Hvað þýðir bankahrunið fyrir venjulega Íslendinginn?

Það þarf nú kannski að svara því fyrst hvað er venjulegur Íslendingur. Eru stjórnmálamenn venjulegir Íslendingar? Til dæmis stjórnmálmaður sem hefur verið í forsjá flokks síns og skattgreiðenda frá því að hann lauk skólagöngu. Hvað með Íslendinginn sem fékk 20 milljónir í mánaðarlaun?

Hinn venjulegi Íslendingur fékk á bilinu 150 til 600 þúsund í mánaðarlaun. Hann keypti hús eða íbúð á uppsprengdu verði og skuldsetti sig upp í rjáfur. Stjórnmálamenn sem fengu góða styrki frá byggingaverktökum tóku ákvarðanir sem leiddu til gerviverðs á húsnæðismarkaði. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar handfærði upp fasteignamat til þess að auka veðhæfni húsnæðis. Sama ríkisstjórn færði veðmörk upp í 90%. Þá var fyrirkomulagi á úthlutun lóða hagað þannig að því fylgdi lóðabrask. Í kjölfar þessara ákvarðanna hækkuðu fasteignagjöld og vaxtabætur þurrkuðust út hjá mörgum fjölskyldum.

Ríkissjóður græddi, borgarsjóður græddi, byggingarverktakar og lóðarbraskarar græddu en síðast en ekki síst græddu bankarnir sem voru komnir í eigu vildarvina Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

En fyrst að svo margir græddu þá hljóta einhverjir að hafa tapað. Það liggur nefnilega í eðli málsins að þegar að einn græðir þá tapar annar. Jú þeir sem töpuðu voru þeir sem keyptu sér húsnæði á tímabilinu 2003 til 2008. Sérstaklega þeir sem voru að kaupa í fyrsta skipti, þ.e.a.s. unga fólkið.

Þetta ferli hófst ekki óvart. Stjórnmálamenn voru á mála hjá bönkum og bröskurum. Í stað þess að taka ákvarðanir sem voru góðar fyrir „venjulega Íslendinga" tóku þeir ákvarðanir sem voru góðar fyrir óvenjulega Íslendinga, þ.e.a.s. fyrir fólk sem hafði milljónir í mánaðartekjur og fyrir stjórnmálamenn sem þáðu greiða af óvenjulegu Íslendingunum.

Auk þess sem venjulegum Íslendingum er ætlað að greiða gerviverð fyrir húsnæði sitt er þeim ætlað að fjármagna bankanna. Fjármagna banka sem nú þegar eru búnir að hafa af þeim gríðarlegt fjármagn vegna vaxta og verðbóta af lánum. Lánum sem fjármagna gerviverð sem nú er að hjaðna niður í byggingarkostnað án þess þó að skuldir vegna húnæðis hjaðni.

Óvenjulegum Íslendingum er ekki ætlað að bera skaðann. Þýðir þetta að venjulegur Íslendingur er sá sem tapar en óvenjulegur Íslendingur er sá sem græðir?
mbl.is Óvissu um framtíð Haga eytt
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Bloggfærslur 5. febrúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband