Hallærislegasta samkunda ársins

Ég er upp fyrir haus að klára að skrifa ritgerðina mína. Er komin á bls. 150 ef einhver hefur áhuga:).

Jæja en hvað um það ég ætlaði sko ekkert að fara að blogga en þá kom upp þessi ógeðlega væmna samkunda sem fólk í sakleysi sínu var platað á í laugardagshöll. Og hver var niðurstaðan af þessu framtaki? Jú allir eiga að vera heiðarlegir og vera vinir.

Er eitthvað að þessari mauraþúfu?Hefur hún ekki tekið eftir því að allur almenningur hefur alltaf verið heiðarlegur og vingjarnlegur það þarf ekki að stefna saman nema þrem einstaklingum til þess að fatta að almúgurinn er vingjarnlegur og heiðarlegur.

Ég hlutstaði á þetta í Kastljósinu og þar kom fram að fólkið var platað. því var stillt inni í ramma og mátti ekki tala eða fá hugmyndir út fyrir hann. Þau fengu spjöld til þess að vinna út frá. Minnir á eitthvað sem gæti komið sér ágætlega fyrir grunnskólann.

Mér þætti samt ágætt ef þetta fólk snéri sér að öðru en að reyna að gera þjóðina heimska.

Ég hef líka frétt að samfylkingin hafi staðið fyrir þessari slepjukomu. Ekki ólíkt fólki á þeim bæ.

Hvers vegna talaði enginn um mútugreiðslur til stjórnmálamanna?

Hversvegna talaði enginn um kúlulán til þjóðhöfðingja svo þeir gætu fjárfest í ´Decode Kára Stefánssonar?

Hvers vegna talaði engin um að það er verið að stinga rannsóknarskýrslu alþingis ofan í skúffu vegna þess að það eru svo margir þingmenn flæktir upp fyrir haus í bankahrunið?

Er þjóðin virkilega að láta leiða sig eins og lömb til slátrunar?

Hvers vegna er verið að fela þessa skýrslu og gefa þjóðinni á kjaftinn með því að segja henni að innihaldi skýrslunnar verði leynt áfram til þess að sömu glæpamennirnir geti stjórnað landinu áfram?


mbl.is Kári áfram hjá ÍE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Þú mátt alveg klára þína ritgerð í friði, en svona pistlar örva heilasellurnar og gera alla ritgerðasmíð markvissari og beittari.

Þannig að þú mátt alveg bæta við, svona eins og 5 pistlum á morgun og hinn, þegar ICEsave þjófnaðurinn verður lögfestur frá Alþingi.

En ég sé að þú hefur upplifað þjóðfundinn á svipaðan hátt og ég.  En ég var ekki viss hvort ég ætti að bomberta hann, allir voru svo jákvæðir.  Þetta var eins og stela sælgæti frá barni út á götu.  Svo fattaði ég að þetta voru ekki börn, heldur harðfullorðið fólk.

Og það lét spila með sig.

En, þrátt fyrir eggjun mína, gangi þér vel með ritgerðina.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.11.2009 kl. 17:58

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ein aðalsprautan þarna var HT hjá viðskiptaráði og auði capital. Það eitt og sér gengifelldi þessa samkomu big time. Og nb, öllu jöfnu er ég afar jákvæður maður.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 18.11.2009 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband