Silfur Egils: góður

Það var athyglivert að fylgjast með máli viðmælenda í Silfri Egils í dag.

Sigmundur kemur máli sínu vel á framfæri og skýrir vel stöðu mála eins og hann sér hana. Farið er yfir hvernig við getum horft fram á nýtt spillingartímabil ef ekki er gripið inn í atburðarrásina nú. Nú þegar er komin upp staða sem vekur tortryggni vegna þeirra ítaka sem ríkisstjórnin hefur náð í atvinnulífinu með yfirtöku bankanna. Sigmundur leggur áherslu á vanmátt íslendinga í samskiptum við breta. Beitt gagnrýni þar.

Ragnar skýrði vel hvernig „fjárglæframennirnir" hafa skapað fölsk veð með því að raungera þykjustu eignir með viðskipum með hlutafélög við tengda aðila. Það kemur vel fram hvað afleyðingar það hefur þegar menn reyna að leika á lögmál hagfræðinnar með því að hunsa t.d. varúð og vöxt fyrirtækja. Góður punktur hjá Ragnari að við eigum að bíta á jaxlinn og ekki lát pína okkur til óraunhæfra samninga.

Jóhanna gagnrýnir hvernig stjórnvöld hafa gengið frá velferðakerfinu á uppgangstímum. Þó hún sé öll af vilja gerð til þess að styðja við almenning er ekki víst að burðir séu til þess nú í ríkissjóði.

Ekki sá Jón Ásgeir sér fært að skýra leikfléttur fjárglæframanna við sköpun loftbóluveða þegar hann var inntur eftir því.

Margar áhugaverðar spurningar og atriði koma fram í þættinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband