Auðlindir okkar

Bankakerfið er tæki sem liðkar fyrir viðskiptum. Það er í eiginlegum skilning þess orðs ekki hluti af auðlindum landsins.

Það eru auðlindir okkar íslendinga sem skapa verðmætin í landinu. Þessar auðlindir eru m.a. náttúra landsins, fiskimiðin, jarðvarmi og vatnsföll að ógleymdum mannauði og þeirri þekkingu sem hann býr yfir.

Auðlindirnar skapa tækifæri. Um þær byggist ýmiskonar þjónusta s.s. fjármálastarfsemi.

Það er mikilvægt núna að verja raunverulegar auðlindir, endurheimta auðlindir sem var stolið og huga að því að missa ekki mannauðinn úr landi.

Tækifærin munu þá skapast aftur og gætum þess að misnota þau ekki aftur.

 Lærum af reynslunni!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband