Það er merkilegt hversu óvandaður Þórólfur Matthíasson er í málflutningi sínum um málefni Icesave og fer einatt rangt með staðreyndir. Það er bókstaflega skelfilegt að lesa málflutning Þórólfs sem virðist ganga það eitt til að vinna gegn íslenskri velferð í Aftonbladed.
Í Aftonbladed er lögð fyrir Þórólf eftirfarandi spurning:
Har den Islandske staten garantert for Engelske og Nederlandske innskot.? Var dei Islandske bankane med i noko form for sikringsfond ?.Dersom svaret er nei. Kvifor skal Island haldast avsvarlig.
Og hann svarar á eftirfarandi hátt:
Island hadde og har en garantifond. Garantifondet skulle garantere de förste 20.887 euros på bankkonto (ikke pengemarkedsfond eller andre "spekulative" plasseringer) i filialer til Islandske banker. Denne garantien gjelder for hele EES. DVS det spiller ingen rolle om kontoen er i filial i Raufarhöfn, Reykjavik, Röst eller London. Icesave avtalen forholder seg til hvordan Island oppfyller denne forpliktelsen. I henhold til innskytere i filialer i Island så er saken den at innskyterne der har ikke tapt en krone. På sett og vis betyr Icesave avtalen at regjeringene i Holland og i England godtar at den islandske regjering forskjellsbehandler folk i EES på grunn av de ekstraordinære omstendigheter Island befandt seg i i oktober 2008.
Þórólfur er spurður hvort að bankarnir hafi ekki verið með tryggingasjóð en svarar því til að Ísland hafi verið með tryggingasjóð.
Hann virðist vera að reyna að telja norskum almenningi í trú um að ríkið hafi borið skyldur gagnvart tryggingarsjóðnum sem er sjálfseignarstofnun og ekki í eigu ríkisins. Ríkið ber hér engar skyldur eins og Þórólfur heldur fram og reyndar er ríkinu ekki leyfilegt að ábyrgjast sjóðinn samkvæmt tilskipunum ESB sem íslendingar hafa innleitt.
Alvarlegasta misfærslan í málflutningi Þórólfs tilvísun í að ríkið hafi mismunað fólki vegna Icesave reikninganna en það er alveg á hreinu að ALLIR sem áttu fé í bönkunum á Íslandi sitja við sama borð þegar kemur að tryggingu innistæðna. Það hefur alltaf legið fyrir og það veit Þórólfur mætavel.
Þótt að Íslenska ríkið hafi tryggt innistæður í íslenskum bönkum gagnvart öllum þeim sem áttu innistæður í hér á landi er það ekki á nokkurn hátt mismunun þar sem ríkið bar enga ábyrgð á þessum einkabönkum og miðuðu aðgerðir ríkisins að því að bjarga íslenska efnahagskerfinu með fjármunum Íslenskra skattgreiðenda.
Tryggingarsjóði innistæðueigenda bar hins vegar að bæta öllum skaðann hvort sem um er að ræða í útibúum á Íslandi eða erlendis.
Íslenska ríkið ber hins vegar ekki samsvarandi skyldur.
Sem prófessor við Háskóla Íslands ætti Þórólfur að skynja þennan mismun.
ESB og Icesave aðskilin mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:28 | Facebook
Athugasemdir
Sæl Jakobina
Hárrétt hjá þér.
Kveðja.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 11:57
Ertu að halda því fram að Neyðarlögin og sú staðreynd að FME setti skilanefndir yfir alla bankana og breytti þeim úr einkabönkum (hlutafélögum á markaði) í ríkisbanka hafi hér ekkert að segja? Þetta er veigamikil röksemd sem þið skautið alltaf yfir, sem standið í þessu málþófi
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 10.1.2010 kl. 11:59
Góð grein sem ég las í Morgunblaðinu firrir stuttu Háskólamenntun í kjölfar hrunsins eftir Pétur Berg Matthíasson, Þórólfur ætti að lesa hana.
Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 12:01
Bestu þakkir Jakobína fyrir að skilgreina þessa ábyrgð á skyldu Tr. innstæðueigenda.
Þarna rann upp fyrir mér að líklega vita ekki allir þeir sem hæst gala um þessa ábyrgð ríkisins um hvað þeir eru að tala. Eiginlega er það bölvaður galli á mjög innblásnum málflutningi!
En sorglega algengur.
Árni Gunnarsson, 10.1.2010 kl. 14:04
Málflutningur Þórólfs Matthíassonar á ekki að komar á óvart.
Hans mat er ávallt í gegnum pólístisk gleraugu núverandi valdhafa.
Andrés Ingi (IP-tala skráð) 10.1.2010 kl. 15:43
Þetta er hörmulegt. Skyldi þessi maður vera í Samfylkingunni?
Sigurður Þórðarson, 10.1.2010 kl. 19:01
Takk Jakobína.
En bréf stjórnkerfisins, sem Jóhanna skrifaði upp á, og sent var forseta, það var aðeins um þessa meintu mismunun.
Þórólfi er því kannski vorkunn. Hann er ekki einn um að halda þessu fram.
En jafn rangt fyrir það.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 10.1.2010 kl. 23:04
Heyr, heyr, með lögum skal land byggja, en ólögum eyða.
kv. að vestan
Nanok (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.