ég hvað "þeir" hefðu með mig að gera en ég viðurkenni að ég er sumum til ama.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.9.2009 kl. 15:37

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Fyrri færslan er svar til Ómars Barka

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.9.2009 kl. 15:38

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hvernig "staðfesti" Stiglitz það ? 

Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.9.2009 kl. 15:41

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Með því að leggja nafn sitt sem fræðimanns við þessar ályktanir.

Það ber vott um skilningsleysi þitt Ómar Bjarki ef þú skilur ekki hvaða gildi það hefur þegar einn færasti sérfræðingur heims á sviðinu kemur og leggur nafn sitt við ályktanir.

Hefur allt annað vægi en nafnlausir sérfræðingar ríkisstjórnarinnar sem gefa "hæfileg" álit gegn greiðslu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.9.2009 kl. 15:45

8 identicon

Á Kúpa ekki að vera Kúba ?

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 16:10

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jakobína, eg segi bara eins og kallinn sagði,  eg veit ekkert hvert þú ert fara og erfitt að kommenta eitthvað sérstaklega á þetta.

En já, líklega rétt hjá þér.  Ég er  bara skilningslaus.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.9.2009 kl. 16:23

10 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Ómar Bjarki. Skilningsleysti þitt á þessu tiltekna atriði en ég er ekki að vitna í almennt skilningsleysi.

Kommentið að ofan bendir til þess að þú hafir ekki áttað þig á mikilvægi framlags Stiglitz í málefnum þjóðarinnar.

Jú Hrafn Kúpa á að vera Kúba

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.9.2009 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband