Allt ferlið skrípaleikur

Málið á rætur sínar í stefnu sjálfstæðisflokks og framsóknar sem fylgdu eftirfarandi stefnu í valdatíð sinni:

Afhenda bankanna glæpamönnum

Færa arðsemi af orkuframleiðslu úr landinu til erlendra auðhringja.

Einokun og samþjöppun í verslun á kostnað neytenda

Skattpína láglaunafólk en búa til skattaívilnanir fyrir hátekjufólk

Þiggja mútur og vinna að hag þeirra sem múta þeim

Skapa efnahagsumhverfi sem felur í sér mesta mismunun á lífskjörum sem þekkjast í vestrænu ríki

Eyðileggja sjávarútvegsgreinina og arðsemi af henni fyrir þjóðarhag til þess að hygla að hagsmunum LÍÚ, þ.e.a.s. fámenns hóps manna sem hafa spilað með arðinn af auðlindinni og fært hann úr landi.

Sjálfstæðisflokkurinn staðfesti eftir hrun að þessi stefna væri óaðfinnanleg.

Í kjölfar bankahrunsins skrifaði sjálfstæðisflokkurinn (embættismennirnir Áslaug Árnadóttir og Baldur Guðlaugsson) upp á að skuldir Landsbankans (sem sjálfstæðisflokkurinn þáði mútur af og skaffaði ofurlaunastörf fyrir vini og vandmenn) skyldu gerðar að skuldum alþýðu Íslands.

Síðan hófst áróðurinn og skammirnar gagnvart íslenskum almenning sem sakaður var um glæpinn sem stjórnmálamenn, embættismenn og glæpanautar þeirra í bönkum höfðu framið.

Fáránleikinn heldur áfram í núverandi ríkisstjórn sem einnig vinnur að því af öllum afli að gera skuldir glæpamanna að skuldum almennings.


mbl.is Stjórnvöld á undanhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tryggvi Gunnar Hansen

hópafneitun og hópnevrósu...

Tryggvi Gunnar Hansen, 22.10.2009 kl. 19:39

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þjóðin ber ábyrgð á orðum og gjörðum stjórnmálamanna. Undan þeirri ábyrgð getur hún ekki losnað með neinu móti. Við erum að fást við afleiðingar hagstjórnarmistaka Sjálfstæðisflokksins. Gleymum því aldrei!!!!

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.10.2009 kl. 20:33

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jóhannes hvernig í ósköpunum kemst þú að þeirri niðurstöu að þjóðin beri ábyrgð á orðum og gjörðum stjórnmálamanna?

Ekki getur þjóðin gert af því þótt þetta fólk ljúgi oftar en það segir satt.

Ekki getur þjóðin gert af því að embættismenn og viðskiptaráð sem hún hefur aldrei gefið atkvæði sitt semji lögin í landinu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 22.10.2009 kl. 20:41

4 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Og til að forða misskilningi, þá gleymdi ég ekki Framsóknarflokknum. Halldór Ásgrímsson, Finnur Ingólfsson og Valgerður Sverrisdóttir eru holdgervingar þeirra spillingar sem spratt af hrossakaupum og baktjaldamakki sem einkenndi stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í 17 ár.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.10.2009 kl. 20:42

5 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Jakobína, þú veist hvað ég á við. Fulltrúalýðræðið sem við búum við með ónýta stjórnarskrá veldur því að stjórnmálastéttin verður aldrei dregin til ábyrgðar. Og þótt fjórflokkurinn setji upp leikrit til að blekkja þjóðina, þá er það staðreynd að þeir halda í veigamestu atriðum saman gegn öllum tilraunum almennings, til að skerða völd þeirra og áhrif.

Við getum alveg haft endaskipti á stjórn og stjórnarandstöðu og málflutningur þeirra í icesave málinu yrði nákvæmlega eins og hann hljómaði í dag.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.10.2009 kl. 20:52

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jóhannes farðu þá inn á http://framtidislands.is og bættu nafninu þínu á undirskriftalistann.

Tek undir það sem þú segir um Icesave. það er bara verið að sópa skít undir mottuna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 22.10.2009 kl. 20:59

7 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Veistu það Jakobína, að ég skrifaði undir InDefense áskorunina og horfði síðan uppá hvernig sú hreyfing var misnotuð, einum stjórnmálaflokki til framdráttar.  Þessvegna er ég dálítið mikið tortrygginn á allar svona undirskriftir.  Ég skrifaði líka undir áskorun Njarðar P Njarðvík um stjórnlagaþing og sjáðu bara svikin hjá Ólínu Þorvarðardóttur í því máli.....

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.10.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband