Skilanefnd vinnur fyrir Breta og Hollendinga

Hlutverk skilanefndar er að gæta hagsmuna kröfuhafa en ekki hagsmuna ríkisins eða almennings.

Skilanefndin segir að "gera megi ráð fyrir" en ég spyr á hvaða forsendum...að 90% fáist upp í "forgangskröfur" og hverjar eru þær.

Hvernig er farið með það ákvæði í Icesavesamningsins að 50% innheimtna skuli renna beint til Breta og Hollendinga?

Er það innan eða utan þessara útreikninga?

Skiptir það engu máli? Samkvæmt þessum fullyrðingum munar það 300 milljörðum auk vaxtagreiðslna.

Ef til eru svon miklar eignir í Landsbankanum hvers vegna ganga Bretar og Hollendingar þá svona hart eftir því að gera Íslenska ríkið ábyrgt fyrir 750 milljörðum?


mbl.is 90% upp í forgangskröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilja slátra lífeyrissjóðum

Viðskiptaráð er gríðarlega flækt í alla þá atburðarrás sem leiddi til hruns. Ef við skoðum nöfn þeirra sem skipa stjórn viðskiptaráðs þá kemur eftirfarandi í ljós:

Erlendur Hjaltason
Ingólfur Helgason
Halla Tómasdóttir
Katrín Pétursdóttir
Kristin Jóhannesdóttir
Halldór J. Kristjánsson (Landsbankastjóri)
Knútur Hauksson
Þór Sigfússon (bróðir Árna Sigfússonar og stjórnandi Sjóvár sem var styrkt úr ríkissjóði um 16 milljarða)
Lárus Welding
Hildur Árnadóttir
Róbert Wessman
Þórður Magnússon
Ari Edwald
Jón Sigurðsson
Hreggviður Jónsson
Margrét Pála Ólafsdóttir
Guðmundur Kristjánsson

Í varastjórn situr Friðrik Sophusson sem hlóð fimm milljarða skuld á Landsvirkjun á nokkrum árum en þessi skuld er meðal þess að setur núverandi ríkisstjórn í sérlegan vanda við úrlausn mála. Mér hefur verið tjáð að skuldir Landsvirkjunar séu skammtímalán....sem þarf að endurnýja....Hver er svo vitlaus að taka skammtímalán til þess að fjármagna mannvirki sem skila á tekjum á áratugum eð jafnvel öld?

Þessir útrásarvíkingar telja nú að eðlilegt sé að launþegar greiði skuldir sem þeir söfnuðu að fyrirtækjum í "góðærinu" t.d. skuldir Icesave.

Viðskiptaráð hefur hreykt sér að því að hafa ráðið yfir löggjafanum árið 2006. Segjast hafa fengið 90% óska sinna um lagabreytingar árið 2006.


mbl.is Viðskiptaráð: Lífeyrissjóðir láni fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherrar þurfa að fara að sýna dómgreind!

Úps...erfiðir tímar framundan hjá ráðherrum og ráðuneytisstjórum.

Í nýju siðarreglunum eru ýmis ákvæði sem mun reynast mörgum erfið í stórnarráðinu. Það er t.d. ætlast til þess að menn/konur fari að segja satt. Sú krafa er einning gerð til þeirra að þeir fari að lögum....

Þess er nú krafist að menn/konur í stjórnarráði forðist sóun fjármuna og síðan er farið fram á það fólk að það axli ábyrgðCrying


mbl.is Ráðherrum settar siðareglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband