Úlfasamfélagið

Hvert samfélag hefur tiltekið skipulag sem skapar grundvöll lífsskilyrða fyrir meðlimi þess.

Samfélag úlfa hefur tiltekna uppbyggingu sem úlfar þekkja. Í hjörð úlfa er forystuúlfur, skipulagið er valdskipt og gefur einstaklingum í hjörðinni mismunandi skyldur og mismunandi réttindi. Þeir sem eru á botninum í valdapíramídanum fá leifarnar sem verða eftir þegar að aðrir eru búnir að fáúlfur 1 nægju sína en það getur stundum verið ekki neitt. Þeir eru samt tiltölulega sáttir við hlutskipti sitt vegna þess að þeir eru í hlutverki sem þeir þekkja og fara eftir reglum sem þeir þekkja. Ef þeir skorast undan eru þeir tuktaðir til. Í úlfahjörðinni kemur öðru hvoru upp sú staða að gamall, lúinn eða skaddaður foringi verður fyrir áhlaupi af yngra eða sterkara foringjaefni. Þá hefst barátta um forystuna.Úlfur 2

Í íslensku samfélagi hefur þróast skipulag sem líkja má við skipulag úlfahjarðar. Vissulega er barist um forystuhlutverkið innan fjórflokksins en restin af úlfahjörðinni fylgist óróleg með að undanskildum fáeinum óróaseggjum sem vilja riðla skipulaginu en eru jafnan tuktaðir til. Það má nefnilega ekki riðla skipulaginu. Hjarðhegðuninni verður að halda við lýði vegna þess að hún tryggir fámennum hóp yfirburði og bestu bitanna.

Íslenska samfélagið skal lúta áfram lögmálum úlfahjarðar og þeir sem krefjast þess að þessu valdskipulagi sé riðlað og stefnt sé að siðmenningu eru beittir óvönduðum meðölum. Rógburður og uppnefningar eru vinsælt vopn meðal þeirra sem reyna að halda hjörðinni í skefjum á meðan foringjarnir berjast. Markmiðið er að halda þeim utan vígvallarins en hluti hans eru fjölmiðlar.


mbl.is Hafna norrænu sambandsríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Úlfarnir hafa komist af þrátt fyrir að hafa ekkert hagkerfi. Ef við lokum fyrir auðvaldshagkerfið er hætt við að hnefarétturinn taki aftur við með tilheyrandi ofbeldi.  Þótt ég vilji hvorugt sjá þá tel ég auðvaldshagkerfið betra.

Offari, 27.10.2009 kl. 16:37

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Offari þarna er ég ekki sammála þér. Auðvaldskerfið er í eðli sínu það sama og kerfi sem byggir á líkamlegu ofbeldi. Ofbeldið er bara af öðrum toga en veldur líka hörmungum og kostar mannslíf.

það eru til fleiri valkostir.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 27.10.2009 kl. 16:52

3 Smámynd: Offari

Það er kannski rétt hjá þér Bína. En hnefaréttsvaldið getur valdið blóðsúthellingum sem ég vona að ég og börnin mín þurfi ekki að sjá.

Offari, 27.10.2009 kl. 17:06

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Við óþekktarormarnir eigum að halda áfram að ögra þessari svokölluðu forystu.

Kv, ari

Arinbjörn Kúld, 27.10.2009 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband