Siðferðiskreppa!

 

Mikið er fjallað um efnahagsástandið á Íslandi í fjölmiðlum og athyglinni beint að hlutabréfum, hryðjuverkaásökunum, gengi gjaldmiðla og vísitölum. Harmleikir sem eru að gerast meðal almennings fá litla athygli.

Fylgispeki fjölmiðla við foringjanna er mikil og áróðurinn í fjölmiðlum miðar að lægja öldurnar. Danir tala um að aðstoða íslendinga ekki bara á móralska sviðinu heldur líka því efnahagslega.

Það er athyglivert siðferðiskreppan virðist ofar í huga danans en efnahagskreppan.

Það er mikilvægt nú þegar ástandið blasir við að gleyma sér ekki i vísitölum. Beinum athyglinni að siðferðinu. Íslendingar þurfa að temja sér hugarfar sem setur manneskjuna og náttúruna í forgrunninn. Göngum þannig um samfélagið að það verði vinsamlegt börnunum okkar þegar þau vaxa úr grasi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband