2009-10-18
Ótrúleg Óskammfeilni
Sjálfstæðisflokkurinn skuldbatt Ísland 5. des. 2008 til þess að fara í með Icesave-deiluna í pólitískan farveg. Sjálfstæðisflokkurinn lét alla kærufresti renna út vegna brota Breta á íslensku þjóðinni. Það var hluti af plotti sjálfstæðismanna með Baldur Guðlaugsson í fararbroddi. Plott gegn íslensku þjóðinni nota bene.
Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn vara að keyra þetta mál í skítinn stóð fólk á torgum og öskraði en þeir létu ekki segjast og héldu sínu striki. Þegar sjálfstæðismönnum var að lokum fleygt út úr stjórnarráðinu voru þeir búinir að keyra þetta Icesave í versta farveg sem hugsast.
Stærsta vandamál ríkisstjórnarinnar í dag er að tryggja eignarhald á auðlindunum, virkjunum og veitukerfum sem sjálfstæðismenn veðsettu upp í rjáfur.
Ekki heldur nóg með það heldur fjármögnuðu fíflin virkjanir á skammtímalánum sem nú eru að falla í gjalddaga. Hvaða fífl fjármagnar mannvirki sem nota á í hundruð ára með skammtímalánum. Svar, sjálfstæðisflokkurinn og framsókn.
Og nú langar þeim að kjötkötlunum sjálfstæðisflokknum og eignarhaldsklíkunni á bak við framsókn...títtnefndur Finnur Ingólfsson. Við skuldum heldur ekki gleyma að pabbi hans Sigmundar Davíðs hefur setið í stjórn N1 með Bjarna Ben eða einhverjum ættingjum hans.
Það virðist vera lítið annað í boði fyrir þessa þjóð en skítur.
Hérer Bjarni Ben þan 5. des sl. að mæla fyrir IcsSave en Pétur Blöndal var ekki hrifinn en Bjarni Ben lét ekki segjast og sópaði málinu út af þinginu enda búið að ákveða að Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri (sem seldi öll hlutabréfin sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun) ætti að sjá um samninga við Breta en hann kom málinu í þann farveg sem Svavar Gestsson tók síðan við.
![]() |
Óviðunandi niðurstaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2009-10-18
Ísland er meðhöndlað eins og Afríkuríki
Sem ekki kemur að sök í sjáfu sér nema af því að Afríkuríki hafa verið meðhöndluð mjög illa.
Aðilar ríkissstjórnarinnar eru ekkert sérlega baráttuglaðir heldur bugta sig og beygja í hverju skrefi, fyrir árásaraðilum, svona rétt eins og sjálfstæðismenn gerðu fram að því að þeim var bolað í burtu.
Hvers vegna vill Jóhanna skrifa undir nauðungarsamninginn? Jú til þess að geta fengið risalánið og aflétt gjaldeyrishöftum svo að fjármagnseigendur geti hlaupið með 1.000 milljarða úr landi sem landsmenn þurfa síðan að greiða. Það ævintýri mun kosta ríkissjóð tæpa 40 milljarða á ári.
Ég ætla ekki að reyna að halda því fram að ég sjái einhverja vitglóru í þessu.
![]() |
Lengra varð ekki komist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2009-10-18
Sjálfstæðismenn slefandi
Það var merkilegt að horfa upp á sjálfstæðismenn í Silfrinu en þeir eru nú slefandi yfir að hafa tekist að koma sektinni af Icesave-málinu yfir á núverandi ríkisstjórn en þeirra markmið eru að þessi óskapnaður sem þeir sköpuðu sjálfir komist í gegn um þingið.
Sjálfstæðismenn miða að því að koma tapinu sem þeir ásamt "alþjóðasamfélaginu" eru ábyrgir fyrir en vonast til þess að málið sprengi ríkisstjórnina í leiðinni.
Draumurinn er síðan að koma á svipaðri samvinnu með samfylkingu og var hér árið 2007. Síðan skal bara haldið áfram í einkavæðingaráformum og áformum um að búa til stóran fátækan hóp í samfélaginu meðan fáir mata krókinn með því að vera á mála hjá stóriðju og moka hér úr auðlindum og færa ávinningin úr samfélaginu.
Þetta virðist 34% þjóðarinnar vilja.
2009-10-18
Lögmál frumskógarins ráða í þessu máli
Hvernig er hægt að vera ánægður með niðurstöðu sem felur í sér að eðlileg niðurstaða málsins er hunsuð jafnvel þótt hún fái staðfestingu fyrir dómstólum?
Steingrímur J Sigfússon er ánægður með það en hann segir samkvæmt MBL "að hann sé mjög ánægður með þá niðurstöðu sem fengist hefði í Icesave-málinu."
Það er augljóst að lögmál frumskógarins hafa fengið að ráða í þessu máli en gott siðferði og lögmál réttarríkisins hafa verið yfirgefinn.
Vissulega er ábyrgð sjálfstæðismanna mikil en það er undarlegt að fjármálaráðherrann skuli vera ánægður með þessa framvindu sem markast af lágkúru og hugleysi stjórnvaldsins.
![]() |
Lagalegir fyrirvarar halda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bretar og Hollendingar vita að málið er þeim tapað fyrir dómstólum. Þetta hafa þeir vitað frá upphafi. Þegar þeir komust að því hvað íslenskir stjórnmálamenn senda rykfallna kerfiskarla til samninga keyrðu þeir allt í botn.
Fólk sem hefur ekki hundsvit á því hvað það er að gera hefur talið sig til þess bært að stjórna landinu og takast á við Breta og Hollendinga.
Sá kvittur var á kreiki í sumar var að samningurinn væri uppfullur af gildrum og ég verð að taka undir það.
Ein blekkingin eru þessi svokalla 7 ára grið en þau eru alls ekki til staðar fyrir íslenskt efnahagskerfi heldur verið þegar á næsta árið byrjað að vinda gjaldeyrisvaraforðann til þess að koma fjármunum í breskan og hollenskan ríkissjóð. Þetta verður gert með því að vinda Landsbankann.
![]() |
Ríkisstjórnarfundur um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Almennt starfsfólk mátti ekki sjá skattframtöl ýmissa valdamanna.
![]() |
Skatturinn rannsakar breska þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2009-10-18
Undirmálsfólk í Ríkisstjórn
Ég lýsi hér með vantrausti á þessa ríkissjórn, á samninganefndina og krefst þess að þetta fólk segi af sér.
Þetta ferli aulaháttar í þessari Icesave-deilu gengur gjörsamlega fram af mér.
Ráðherrarnir og þessi sendinefnd eru þjóðarskömm.
![]() |
Icesave-fyrirvörum breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)