2010-03-31
Forræðishyggja #%$%$ans....
Er framburður nafnsins Alexandra ekki í samræmi við Íslenska málvenju?
það er löng hefð fyrir samsettum nöfnum af þessum toga og ég þekki nokkarar Alexöndrur sem ekki eru nokkur vandræði að bera fram.
Febrún er ekki sérlega þjált í framburði og óljóst hvort brún eða rún sé seinni helmingur nafnsins.
Ég legg til að mannanafnanefnd samþykki einnig kvennanöfnin Sept-rún, Okt-rún, Nóv-rún og Des-rún. Síðan má líka velta fyrir sér hvort nöfnin 9-rún, 10-rún, 11-rún og 12-rún séu ekki bærileg. Kannski væri nafnið 2010-rún sniðugt líka.
Það myndi líka slá tvær flugur í einu höggi að tengja nöfn við kennitölur stúlkubarnið myndi þá heita 250310-3449-rún og drengbarnið 260310-3829-mundur.
![]() |
Bentey og Lundi samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-03-31
Ábyrgðarleysi Björns Bjarnasonar
Björn Bjarnason ber ábyrgð á því að dómskerfið á Íslandi nýtur ekki trausts eftir langvarandi klíkuráðningar. Réttarríkið er skaddað af hans völdum. Björn telur rétt eins og Bjarni frændi hans að flokkurinn sem hefur gert Ísland að úrhraki meðal þjóða eigi nú að fá tækifæri til þess að láta reyna á stjórnvisku sína á ný.
Í tíð sjálfstæðisflokks var þróuð menning sem líkist að mörgu leiti fasisma og má jafnframt kalla ný-fasima. Hugmyndafræði stjórnmálamannanna studdi samþjöppun viðskipta og stjórnmála sem varð að alvalda skrímsli sem réðist gegn þjóðinni og gerði 30% hennar að öreygum.
Viðskiptaráð fékk sterk ítök í löggjafavaldi Íslands. Þingmenn hafa í raun verið valdalausir nema þeir sem hafa verið leppar byggingariðnaðar, fjármálakerfis og LÍÚ. Bönkunum var sleppt lausum með slappri löggjöf og ónýtu eftirliti. Dómsvaldið og löggæslan notaði fjármuni sína í að eltast við smákrimma og konur sem stálu sápu í Hagkaup. Efnahagsbrotadeild var skorin niður en sérsveitin sem átti að halda múgnum í skefjum var styrkt.
Ættingjar og venslafólk manna á borð við Björn Bjarnason fengu ofurlaunastörf í fjármálakerfinu, stjórnmálamenn fengu sérstaka fyrirgreiðslu í bönkunum og flokkur Björns Bjarnasonar þáði mútugreiðslur af þeim sem hann vill nú kenna um að hafa sett þjóðarbúið á hausinn.
Satt að segja þá held ég að Björn Bjarnason sé að gera lítið úr því sóðalega ástandi sem ríkti á Íslandi þegar hann heldur því fram að:
Fram að hruni var þeirri stefnu almennt fylgt um heim allan, að stjórnmálamenn ættu að hafa sem minnst bein afskipti af starfi fjármálafyrirtækja. Þeir hálaunamenn og bónusgreifar, sem þar störfuðu, ættu sjálfir að kunna fótum sínum forráð.
Eðlilegt er, að ritstjórar dagblaða í eigu þeirra, sem féllu af hæstum stalli við hrunið, hafi við það lent í vandræðum með að varðveita eigin trúverðugleika og blaða sinna. Einfalda vörnin var að breyta fjármálavafstrinu öllu í pólitískt vandamál og beina spjótunum að stjórnmálamönnunum.
Þessi áróður dugði um nokkurt skeið. Hann bítur hins vegar ekki lengur. Við öllum blasir, að fjármálagjörningar í nafni bankanna voru margir víðs fjarri raunveruleikanum. Bankastjórar höfðu ekki einu sinni fyrir því að krefjast veðtygginga .
Frétt í DV fyrir nokkru:
Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra sárnar mjög við DV vegna þess að vakin var á því athygli að hann hefur á heimasíðu sinni aldrei veist að fjölmiðlum Björgólfs Guðmundssonar eða Björgólfs Thors líkt og gerist með Baugsmiðla sem ráðherranum hefur orðið tíðrætt um í tengslum við meinta spillingu auðmanna. Í umfjöllun á dv.is var nefnt að ráðherrann hefði aldrei haft uppi gagnrýni á IceSavebréf Landsbankans sem nú eru við það að koma þjóðinni á kaldan klaka. Athygli er vakin á því að tengdasonur Björns, Heiðar Már Guðjónsson er einn nánasti samstarfsmaður Björgólfs Thors.
Hvers vegna hafa Engeyardrengirnir ekki gert grein fyrir tengslum sínum við viðskiptalífið?
Hvað er Áning fjárfestingar og hverjir eiga félagið og hvernig tengist það öðrum félögum?
Hvað með eignatengsl við önnur félög s.s. N1, BNT, Vafning o.fl.?
Nú er þess krafist grímulaust að fjölmiðlar verndi útrásarvíkinga.
Ef lánabækur allra bankanna líta út með svipuðu móti og hjá Kaupþingi hafa lán til eignarhaldsfélaga verið yfir 4.000 milljarða. Stærsta bomban er líklegast í Landsbankanum og myndi afhjúpa útrásarvíkinga sem hafa ekki verið mikið í umræðunni.
Enginn hefur lagt sig eins mikið fram um að sópa skítnum undir teppið að mínu mati og Björn. Hann réði feður bankaræningjanna til þess að rannsaka hvort grunur lægi fyrir um brot.
Ein afleyðing af kleptokratísku stjórnarfari í tíð sjálfsstæðisflokks er að erfitt er að finna hátt setta embættismenn sem ekki tengjast inn í glæpamafíuna á einn eða annan hátt.
Dóms og lögregluvald á Íslandi er í raun bara skrípaleikur eftir setu sjálfstæðismanna í tuttugu ár. Valdastofnanir sem verja útrásarvíkinganna eru sköpunarverk sjálfstæðisflokksins.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frétt á Eyjunni hermir að þrisvar sinnum fleiri konur verða fyrir ofbeldi á Íslandi en í nágrannalöndum okkar Noregi og Danmörku.
Á "góðæristímabili" sjálfstæðisflokksins skapaðist á Íslandi anti-feminista kúltúr. Ég hef iðulega getað tengt kvenfjandsamlega orðræðu við kúltúr sem á uppruna sinn í Valhöll.
Viðbrögð femínista hafa verið að nokkru karlfjandsamleg orðræða sem ekki á frekar rétt á sér en kvenfjandsamleg orðræða og er einnig hættuleg hugmyndafræði sem dregur upp mynd af samfélagi sem byggir á jafnrétti. Samfélagi sem byggir á gagnkvæmri virðingu kynjanna.
Hið svokallaða góðæri var falsmynd af samfélagi sem elur á ofbeldi og félagslegum vandamálum sem eiga rætur sínar í hrokafullri afstöðu stjórnmálamanna sem krefjast hjarðhegðunar og mismunun sem ekki á sér sinn líka í nokkru vestrænu landi.
Ráðherrarnir ganga fram hver af öðrum og láta að því liggja að þeir séu að leysa samfélagsvandmál. Það er þó ljóst að mismununin eykst, félagsleg vandamál aukast og ekki er hroki forkólfanna að minnka.
Mismunun = ofurlaunafjölskyldur og fátækt
Ofurlaunafjölskyldur voru ekki 30. Þær voru 615 samkvæmt tölum sem Stefán Ólafsson Prófessor hefur birt og margar þeirra voru innvígðar í sjálfstæðisflokkinn. Þessar 615 fjölskyldur höfðu meiri árstekjur en sem nemur öllum ríkisútgjöldum til heilbrigðismála og háskóla á síðasta ári. Það er kannski grátbroslegt að yfirmaður menntamála, menntamálaráðherra sjálfstæðisflokks, skuli hafa tilheyrt einni af þessum fjölskyldum.
Laun þessa fólks jókst bara með hverju árinu sem leið á meðan laun annarra í þjóðfélaginu drógust saman um 20%.
Þeir sem höfðu fjármagnstekjur þurftu eingöngu að greiða 10% í skatt af sínum tekjum. Þetta fólk er þó hvað drýgst við að notfæra sér það sem skattabyrði almennings stendur undir s.s. flugvelli, keyrir um á þyngstu bílunum og mengar mest.
Hugmyndafræði sjálfstæðisflokks
Almennt hafa sjálfstæðismenn ekki mikið vit á stjórnmálum og stjórnsýslu enda forðast slíkt en einbeitt sér að því að gera stjórnsýsluna að hvíldarheimili fyrir vini og vandamenn en í stjórnmálum hafa þeir haft uppi ábyrgðarlausa hugmyndafræði sem gengur út á að gefa kjölfestufjárfestum velferðarkerfið og undanskilja auðmenn frá því að greiða skatt en skattpína lágtekjufólk.
Þróunin í tíð sjálfstæðisflokks
Stefán ólafson hefur gert grein fyrir þróun ójöfnuður á Íslandi og bólunni sem sprakk:
Ríkustu tíu prósentin hafi farið úr því hafa 21,8% heildarteknanna í að hafa 39,4% þeirra.
Á sama tíma hafi því allir aðrir, þ.e. hin 90 prósentin, farið úr því að hafa 78,2% af heildartekjunum í að hafa 60,6% hlutdeild í þeim.
Ísland var frjálshyggjutilraun heimsins á 10. áratugnum, sagði Stefán. Sú tilraun hafi nú hrunið yfir þjóðina.
Stefán sagði einnig að ríkasta eina prósent fólks á Íslandi hafi á árinu 2007 haft að jafnaði 18,2 milljónir í tekjur á mánuði. Það séu 615 fjölskyldur og því sé mikilvægt að muna að það hafi ekki aðeins verið í kringum þrjátíu menn sem höfðu ofurlaun hér á landi.
Sóðaskapur í tíð sjálfstæðisflokks
Sjálfstæðisflokkur varði í ríkisstjórnartíð sinni vændi og viðskiptaheim sem þrífst á kvenfyrirlitningu. Þetta er menningarkimi í sjálfstæðisflokknum átti ítök bæði í löggjöf og dómskerfinu.
Klíkuráðnir dómarar sjálfstæðisflokksins hafa einatt tekið afstöðu með ofbeldi t.d. gagnvart börnum, gert lítið úr alvarlegum kynferðisglæpum og hafa eyðilagt varnir í jafnréttislögum með fordæmisgefandi dómum.
Dæmi um hæstaréttardóm í ofbeldismáli
Í frétt á Vísi segir:
"Hæstiréttur hefur sýknað karlmann fyrir að hafa slegið tvisvar til þrisvar sinnum drengi á aldrinum 6 ára og 4 ára á beran rassinn með þeim afleiðingum að þeir hlutu roða á rassinn og fyrir að hafa að því loknu borið olíu á rassinn á þeim. "
Það má t.d. spyrja sig hvort að umræddir hæstaréttardómarar og dómsmálaráðherrann myndu telja meðferða að þessu tagi ásættanlega ef þeir yrðu fyrir henni sjálfir.
Hélt satt að segja að svona hegðun gagnvart börnum væri ekki leyfð í siðmenntuðu nútímasamfélagi.
Er ekki komin tími til þess að stjórnmálamenn fari að taka hlutverk sitt alvarlega?
![]() |
Bauð samfanga vinnu við vændi |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
2010-03-30
Er femínisminn á Íslandi á villigötum?
Frétt á Eyjunni hermir að þrisvar sinnum fleiri konur verða fyrir ofbeldi á Íslandi en í nágrannalöndum okkar Noregi og Danmörku.
Á "góðæristímabili" sjálfstæðisflokksins skapaðist á Íslandi anti-feminista kúltúr. Ég hef iðulega getað tengt kvenfjandsamlega orðræðu við kúltúr sem á uppruna sinn í Valhöll.
Viðbrögð femínista hafa verið að nokkru karlfjandsamleg orðræða sem ekki á frekar rétt á sér en kvenfjandsamleg orðræða og er einnig hættuleg hugmyndafræði sem dregur upp mynd af samfélagi sem byggir á jafnrétti. Samfélagi sem byggir á gagnkvæmri virðingu kynjanna.
Hið svokallaða góðæri var falsmynd af samfélagi sem elur á ofbeldi og félagslegum vandamálum sem eiga rætur sínar í hrokafullri afstöðu stjórnmálamanna sem krefjast hjarðhegðunar og mismunun sem ekki á sér sinn líka í nokkru vestrænu landi.
Ráðherrarnir ganga fram hver af öðrum og láta að því liggja að þeir séu að leysa samfélagsvandmál. Það er þó ljóst að mismununin eykst, félagsleg vandamál aukast og ekki er hroki forkólfanna að minnka.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2010-03-30
Standard og Poor: Svipa alþjóðafjármálaafla
![]() |
Áhætta í hagkerfinu minnkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2010-03-29
Hnignun siðmenningar á Norðurhjaralöndum
Það virðist vera orðið viðtekið að stærri þjóðir vaði á skítugum skónum yfir þær minni þegar kemur að hagsmunagæslu hvort sem er í fjármálum, viðskipum eða umhverfismálum.
Það hefur verið sérlega óhuggulegt að horfa upp á hegðun stærri ríkja undanfarin tvö ár og einnig hversu fáir hafa verið tilbúnir til þess að taka upp málstað þeirra minni. Því miður speglar hegðun íslenskra hagsmunaaðila innanlands þessa hegðun á alþjóðavísu.
![]() |
Yfirgaf norðurhjararáðstefnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-03-29
Samdi ASÍ um að LÍÚ fengi að veiða allan skötuselinn ef SA fengi að halda niðri kjörum launþega?
![]() |
Sundurlyndisfjandann má ekki magna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-03-28
Hefur samfylkingin áhuga á hlýðnum rökkum?
Hvernig er staðalímynd rakkans? Frekar heimskur, þægur og auðveldur í taumi. Kötturinn hefur orð á sér fyrir sjálfstæði og því að vera sjálfum sér samkvæmur.
![]() |
VG ræðir ummæli forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)