2009-04-12
Er Árni Johnsen heiðarlegasti þingmaðurinn?
2009-04-12
Ábyrgðarleysi yfirvalda
Ráðherra hefur sagt að tal um að borga ekki skuldir sem ríkissjóður hefur ekki stofnað til sé ábyrgðarlaust tal.
Þetta er nokkuð undarleg afstaða hjá yfirvaldinu sem á að hafa velferð þjóðarinnar að leiðarljósi. Það er ábyrgðarleysi af valdhöfum að taka yfir, fyrir hönd þjóðarinnar og komandi kynslóðir, skuldir einkaaðila sem munu koma þjóðinni á vonarvöl.
Þjóðin á ekki að taka á sig þessar skuldir vegna þess að þjóðin stofnaði ekki til þeirra. Valdhafar eru að nota almenning sem verkfæri til friðþægingar við þjóðir sem hafa valdhafanna í skrúfstykki. Þeim langar að valdhafar annarra þjóða líti á þá sem ábyrga aðila en þeim er sama um þjóðina.
Valdhafar annarra þjóða gefa skít í íslensku þjóðina og íslenska valdhafa en hugsa bara um hvernig þeir geta kreist auðlindir af þjóðinni. Segjum NEI. Við borgum ekki skuldir annarra.
2009-04-12
Niðurskurður og skattar framundan
Stjórnmálaflokkar sem verið hafa í ríkisstjórn undanfarin ár þora ekki að snerta með töngum á aðalkosningamálinu í ár sem er í raun framtíð og fullveldi þjóðarinnar. Skilmálar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, skuldir sem ríkissjóður hefur ekki stofnað til, velferðarkerfið í hættu og yfirtaka auðlinda af aðilum sem koma sér í einokunarstöðu gagnvart þjóðinni.
Ég vil vekja athygli á pistli Andra Geirs en hann gerir samanburð á gagnsæi hjá öðrum þjóðum í ríkisfjármálum og þokukenndar upplýsingar sem berast frá valdhöfum á Íslandi.
Þegar rýnt er í tillögur Íra er alveg ljóst að það er feigðarplan að ætla að keyra ríkishallann niður í 0% 2012. Heimilin í landinu, fyrirtækin og krónan verða lögð í rúst með svo áætlun. Það er því nauðsynlegt að endurskoða samninginn við AGS sem fyrst og fara fram á að við fylgjum fordæmi Íra og fáum að lækka hallann niður í 3% 2013 en ekki 0% 2012. Þetta er hið mikla mál sem ætti að vera eitt aðalkosningamálið í dag. Ef þetta verður ekki gert verða áætlanir svo sem 20% niðurfelling á skuldum skammgóður vermir. Allt sem sparast þar fer beint aftur til ríkisins ekki sem vextir en sem skattar.
Það úrræðaleysi og sú ringulreið sem virðist umlykja íslenska stjórnmálamenn í dag á eftir að verða þjóðinni dýr. Það hlýtur að vera krafa kjósenda í lýðræðisríki að flokkarnir hafi fastmótaða stefnu í ríkisfjármálum og sýni ábyrga afstöðu gagnvart AGS sem tekur mið af þjóðarhag.
Strax að stjórnarmyndun lokinni mun AGS þrýsta á ný stjórnvöld að leggja fram neyðarfjárlagafrumvarp fyrir Alþingi í byrjun maí.
Þar verða veltuskattar stórauknir, hátekjuskattur og eignarskattur innleiddir, ásamt hækkun á öllum öðrum sköttum. Laun opinberra starfsmann verða lækkuð um 10% og þjónustugjöld hækkuð og ný innleidd.
Það þýðir ekkert að setja hausinn í sandinn. Þeir sem ekki trúa mér þurfa ekki annað en að líta út fyrir landsteinana og skoða hvað er að gerast t.d. í Lettlandi og Írlandi. Þar hafa stjórnvöld unnið faglega og tímanlega að sínum aðgerðum og upplýst sína borgara um hvað gera þurfi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-04-12
Fnykurinn berst víða
Ímynd Íslands endanlega í skítnum þökk sé Sigurði Einarsyni. Framsókn takk fyrir þetta. Enginn Íslendingur getur opnað pulsusjoppu í Bretlandi næstu hundrað árin.
Andskotans kjölfestufjárfestar sjálfstæðisflokks og framsóknar búa nú í sínum lúxusvillum og menga andrúmsloftið með andadrætti sínum á meðan rassin er púðraður á sjálfstæðismönnum og framsókn.
Sjálfstæðisflokkur og framsókn verja nú mútufé í áróður fyrir næstu alþingiskosningar. Ekki er hægt að opna vefsíðu eða dagblað án þess að glott formanna þeirra blasi við.
Fordæmalaust tillitleysi við ungafólkið sem þeir hafa rústað framtíðinni fyrir.
Stærsti glæpur mútuþeganna er að þeir hafa rústað trausti þjóðarinnar á réttarríkinu. Og þeir vilja endurvekja traust. Hvernig? Jú með því að láta smápeð taka á sig sökina og sópa skítnum undir teppið. Ég er hrædd um að fnykurinn berist eftir sem áður undan teppinu.
![]() |
Tapaði öllu á íslenskum bönkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég er hrifin af kenningum sem Gunnar Tómasson hagfræðingur setur fram á Gang8. Ég skil þessar kenningar þannig að peningar eigi sér tvennskonar rætur. Þeir eru annars vegar framleiðslupeningar og hins vegar snýkjupeningar. Framleiðslupeningar verða til við verðmætasköpum þar sem auðlindum er umbreytt í verðmæti. Snýkjupeningar verða til í fjármálakerfinu og valda verðbólgu vegna þess að það eru engin verðmæti á bak við þá.
Gott væri að fá komment á þennan skilning minn frá spekingum
Mér hefur oft dottið í hug að eina vitið væri að hafna þessum mælingum sem eru að mæla þjóðina til fjandans. Hafna útreikningum fjármálakerfisins á skuldum okkar. Enda eru þetta að mestu platskuldir.
Amen
Þetta hefur Gunnar Tómasson hagfræðingur um peninga að segja:
In principle, there are two kinds of money - productive and parasitic.
By productive money I mean the IOUs which link Owner/Suppliers of Factor Inputs, on the one hand, and Entrepreneurs/Buyers of Factor Inputs, on the other hand.
Such money represents what Adam Smith termed the great wheel of commerce (or circulation).
In practice, Entrepreneurs/Buyers of Factor Inputs exchange their IOUs for IOUs issued by commercial banks alias legal tender money.
Legal tender money conveys a guarantee to Owner/Suppliers of Factor Inputs that they can redeem them in the Final Output equivalent of Factor Inputs supplied.
By parasitic money I mean the IOUs which non-Owner/Suppliers of Factor Inputs exchange for IOUs issued by commercial banks alias legal tender money for the purpose of acquiring part of the Final Output equivalent of Factor Inputs supplied by Owner/Suppliers of Factor Inputs.
Thereby parasitic money becomes a vehicle of Final Demand Inflation, whereby the ownership rights to Final Output of Owner/Suppliers of Factor Inputs are diluted.
In the Market for Final Output, Productive + Parasitic Money = Aggregate Demand become the source of Profit and/or Interest on Production Credit.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.4.2009 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2009-04-11
...en mútugreiðslur vegna annarra verkefna
Hefur það verið viðtekin regla hjá stóru flokkunum að taka við mútugreiðslum í kosningasjóði og prófkjör? Hversu mörg verkefni hafa stjórnast af mútugreiðslum?
Er allt komið fram sem skiptir máli um spillingu stjórnmálaflokkana? Við þekkjum afleiðingarnar.
Hvernig væri að upplýsa okkur um:
Þegar Kögun var einkavædd
Þegar sjávarútvegsfyrirtæki voru einkavædd
Þegar kvótaframsalið var innleitt
þegar skýrr var einkavætt
Þegar lóðum í miðbæ Reykjavíkur var úthlutað
Þegar bankarnir voru einkavæddir
ÞEGAR HITAVEITA SUÐURNESJA VAR SELD
Þegar viðskiptaráð er með puttana í lagasetningu um sjúkratryggingar
Þegar aflestrarmælar Orkuveitunnar seldir
Þegar samið eru um orkusölu til iðjuvera
Þegar samið er um verktöku vegna stórra framkvæmda
Þegar Kjölur á Keflavíkurflugvelli er seldur
![]() |
Allt komið fram sem máli skiptir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 12.4.2009 kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Samfylking, sjálfstæðirflokkur og framsókn hafa rústað þjóðarbúinu.
Unga fólkið í landinu er reitt.
Það var framtíð unga fólksins sem flokkarnir rústuðu.
Þeir þora ekki að segja NEI. Þeir ætla að láta unga fólkið blæða fyrir misgjörðir stjórnmálamanna sem þegið hafa mútur með því að skuldbinda skattgreiðendur til þess að borga skuldir sem ríkið hefur ekki stofnað til.
Unga fólkið er reitt með réttu.
Það verður að huga að því að byggja upp framtíð fyrir komandi kynslóðir á Íslandi.
Það verður ekki gert nema að leita til frumatvinnuveganna, efla framleiðslu og útríma einokun, höftum, samþjöppun, kvótaframsali og ofríki valdakerfisins.
Það þarf að bjarga fólkinu en ekki fjármálakerfinu.
Skattgreiðendur eiga ekki að greiða einkaskuldir.
Það þarf að tryggja auðlindirnar í þjóðareign.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2009-04-11
Almenningur á heimtingu á svörum!
Bréf frá Helgu Sig.
Sannleikann upp á borðið strax eftir páska!
Frá því sl. haust þegar þáverandi forsætisráðherra, Geir Haarde, sagði: Guð blessi Ísland" hafa margir í röðum stjórnmálamanna, embættismanna, fréttamanna og sauðsvarts almúgans rætt um hvar á að skera niður ríkisútgjöldin. Vafalítið erum við nokkuð mörg sem spyrjum: Hvers vegna á að skera þau niður?, en raddir okkar eru ekki eins háværar og hinar. Þetta er hins vegar grundvallarspurning:
Hvers vegna á að skera niður ríkisútgjöld á Íslandi? Því svara talsmenn niðurskurðarins engu.
Hvers vegna ekki?
Hvers vegna spyrja fréttamenn og dagskrárgerðarmenn ekki hvers vegna á að skera niður ríkisútgjöldin?
Samkvæmt fréttum frá því í fyrra þá var ríkissjóður skuldlaus. Ég hef ekki heyrt að ríkissjóður hafi tekið lán síðastliðið ár. Hvers vegna þarf þá að skera niður ríkisútgjöldin?
Ef rétt er að ríkissjóður hafi verið skuldlaus í fyrra og að ríkissjóður hafi ekki tekið lán síðastliðið ár þá þarf ekki að skera niður ríkisútgjöldin.
30, 40 eða 50 einstaklingar með íslenskan ríkisborgararétt stofnuðu til viðskipta við útlendinga og fengu lán hjá þeim langt umfram greiðslugetu þeirra. Hvað koma þessi lán íslenskum almenningi við?
Fyrr en ráðherrar hafa svarað þessum spurningum málefnalega, í smáatriðum, af hreinskilni og með rökum þá á íslenskur almenningur að hafna því alfarið að stjórnmálamenn og embættismenn skeri niður ríkisútgjöld.
Það er í skásta falli ókurteisti stjórnvalda að ætlast til þess að íslenskur almenningur kjósi þann 25. apríl án þess að hafa svörin við ofangreindum spurningum og í versta falli gæti það verið eitthvað það sem ég vil ekki gefa nafn að ætlast til þess að kjósendur geri upp hug sinn án þess að vita hvað hefur verið samið um bak við töldin.
Hverjir eru skilmálar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins?
Í lýðræðisríki geta þeir ekki verið leyndarmál.
Hver er sannleikurinn í Icesave-málinu?
Hvernig tókst Evrópusambandinu að gera íslenskan almenning ábyrgan fyrir Icesave?
Þeir frambjóðendur til Alþingis sem vilja fá atkvæði kjósenda, sem eru látnir kjósa með sannleikann umvafinn leyndarhjúp, gefi sig fram.
Aðrir frambjóðendur leggist á árarnar með almenningi um að láta stjórnvöld segja sannleikann fyrir kosningar.
Ráðherrar eiga engan frið að fá fyrr en þeir hafa sagt íslenskum almenningi allan sannleikann umbúðalaust!
Helga
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2009-04-11
Rotið valdakerfi
Það kemur berlega í ljós að flokkræðiskerfið sem ríkir á Íslandi er spillt og rotið. Mútur til hægri og vinstri til allra stóru flokkanna.
Hvers vegna vill framsóknarflokkur ekki birta bókhald sitt? Hvað er hann að fela? Ef þeir sem styrkja vilja ekki að það sé gert ljóst almenningi hafa þeir eitthvað að fela. Varla er það eingöngu skömmusta vegna tengsla við framsókn þótt þau séu vart neitt til að vera stoltur yfir.
Spillingin teygir þræði sína inn í alla stóru flokkanna. Það er þægilegt fyrir frambjóðendur að láta bara rétta sér mútufé. Fjöldi stjórnmálamanna hafa eytt milljónum og tugum milljóna í prófkjör. Vita þeir ekki heldur hvaðan þeir fjármunir koma?
Valdakerfið á Íslandi þarfnast gagngerrar endurhönnunar.
Svokallaðir flokkseigendur í öllum flokkum eru sekir og berjast gegn breytingum á valdakerfinu.
Almenningur á heimtingu á því að fjármálaöfl losi krumlur sínar af atvinnulífi þjóðarinnar. Almenningur á heimtingu á því að mafían stígi til hliðar og hleypi heiðarlegu fólki að.
![]() |
Segir báða framkvæmdastjóra hafa vitað af styrkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-04-11
Sjálfstæðisflokkurinn liðast í sundur
Það er ekki ljóst hvort að allir þingmenn sjálfstæðisflokksins treysti sér til þess að kjósa hann.
Heiðarlegt fólk sem ekki hefur gert sér grein fyrir mafíustarfsemi flokksins leitar nú á önnur mið.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur með sviksemi sinni við kjósendur rústað atvinnulífinu og fjárhag fjölskyldna.
Ýmsum spurningum er ósvarað.
Hvers vegna má ekki rannsaka Landsbankann. Tengist það höfðinglegum mútum til sjálfstæðismanna. Björn Bjarnason var mjög góður við Landsbankann í haust.
Sjálfstæðisflokkurinn þyggur mútur til vinstri og hægri. Sjálfstæðisflokkurinn selur stórfyrirtækjum almannahag.
Almenningur er að greiða gríðarlega skatta til auðmanna sem hirða rentur af stolnum ríkisfyrirtækjum og auðlindum sem ættu að vera í eigu þjóðarinnar.
Frjálslyndir berjast gegn þessari spillingu.
![]() |
Söfnuðu fé fyrir flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |