Verjum sjálfstæðið!

 

Við stöndum frammi fyrir hrikalegri atburðarrás sem framan af var almenningi hulin. Það ástand sem ríkir núna gerðist ekki bara allt í einu. Aðdragandinn var langur.

Samsæriskenning Zeitgeist (staðfærð)

Upphaf þess sem við stöndum frammi fyrir í dag má rekja til þýlyndis stjórnvalda við bandarísk yfirvöld. Ungir drengir tóku forystu í stjórnmálaflokkum í upphafi níunda áratugsins og vingaðist bandaríkjastjórn við þá.

Bandarískt auðvald hafði augastað á auðlindum Íslands. Hvers vegna ekki að bjóða heim þessum viðkvæmu spírum í íslenskum stjórnmálum. Kenna þeim að sefa múginn, ná tökum á fólki með greiðvikni og móta efnahagslífið á þann máta að það yrði þroskað til uppskeru fyrir bandarískt auðvald innan tuttugu ára. Þetta er hin leiðin sem notuð er til þess að hernema lönd. Steypa þeim í skuldir og hirða þau síðan. Í þýlyndi sínu setur stjórnvaldið löggjöf sem skilur landið eftir óvarið, eftirlitskerfi sem virkar ekki og skjaldborg er slegið um skúrkanna sem drógu þjóðina fram á klettabrún þar sem hún riðar nú til falls. Sendiboðar ríkisstjórnarinnar eru nú víða um lönd að selja valdið í hendur þeirra sem eftir því sækjast.

Veruleikinn

Hvað sem þessari samsæriskenningu líður stendur þjóðin frammi fyrir því að auðlindunum er nú stefnt í hættu. Bæði einstaklingar og þjóðir þola tiltekna skuldsetningu en þegar skuldagryfjan er orðin of djúp tapa einstaklingar og þjóðir sjálfstæði sínu. Komum okkur ekki í þá stöðu að við missum stjórn á auðlindunum.

Nú þurfa stjórnmálamenn að gæta þess að selja ekki auðlindirnar undan börnunum okkar. Hrægammarnir sækja nú að særðri bráðinni. Það verður að biðja fyrir því að stjórnmálamenn skilji það að Bandaríkjamenn eru ekki annarra vinir. Þeir munu í anda frjálshyggjunnar huga að því að hámarka hag sinn í öllum samningum!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Í byrjun tíunda áratugsins

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.10.2008 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband