Ekki skrítið þótt hann bori í nefið

Sennilega er rökhugsun mannsins enn á við fimm ára. Málflutningur Bos ber þess vott að hann skortir stoð við sín sjónarmið. Hollendingurinn segir að "ríki geti ekki hlaupist á brott frá skuldbindingum sínum þrátt fyrir að það sé fjarmálafyrirtæki í einkaeigu sem hafi valdið skuldbindingum".

Það er nefnilega svo að skuldbindingar einkafyrirtækja eru ekki skuldbindingar ríkisins og ef einhver hleypur frá slíkum skuldbindingum þá eru það einkafyrirtækin eða Björgólfarnir í þessu tilfelli. 

Sjá

Save the people of Iceland

Komment frá Portugal

Alain Pedro, Portugal
The Banks have been robbing us blind for years... I can only hope the rest of the world will wake up too. People of Iceland be brave and firm in your quest for freedom, maybe with your example other nations will stand against this enslaving monetary system. Greetings from Portugal


mbl.is Bos: Ekki hægt að hlaupast á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg er ég sammála þér Jakóbína

Ég held að það fari nú að verða tímabært að láta reyna á það hverjar skuldbindingar okkar eru

Ragnar (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 13:53

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Wouter Bos virðist vera læs, eftir myndinni að dæma, nema þetta sé bara myndablað, og því ætti hann að geta stautað sig fram úr tilskipunum ESB um tryggingasjóði innistæðueigenda.

Eftir þann lestur ætti hann að útskýra í hverju "alþjóðlegar skuldbindingar"  Íslands séu fólgnar.  Jafnvel tiltölutega stirðlæst fólk ætti að geta skilið tilskipanirnar, þó síðustu ríkisstjórnir og Svavarsnefndin hafi greinilega ekki kynnt sér þær.

Axel Jóhann Axelsson, 20.1.2010 kl. 14:10

3 identicon

Afhverju er þessir lúðar alltaf að halda því fram að við ætlum okkur ekki að standa við skuldbindingar okkar?

Það hefur verið marg talað(hérna heima alla vegana) að við munum standa við okkar....bara ekki á þeirra forsendum heldur okkar.

Jón Pálss (IP-tala skráð) 20.1.2010 kl. 14:51

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Tekur einhver mark á stjórnmálamanni í dag?

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 20.1.2010 kl. 17:44

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það er ekki mark takani á Bos. Hann er lýðskrumari af verstu sort. Pólitíkus. Say no more.

Villi Asgeirsson, 20.1.2010 kl. 21:33

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hann er að hugsa um virðingu það kemur ekki vel út að standa ekki við Hlið Stóra-Bretlands.

Virðing Dómstóla EU er gefa góð skilboð út í Alþjóða Samfélagið og þess vegna á að láta þá úrskurða í réttarfarslegum anda hvað hverjum ber.

Bretar hafa ekki þurft að sanna eitt eða neitt. Komist upp með allt.  

Þjóðverjar, Frakkar, með Pólverjum mun vera hæfur meirihluti í flestum málum EU. 

Júlíus Björnsson, 21.1.2010 kl. 04:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband