Barnalegir stjórnmálamenn

 

Nú segjast menn ekki hafa séð þetta fyrir og halda að það sé traustvekjandi. Má ekki gera kröfu til þess að þeir sem taka að sér að stjórna landinu hafi eitthvað á milli eyrnanna. Lásu ráðamenn ekki skýrslurnar áður en þeim var stungið undir stól?

Sú leynd sem hefur hvílt yfir skýrslum um efnahag landsins og aðgerðaleysi í kjölfarið virðist ekki fá mikla athygli fjölmiðla. Fjölmiðlamenn virðast vera í álögum. Hvers vegna spurði enginn forsætisráðherra á blaðamannafundi í dag hvort hann væri ekki að íhuga að segja af sér.

Nú er verið að berja á almenningi. Fólk missir vinnuna, skuldir vaxa, sparifé þurrkast út og eignir rýrna að verðmæti. Í kjölfarið á þessu fylgja raunir fyrir einstaklinga. Á haustmánuðum þegar við blasti hvað væri í farvatninu voru ráðamenn að eyða milljónum í ferðalög og uppihald fyrir maka. Skiptir ekki máli í þeim stærðum sem verið er að skoða núna en er smekklaust og siðlaust. Sýnir forgangsröðun óþroskaðra einstaklinga í forystu landsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband