Tilfinningarót

Eftir ósköpin sem dunið hafa á þjóðinni er fólk ráðvillt. Taugarnar eru spenntar, óvissan plagar og áhyggjur og reiði taka bólfestu. Við látum stjórnast af kröftum sem rekja má til tilfinninga, vitsmuna og áhrifa frá umhverfi.

Rangar eða ónógar upplýsingar í aðdraganda kreppu þjónaði því að fólk tæki ákvarðanir sem ekki þjónuðu þeirra eigin hagsmunum. Atferli fólks réðst af áhrifum frá umhverfi sem fólk treysti.

Nú vaknar fólk upp við vondan draum. Traust þeirra var misnotað. Þetta veldur tilfinningaróti. Við getum ekki afneitað tilfinningum okkar. Þær eru einn af þeim kröftum sem knýja okkur áfram í daglegu lífi og stjórna gjörðum okkar. En verum varkár, beinum reiði okkar í farveg uppbyggingar. Notum þennan kraft til þess að bjarga því sem bjargað verður.

Undanfarið hafa okkur verið að berast upplýsingar um raunverulegan gang mála. Blekkingarvefir eru að liðast í sundur og veruleikinn að taka á sig aðra ásýnd. Þessi veruleiki var líka til staðar fyrir mánuði eða jafnvel ári síðan en hann var umvafinn blekkingarhulu sem dró úr mætti okkar til aðgerða.

Þegar við höfum réttmætar upplýsingar um það umhverfi sem við þurfum að rata í magnast máttur dómgreindarinnar. Notum dómgreindina og beinum tilfinningum okkar í farveg sem leiðir til betra samfélags.

Tökum þátt í umræðunni

Treystum þeim sem eiga það skilið

Hjálpum þeim sem hafa orðið illa úti

Breytum eigin hugarfari

Gefum heiðarleik og mannúð uppreisn æru


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband