Ný hugsun er það eina sem dugar gegn óværunni

Fjármálakerfið er óværa á atvinnulífinu. Markmið fjármálakerfisins er að ná til sín verðmætum sem atvinnulífið skapar. Kreppan er niðurstaða af gengdarlausri græðgi óværunnar.

Á Íslandi var óværan gráðugri en víðast hvar annars staðar og því er vandinn dýpri en víðast hvar annars staðar.

Ég var á hverfisfundi í Breiðholti í kvöld. Það voru þrír einstaklingar úr byltingunni í pallaborði. Ég frá Frjálslynda flokknum, Birgitta frá Borgarahreyfingunni og Lilja frá Vinstri Grænum. Sigríður Ingibjörg kom frá Samfylkingu, Guðlaugur þór frá sjálfstæðisflokki og ég held að hann hafi heitið Einar frá framsókn.

Það furðaði mig að enn tala sumir fyrir gömlum lausnum sem eru nú vandamál dagsins í dag. Vondar lausnir sem eru rætur þess hruns sem við stöndum frammi fyrir. Það eru því miður til stjórnmálamenn og fylgismenn gamalla íhaldsafla sem vilja gera börnin okkar að þrælum auðvaldsins.

Frjálslyndi flokkurinn vill að þjóðin fái frelsi og stuðning til þess að byggja upp nýjar atvinnugreinar og efla þær gömlu sem standa sig í nýjum heimi.

Sumt af því gamla á ekki lengur rétt á sér og við verðum að hafa vit til þess að henda því.


mbl.is Svört spá frá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir

...en hefur hann ekki alltaf verðið sterkur?

Er


mbl.is Vísbendingar um sterkan þorskstofn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóðaskapur

Manni verður flökurt að horfa á aðfarir lögreglunnar. Karlhormónar með keðjusagir og sleggjur brjóta sögu Reykjvíkur í einu vettvangi. Draumaborg karlhórmónabraskaranna er í rústum og nú vilja þeir rústa því sem eftir er. Menningarverðmæti, velferð annarra og vilji skiptir þá engu máli.

Þeir vilja bara sýna að þeir ráði.

Þeir vilja sýna að skjaldborgin er þeirra en ekki almennings.


mbl.is Fékk hland fyrir hjartað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband