Gæluverkefni eða raunveruleg atvinnusköpun?

Eru stjórnmálamenn ekki enn farnir að fatta raunverulega stöðu þjóðarbúsins? Upplýsingar um atvinnumál.

Ekki að furða þótt bandríkjaforseti vilji skoða kapítalistaundur veraldar

....og ekki skrýtið að Össur langi til að sýna honum það.

Össur var jú virkur meðreiðarmaður þess að koma efnahag þjóðarinnar í rúst.


mbl.is Obama vill til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn farnir að skammast sín fyrir flokkinn

Nú beita þingmenn sjálfstæðisflokksins öllum ráðum til þess að koma í veg fyrir að þjóðin geti bjargað auðlindunum frá græðgisöflunum.

Þeir vilja ekki aðhald frá þjóðinni

Þeir vilja að getað sölsað undir sig auðlindirnar

LÍÚ vill að við gefum þeim fiskinn sem syndir í sjónum AFTUR og borgum skuldir þeirra.

Stjórna leppar auðvaldsins atferli stjórnmálamanna?


mbl.is Enn langt í land eftir 36 tíma umræður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skildi hún vera stolt af verkum sínum?

Það fer greinilega vel á með Finni og Valgerði enda fyrirætlanir þeirra stórar. 494831A

Mikill áhugi Valgerðar á atvinnumálum hefur ekki reynst þjóðinni vel.

Fjármálakerfið á Íslandi hefur lamað atvinnulífið. Spillingin er svo ótrúleg að fólk getur ekki gert sér hana í hugarlund og fer gjarnan í vörn fyrir spillingarliðið.

Hvernig voru bankamálin á þessum tíma og hverjir fengu bankanna og fjármálafyrirtækin.

Voru ekki Bjarni Ármanns og Finnur Ingólfs í þeim hóp.

Já það er eins gott að vera ekki að tala illa um þetta fólk. 18.000 atvinnulausir. Hálf þjóðin í skuldaránauð. Þjóðarbúið á hvínandi kúpunni.....Já og þau brosa fallega og láta eins og þau séu bara saklaus.


mbl.is 22 ára þingferli Valgerðar lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankar og lánadrottnar græða á efnahagsástandinu!

Michael Hudson er sérfræðingur í alþjóðafjármálum og hefur verið ráðgjafi Hvíta hússins og varnarmálaráðuneytisins í Bandaríkjunum.

Dv fjallar um grein hans í Fréttablaðinu:

Hudson segir að Íslendingar verði að átta sig á því hvers konar sjálfseyðingarástand íslenskir bankamenn hafa skapað. Hann segir að á hálfrar aldar ferli sínum sem fræðimaður hafi hann sjaldan eða aldrei séð neitt í líkingu við ástandið hér á landi.

Hann segir Ísland hafi, ólíkt öðrum þjóðum, fundið leið til þess að steypa sér í skuldir með hjálp verðbólgunnar, í stað þess að vinna sig úr þeim. Verðtrygginginn hafi gert það að verkum að bankar geti stóraukið tekjur sínar af lánastarfssemi á kostnað raunverulegrar atvinnustarfssemi.

Ég hvet fólk til þess að lesa grein Hudsons.


Pirrandi glott ríku strákanna

Það er ekki hægt að opna veffjölmiðil án þess að mæta pirrandi glotti ríku strákanna sem ætla að auglýsa sig til valda.

Úbs það er Ólafur Jóhann Ólafsson sem ætlar að græða á sérþekkingu á sviði virkjunar jarðvarmaorku?

Hverjir starfa fyrir Event Holding og af hverju græða þeir ekki bara sjálfir á sérþekkingu sinni?

Event Holding er dótturfélag Geysis Green Energy sem er m.a. í eigu Glitnis, FL group og fleir sem reyndu að komast yfir orkuveituna. Man ekki betur en Bjarni Ármanns hafi tengst því dæmi.

Geysir Green Energy hefur ásælts jarðvarmann á Íslandi og vill gera sér íslenska sérfærðiþekkingu að virðisauka.  

Geysir Green Energy hefur komist yfir 28% hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Ágætt dæmi um einkavinavæðingu sem sjálfstæðismenn í Keflavík FAGNA

Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warner fjölmiðla-samsteypunnar og bandaríska fjárfestingarfélagið Wolfensohn & Company eru nýir hluthafar í Geysi Green Energy. Á hluthafafundi sem haldinn var í Reykjanesbæ í dag tóku Ólafur Jóhann Ólafsson og Adam Wolfensohn sæti í stjórn Geysis og var Ólafur Jóhann kjörinn formaður stjórnar. Ásgeir Margeirsson forstjóri félagsins segir mikinn feng í því að fá jafn öfluga og alþjóðlega virta fjárfesta og Ólaf Jóhann og Wolfensohn & Company til liðs við félagið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Geysi Green Energy sem fer hér á eftir.

Og auðlindin seld erlendum auðjöfri:

Adam Wolfensohn, framkvæmdastjóri Wolfensohn & Company, segir að starfsemi Geysis falli mjög vel að þeim áherslum sem fjárfestingastefna þeirra byggi á. Wolfensohn & Company hefur komið að ýmsum verkefnum í orkuiðnaði sem tengjast endurnýjanlegri orku, sérstaklega verkefnum í þriðja heims löndum.


mbl.is Tugir starfa við hönnun virkjunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir á fjárlögum?

Bjarni Harðar spyr:

Kannski væri bara hreinlegast að setja Jón Ásgeir beint á fjárlög svo dýr sem hann er að verða skattgreiðendum?

Eiga skattgreiðendur virkilega að bjarga Byr?

En bíddu við á ekki Árni Matt líka Byr?

Er ekki komið nóg af því að skattgreiðendur leggi fram fé í bankanna fyrir það sem eigendurnir hafa stolið?

Er ekki nær að eigendurnir skili því bara?

Vígbúnaður gegn almenningi

Almenningur er arfareiður víða um lönd vegna þess hvernig fjármálakerfið hefur arðrænt almenning.494787B Auðvaldið kemur saman og ræðir hvernig sem mestu má ná af almenningi sem það vill koma í ánauð.
mbl.is Átök í Strassborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríku strákarnir tala furðulega

Hvernig er hægt að segja að hér sé hægt að byggja upp atvinnulíf vegna þess að hér sé svo vel 070830-121259menntað fólk og talað er síðan um stóriðjuframkvæmdir sem mannfrekar. Stóriðjuframkvæmdir eru fjárfrekar framkvæmdir sem skapa fá en dýr störf.

Það er því miður svo að búið er að mennta þúsundir einstaklinga til þess að þjóna alheimsfjármálamiðstöð sem aldrei verður til. Ætlar Bjarni Benediktsson að senda viðskiptafræðinganna, lögfræðinganna og viðskiptaalþjóðalögfræðinganna í vinnu í álverum?

Nei framtíð þjóðarinnar byggir á atvinnulífi sem sprettur upp í sveitum landsins. Atvinnulífi sem krefst fjölþættrar þekkingar en ekki hreppaflutninga.

Sjálfstæðisflokkur og framsóknarflokkur eru búnir að drepa niður traust á þjóðinni erlendis, hneppa almenning í skuldaánauð og drepa niður atvinnulíf.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband