Icesave

Birt í Morgunblaðinu 19. október 2008

Einhvers staðar stendur orð eru til alls fyrst. Orð og merkingin sem þeim er gefin eru nú beitt vopn í höndum ráðamanna í baráttu sinni við „skrílinn".  Forsætisráðherra hefur kosið að kalla fólkið sem tekur þátt i mótmælum skríl. Ég hef verið að taka þátt í mótmælum. Ég er fjögurra barna móðir og mæti á mótmælin fyrir hönd barna minna sem ég vil að eigi framtíð en þá uppnefnir forsætisráðherrann mig og kallar mig skríl.

Annað orð sem ég vil ræða hér og hefur fengið undarlega merkingu í munni ráðamanna er orðið ábyrgð. Merking orðsins verður ekki til í einangrun heldur verður merking þess til við gefnar forsendur.

Sá sem ber ábyrgð þarf að hafa vald, valkosti og upplýsingar eða aðgang gagnvart þeim fyrirbærum sem gefa tilefni til ábyrgðar.

Hollendingurinn sem lagði inn fjármuni á reikninga Icesave gerði það með það í huga að fá góða ávöxtun. Hafi vextirnir verið hærri en stýrivextir í Hollandi þýðir það að Hollendingurinn var að fá greitt fyrir að taka áhættu.

Þegar Hollendingurinn ákveður að eiga viðskipti við Icesave hefur hann vald, valkosti og getur leitað sér upplýsinga um öryggi fjárfestingarinnar og regluverkið í kringum Icesave reikninga. Bæjarfélög í Hollandi eru að sýsla með almannafé og ábyrgð þeirra liggur m.a. í því að velja þeim trygga geymslu og ávöxtun. Þessi rök gilda einnig um Landsbankann, Fjármálaeftirlitið og ríkisstjórnina. Þessir aðilar hafa vald, valkosti og upplýsingar.

En hvað með börnin mín hafa þau völd, valkosti og upplýsingar í þessu samhengi? Vissu þau að Hollendingurinn var að fara að gera vonda fjárfestingu og höfðu þau þann valkost eða vald til þess að stöðva hann? Nei. Af hverju bera þau þá ábyrgð? Hvers vegna eru þau bótaskyld?

Hvert sækir þessi furðulega hugmynd um ábyrgð barna minna lögmæti sitt. Jú, stjórnvöld hafa ákveðið að taka þessi fyrirbæri, þ.e.a.s. börnin mín og Hollendinginn sem vildi góða ávöxtun og troða þeim inn í regluverk. Þetta regluverk skapar „réttlæti" sem engin fordæmi eru fyrir.

Hvað þýðir þetta fyrir börnin okkar? Geta atburðir verið að gerast hvar sem er í heiminum og þau dregin til ábyrgðar með því að spyrða þau við atburðinn í regluverki?

Með því að gefa þessari framkvæmd réttmæti er verið að skapa samfélag meðal þjóðanna þar sem einstaklingar eru rúnir allri vernd. Sakleysið er svívirt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband