Verndarar íslenskra náttúruauðlinda

Það varð innvígðum og innmúruðum ljóst á níunda áratugnum að fisknum í sjónum var ekki lengur vært vegna ágengni smábátaeigenda sem sífellt vildu ónáða hann með krókum og öðrum tólum. Íslenskir stjórnmálamenn með háleit markmið fengu því togaraútgerðum það mikilsverða verkefni að vernda fiskinn í sjónum fyrir græðgi trillukarla.

Íslenskir stjórnmálamenn sem eru sérstaklega hugvitsamir létu sér þetta ekki nægja því nú ku k0366913.jpgnokkrir þeirra vera orðnir vansvefta af áhyggjum af því að íslenskt vatn væri fótum troðið og fóru því að leggja á ráðin um að koma vatninu undir verndarvæng fámenns hóps manna. Manna sem eru sérlega vel gerðir og kunna að fara betur með vatn en aðrir menn. Að því er sumir telja jafnvel að breyta því í gull. 

Vitsmunir íslenskra stjórnmálamanna eru í sífelldri þróun og áhugi þeirra á gullgerðarmönnum fer vart dvínandi. Tekist hefur að grafa upp Kanadískan gullgrafara sem stofnað hefur fyrirtæki sem hægt er að eyða í einu vettvangi með pappírstætara og mun það þá ekki skilja eftir sig önnur vegsummerki en gáttaða íslenska stjórnmálamenn. Þessi gullgrafari er hinn nýi verndari íslenskra orkuauðlinda. 

Heimsk alþýðan er sífellt umhugsunarefni íslenskra stjórnmálamanna. Hvernig stendur á því að sauðsvartur almúginn skilur ekki þessi æðri markmið þeirra?

 

 Jónas.is hefur eftirfarandi um Magma viðskiptin að segja:

 Af hverju gerir ríkisstjórnin ekkert í máli Magma? Málið er eins vitlaust og yfirleitt er unnt. Skúffufyrirtæki frá Kanada eru afhentar auðlindir á Reykjanesskaga framhjá lögum og rétti. Fávísir lagatæknar segja, að það sé bara í lagi. Þær kerlingar ætti að reka strax. Ef ekki vill betur, á ríkið að setja neyðarlög um verndun auðlinda. Alls ekki gengur, að landráðafólk í spilltum ráðuneytum túlki lög svo þröngt, að það gangi þvert á anda laganna. Ríkisstjórnin gerir ekkert, því að í eymd sinni og volæði er hún búin að sætta sig við lögbrotið. Kannski hefur einhver fengið eitthvað undir borði.

Á Svipunni er ágæt grein um yfirgang Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

 

 


mbl.is Undrast ummæli Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. júlí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband