2010-10-19
Forræðið þarf að tryggja í stjórnarskrá

![]() |
Brýnt að tryggja forræði Íslendinga á auðlindum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.10.2010 kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mig rámar í það það hafi verið í fréttum fyrir nokkru.
Hækkun á þóknun til borgarfulltrúa.
Og nú snýta þeir sér af harmi yfir að þurfa að reka fólk sem er raunverulega að vinna.
Er Jakob Frímann Magnússon enn á ofurlaunum sem miðborgar-borgarstjóri?
Hvernig ætlar Jón Gnarr að grína borgina úr þessu?
![]() |
Lýstu yfir miklum samhug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2010-10-19
Mörður skeleggur
Það þarf að fá svör við þessum spurningum
Sögur fara af því að stærstu útgerðarfyrirtækin í landinu/kvótagreifar

eigi framleiðslufyrirtæki erlendis.
Þau selja fiskinn óunninn á undirverði til eigin fyrirtækja erlendis að því er sögur herma og losna þannig við að greiða skatt á íslandi.
Einnig hefur verið talað um að þessir aðilar fari með villandi málfluting um að hagstæðara sé að flytja fiskinn óunninn úr landi.
Útgerðin flytur þannig skatttekjur úr landi, atvinnutækifæri úr landi og vinnur gegn uppbyggingu á landsbyggðinni.
Mjög er farið leynt með áhrifin af þessu enda margir stjórnmálamenn og fjölmiðlar í vasa LÍÚ
![]() |
Mörður spyr á ný um eignarhald í útlöndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
2010-10-19
Betra að lækka starfshlutfall
Það er réttlátara og felur ekki í sér mismunun
það er líka hagkvæmara fyrir fyrirtækið að því leyti að mannauðurinn verður áfram fjölbreyttur og engin þekking glatast.
Vissulega er auðveldara að segja fólki upp því þá þurfa ekki stjórnendur að horfa framan í þá sem þeir hafa skert kjörin hjá.
Undarlegt að forstjórinn sitji trúnaðarmannafundi ef honum er ekki boðið.
Kannski kann þessi maður ekki að stjórna fyrirtæki.
![]() |
Hörð umræða um uppsagnir hjá OR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2010-10-19
Landsbankinn er ríkisbanki
Fjármálaráðherrann stillti Elínu Jónsdóttur í Bankasýsluna sem á að hafa eftirlit með hlutdeild ríkisins í bönkunum.
Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, losaði sig undan kúluláni upp á á annað

hundrað milljónir króna með því að selja eignarhaldsfélag sitt og skuldina með. Þetta var eftir hrun íslensku bankanna. Frá þessu var sagt í Pressunni í janúar.
Í skjóli Elínar er verið að afskrifa milljarða hjá útgerðum og völdum fyrirtækjum, þrátt fyrir að umrædd fyrirtæki hafi úthlutað eigendum sínum tugi eða hundruð milljóna í arð.
Í landinu búa tvær þjóðir.
Sú sem greiðir skuldir sínar auk þess að taka á sig tap bankanna
og hinir sem fá afskrifað og greiddan arð.
![]() |
Dregur úr mótmælum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2010-10-19
Valdastéttin í vörn
Eyjan sendi öllum forystu mönnum stjórnmálaflokka spurningu um það hvort þeir væru tilbúnir til þess að jafna kjör stjórnmálamanna og embættismanna ríkisins við þau sem almenningur býr við.
Útreikningar hafa sýnt að aðgerð sem þessi myndi geta leyst skuldavanda

heimilanna.
Engin í forystu fjórflokksins var tilbúin til þess að svara þessari spurningu.
Ég vil hvetja fólk til þess að varast framboð þeirra sem tilheyra hinni svokölluðu valdastétt og valdablokkum sem berjast um að hafa yfirráð yfir auðlindum landsins og fjarmagni.
http://www.facebook.com/pages/Jakobina-Ingunn-Olafsdottir-a-stjornlagabing/161385473872928
![]() |
Það er bara allt skorið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2010-10-19
NáttúruAuðlindirnar fyrir þjóðina
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á sér ósk um nýtt ákvæði í stjórnarskrá þar sem kveðið er á um að auðlindir verði þjóðareign.
Hvað þýðir þetta hugtak þjóðareign. Hugtakið er merkingarlaust ef ekki fylgja skýlaus ákvæði um afnotarétt.
Ef nýtingarréttur er framseldur til áratuga er eignarrétturinn merkingarlaus

.
Tökum sem dæmi:
Þú átt hús. Ríkisstjórnin ákveður að framselja Jóni nýtingarrétt á húsinu þínu til fimmtíu ára.
Þú, makinn og börnin flytjið út. Þið getið sagt við vini ykkar: já, við eigum hús en vinir ykkar spyrja þá kannski, ...en hvers vegna búið þið á á götunni?
http://www.facebook.com/pages/Jakobina-Ingunn-Olafsdottir-a-stjornlagabing/161385473872928
![]() |
Skuldir fyrnist á tveimur árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)