Þjóðlegt

Ég hef ekki verið dugleg að sjóða slátur undanfarin ár en fyrir þrábeiðni sonar míns sauð ég þrjá keppi af slátri og hafði kartöflustöppu með í gærkveldi. Þetta þótti lostætí. Einn og hálfur keppur urðu afgangs svo þeir fengu hafragraut og slátur í morgunmat áður en þeir fóru í skólann og hafði ég síðan hugsað mér að steikja afganginn af slátrinu í kvöld.

Þegar sonur minn kom úr skólanum sagði hann mér að hann hefði fengið slátur í skólanum. Sannkölluð sláturtíð!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Slátur er gott. Búinn að kaupa slatta af því. Sýð 3 keppi, dugar einu sinni í kvöldmat, grjónagraut og slátur kvöldið eftir. 2 í matinn og allir kátir.

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 14.10.2008 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband