Ruddalegir stjórnmálamenn

 

Við blasa vandamál. En hvernig vandamál? Jú efnahagsleg. Hvers vegna eru þau efnahagsleg? Jú menn kjósa að líta svo á að þau séu efnahagsleg. En eru þau ekki líka siðferðisleg? Hafa ekki stjórnvöld í ruddaskap sínum vaðið inn á heimili í landinu og sett þar allt á hvolf með gjörðum sínum?

Afleiðingar gjörða stjórnmálamanna speglast í efnahag landsins sem er "MACRO" fyrirbæri. En gjörðir einstaklinga eru ekki efnahagslegar. Gjörðir einstaklinga þarf að skoða í öðru ljósi því þær eru persónulegar og einstaklinga á að skoða í ljósi gjörða þeirra.

Látum forsvarsmenn ekki rugla okkur. Leyfum einstaklingum ekki fela sig í skjóli makro fyrirbæra. Síðustu vikur sýna vel hversu efnahagsleg viðmið rugla einstaklinga. Þegar einstaklingar taka ákvarðanir gera þeir það á persónulegum forsendum. Forsendur okkar takmarkast af þekkingu okkar. Þegar við gerum mistök þurfum við að taka afleiðingunum flest hver. Þess vegna eigum við að halda okkur innan þess ramma sem þekking okkar nær og takmarka gjörðir okkar við það sem við skiljum.

Ef stjórnvöld skortir vit og siðferði til þess að byggja á eiga þeir að fara í önnur störf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband