2009-04-27
Vanvirðing við þjóðina ...
![]() |
Evrópumálið sett í forgang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2009-04-27
Hvað kosta aðildaviðræður við ESB?
Mikil gjaldeyriseyðsla fylgir aðildarviðræðum.
Það er ekki til gjaldeyrir á Íslandi.
Það eru börnin okkar sem þurfa að borga fyrir þetta framtak.
![]() |
Engin viðskipti á gjaldeyrismarkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-27
Jón Baldvin í túlkunarham
Jón Baldvin heldur því fram að ESB hafi náð meirihluta á þingi í kosningunum. Ég hélt að kosið hefði verið um alls konar málefni í þessum kosningum en ekki um ESB.
Svona þvættingi mun verða troðið ofan í þjóðina næstu mánuði
Jón Baldvin gerði ESB samning sem leiddi til efnahagshruns á Íslandi í haust. Þegar gengið er til samninga við erlenda aðila verður að hafa í huga að göt í samningum geti leitt til þess að misvitrir stjórnmálamenn geta hæglega leitt þjóðina í ógöngur.
Hvers vegna í fjandanum lækkar ríkisstjórnin ekki bara stýrivextina?
Vill Jón Baldvin að ESB svínbeygi þjóðina til þess að gefa eftir auðlindir á móti því að ESB gefi eftir óeðlilegar vaxtakröfur vegna skuldbindinga ríkissjóðs vegna lána sem hann hefur ekki stofnað til og afléttingu kverkataks Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á ríkisstjórn Íslands.
Stendur ESB að baki okurstýrivaxtastefnunni á Íslandi?
Er ESB að knýja íslenska ríkisstjórn til aðildarviðræðna með þráðum sem liggja í gegn um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn?
Þetta má lesa úr orðum Jóns Baldvins.
Skoðanakannanir sýna að meirihluti þjóðarinnar er á móti ESB.
![]() |
Jóhanna á Bessastöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.4.2009 kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2009-04-27
ESB er ekki ríkisstjórnarmál
Það er ólýðræðislegt að gera ESB að stjórnarmyndunarmáli. ESB er mál þjóðarinnar en ekki stjórnmálamanna.
Það kemur í ljós í þessum stjórnarmyndunarviðræðum hvort stjórnmálaflokkar gefi skít í lýðræðið og þjóðina.
Það er heimskulegur málatilbúnaður að halda því fram að það að fara í aðildarviðræður sé eitthvert skref í endurreisn Íslands.
Ef Íslendingar fara í aðildarviðræður á að gera það af gagnsæi en ekki með einhverri þvælu um tilganginn.
![]() |
Umboð til stjórnarmyndunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.4.2009 kl. 13:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2009-04-27
Fela vanhæfni með ESB umræðu
Samfylkingin stendur ráðþrota frammi fyrir því verkefni að hífa þjóðina upp úr þeim skít sem hún ásamt sjálfstæðisflokki kom þjóðinni í.
Framsóknarflokknum tókst að koma nokkrum mönnum inn á alþingi á lokasprettinum með hræðsluáróðri og glottir nú framan í þjóðina sem hann hefur haft að leiksoppi.
Strákarnir í samfylkingunni hafa flogið inn á þing í pilsfaldi Jóhönnu.
Samfylkingin hefur frá því í haust falið getuleysi sitt í ESB umræðunni sem hún hefur þröngvað upp á þjóðina. Í aðdraganda kosninga sýndi samfylkingin mikla óskammfeilni í málflutningi sem hafði þann tilgang að skálda upp samhengi og afvegaleiða þjóðina í skilningi á kostum ESB.
Þáttur fjölmiðlanna er engu skárri en samfylkingarinnar í þessari forheimskandi umræðu.
Úrræðaleysi stjórnmálamanna við að takast á við hin eiginlegu vandamál sem eru afleiðing svartholshagfræði kapitalismans er falin í lausnatilbúningi sem virkar ekki. Hvorki fyrir atvinnulífið né heimilin.
Sú þeysireið að þessum kosningum sem í raun kom í veg fyrir vitræna umræðu sýnir vel viljaleysi þeirra sem komu þjóðinni á hausinn til þess að bæta ráð sitt.
Og framsóknarmenn glotta áfram.
2009-04-27
ESB sérhagsmunamál
Það er augljóst að tilteknir aðilar hafa hagsmuni af því að opna fyrir óheftan innflutning og viðskipti með inngöngu í ESB.
Það er í raun ofbeldi að troða þessari ESB umræðu inn núna þegar kreppan er hið raunverulega áhyggjuefni þjóðarinnar.
![]() |
Evrópumálin erfiðust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-04-27
Furðuleg ESB-villa
Kosningabaráttan fór i ESB skotgrafahernað í boði samfylkingar sem aldrei hefur komið með haldbær rök fyrir inngöngu að því er mér er kunnugt. Hræðsluáróður með dyggri aðstoð fjölmiðla keyrði yfir umræðu um málefni sem raunverulega skipta máli.
Málefni sem skipta máli er efnahagsstjórn, staða krónunnar og vandamál sem snúa að jöklabréfum.
Höfuðviðfangsefni nýrrar ríkisstjórnar er að hífa upp krónuna. Enginn stjórnmálaflokkanna kom fram með haldbærar hugmyndir um það hvernig hann ætli að taka á stöðugum vanda krónunnar.
Ég fæ ekki sér hvernig innganga í ESB leysi þann vanda sem ég viðra hér. Þjóðarbúið hefur tekið á sig gríðarlegt tap vegna falls krónunnar. Ef evra er tekin upp núna þegar krónan er svona lág mun þetta tap læsast inni. Til þess að taka upp evruna þarf fyrst að koma á almennilegri efnahagsstjórn en ég sé ekki hvernig innganga í ESB felur það í sér. ´
Það þarf einfaldlega að taka á afleitum efnahag þjóðarbúsins og almenningur á ekki að líða það að stjórnmálamenn feli vanmátt sinn á bak við þras um ESB og aðildarviðræður.
![]() |
Elítan vill í ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)