Stjórnvöld samdauna lágkúrunni

Hallærið á Íslandi er afsprengi lákúru í stjórnmálum og embættismannakerfi. Eva Joly hefur engöngu fengið innsýn í lítinn kima stjórnsýslunnar og henni er svo ofboðið að hún treystir sér ekki til þess að leggja nafn sitt við vinnubrögðin.

Valtýr Sigurðson hunsar fagmennsku og landslög með því að víkja ekki þegar augljóst er að hann er vanhæfur í embætti saksóknara. Hroki hans samsvarar hroka víða í stjórnmálum og stjórnsýslu þar sem menn glotta nú framan í almenning og halda uppteknum hætti.

Ef Eva Joly neitar samvinnu vegna veru Valtýs í embætti saksóknara mun það eina úrræði okkar að mæta niður á Austurvöll og bjóða honum sömu trakteringar og Davíð Oddsyni.


mbl.is Ein mikilvægasta rannsóknin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er von á góðu meðan klíkustjórnmálin eru við líði?

1. Rússneska mafían --> 2. Björgólfur Thor --> 3. Heiðar Már Guðjónsson --> 4. Björn Bjarnason --> 5. Valtýr Sigurðsson.

1-2 viðskipta

2-3 viðskipta

3-4 tengdasonur

4-5 pólitísk

Þessi tengls hafa fengið að haldast.

Meðan ekki tekið á málum innan samfylkingarinnar mun sóðaskapurinn í embættismannkerfinu viðgangast

Eina von íslensku þjóðarinnar um umbætur í stjórnsýslunni er

ný stjórnskrá,

breytingar á kosningalögum og

ærleg hreinsun í stjórnsýslunni.


Valtýr illa að sér í lögum?

Ef við rifjum upp söguna þá átti til að byrja með að skipa Valtý sem sérstakan saksóknara sem rannsaka átti útrásarspillinguna. Björn Bjarnason taldi Valtý heppilegastan en þeir deila sameiginlegri reynslu því tengdasonur Björn Bjarnasonar er náinn samstarfsmaður Björgólfs Thors.

Björgólfur Thor er þessi sem lifir í vellystingum í London og vill að við borgum skuldir hans.

Eva Joly þú átt heiður skilinn. Hvað er annars með íslenska sérfræðinga? Hvers vegna hafa þeir ekki rögg til þess að gera kröfur í nafni fagmennsku?

Eru þeir allir skíthræddir og við hvað eru þeir hræddir?

Hafa stjórnmálamenn á Íslandi beitt fagfólk slíkum fantabrögðurm að það þorir ekki að verja faglegan heiður sinn?

Ég giska á að svarið sé í mörgum tilvikum JÁ.


mbl.is Björn verður ríkissaksóknari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk stjórnvöld skilja ekki hugtök á borð við vanhæfni.

Orðalag stjórnsýslulaga er of flókið fyrir stjórnvöld ef marka má hegðun þeirra. Andi laganna er þeim líka víðsfjarri. Markmið laganna eru ekki markmið stjórnvalda sem skilja ekki mikilvægi þess að hreinsa til í þeim búðum sem slá skjaldborg um glæpamenn.

Eva Joly segir:

Annars vegar verði Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, að víkja vegna fjölskyldutengsla sem gera hann vanhæfan og hins vegar verði að stórefla embætti sérstaks saksóknara.


mbl.is Vill að ríkissaksóknari víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níræður í forsvari

Stjórnvöld virðast ekki vera í vandræðum með dusta rykið af gömlum karljálkum til þess að gegna ábyrgðarstörfum. Hefðir ekki verið lag að fá Jóhannes Norðdal líka í nefndnin?


mbl.is Gera athugasemdir við hæfismat
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa ekki bolmagn til þess að endurheimta 1000 milljarða

....eða ekki vilja til að rannsaka eðalstyrkgjafa stjórnmálaflokkanna Björgólf Thor...

...Er ekki kominn tími til þess að moka öllu þessu liði út sem vinnur með útrásarvíkingunum....


mbl.is Eva Joly íhugar að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigerðir kúgunartilburðir

Ef rétt er að Páll Hreinsson vilji reka Sigríði Benediktsdóttur vegna þess að Jónas Fr. klagaði hana þá afhjúpar hann dæmigerðann karlahroka. Fæ ekki séð að umræðuefni í umræddu viðtali sé byggt á öðru en almennri vitneskju.

Þetta bendir til þess að Páll Hreinsson hafi verið valin í nefndina til þess að aðstoða yfirvöld við að semja hina alkunnu "hvítbók".

Sjálfstæðisflokkur og samfylking vilja fá að skrifa söguna.

Jónas Fr. ætti bara að fara í felur og skammast sín.

Hvers vegna er Katrín Jakobsdóttir að ráða Baldur Guðlaugsson sem ráðuneytisstjóra? Hvers vegna voru innherjaviðskipti Baldurs ekki rannsökuð opinberlega? Er hann besti kosturinn? Vildi enginn annar verða ráðuneytisstjóri? Hefur hann eitthvað vit á menntamálum?


Bloggfærslur 10. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband